Morgunblaðið - 20.05.2004, Side 26
AUSTURLAND
26 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Stykkishólmur | Lúðrasveit Stykkishólms
minnist þess um þessar mundir að 60 ár
eru frá stofnun sveitarinnar. Lúðrasveitin
hélt afmælistónleika í Stykkishólmskirkju
hinn 1. maí.
Nú er ætlunin að heimsækja nágranna-
byggðir og halda tónleika á fjórum stöðum
um komandi helgi. Á laugardaginn verða
tónleikar í Samkomuhúsinu í Grundarfirði
kl. 14 og í Ingjaldshólskirkju kl. 17. Á
sunnudag heldur lúðrasveitin tónleika í
Borgarneskirkju kl. 13 og í Dalabúð í Búð-
ardal kl. 17.
Dagskrá tónleikanna er fjölbreytt og
skemmtileg. Þar er að finna m.a. þjóðlög
og dægurlög. Stjórnandi lúðrasveit-
arinnar er Martin Markvoll, sem er Norð-
maður og hefur stjórnað lúðrasveitinni í
vetur. Aðgangseyrir á tónleikana er 500
kr.
Lúðrasveit heimsækir
nágrannabyggðir
Blönduós | Karlakór Akureyrar-Geysir og
Kvennakór Akureyrar verða með tónleika
í Blönduóskirkju föstudaginn 21. maí kl.
20.30. Fluttur verður hluti af efnisskrá
vortónleika kóranna sem flutt var á
heimaslóðum fyrir skömmu við miklar og
góðar undirtekir segir í frétt um tón-
leikana.
Einnig munu kórarnir syngja saman
nokkur lög. Einsöngvarar eru úr hópi kór-
félaga. Söngstjórar eru Erla Þórólfsdóttir
og Þórhildur Örvarsdóttir og um undir-
leik sjá Eyþór Jónsson og Snorri Guð-
varðsson.
Með sól í hjarta
Sauðárkrókur | FNV-dagurinn
var haldinn hátíðlegur fyrir
nokkru. Þennan dag fór fram
hin árlega stærðfræðikeppni
FNV og 9. bekkjar grunnskóla
á Norðurlandi vestra sem hald-
in var í sjöunda sinn. Stærð-
fræðikeppnin er samstarfsverk-
efni FNV, grunnskóla og
fyrirtækja á Norðurlandi
vestra auk þess sem fyrirtæki
utan kjördæmisins koma að
verkefninu. Kennarar í stærð-
fræði við FNV báru hitann og
þungann af samningu og yf-
irferð keppnisgagna en grunn-
skólarnir sáu um fyrirlögn
dæmanna í undankeppninni.
Samhliða keppninni var boðið
upp á kynningu á Fjölbrauta-
skólanum, stuttmyndasýningu
nemenda af starfsbraut og tón-
listarflutning nemenda úr Tón-
listarskóla Skagafjarðar. Í Bók-
námshúsi fór fram kynning á
námsframboði skólans auk
kynningar Námsgagnastofn-
unar á stærðfræðikennsluefni
fyrir grunnskóla. 24 gestir frá
Finnlandi og Danmörku kynntu
ásamt nemendum FNV, verk-
efnið í „Völvunnar spor“ sem er
í umsjá Herdísar Sæmund-
ardóttur, fagstjóra í dönsku við
FNV. Munir nemenda í verk-
námsdeildum og 9. og 10.
í öðru varð Friðrik L. Kárason
úr Árskóla og í þriðja var
Ragnar Tómasson Árdal úr Ár-
skóla. Verðlaun að þessu sinni
voru afar glæsileg. Sigurveg-
arinn hlaut eignarbikar frá
KLM verðlaunagripum, Canon
I455 prentara frá Nýherja,
Tölvuorðabók frá Eddu útgáfu,
Casio FX-9750 reiknivél frá
Heimilistækjum, ostakörfu frá
Mjólkursamlagi Kaupfélags
Skagfirðinga, stærðfræðiforrit
frá Námsgagnastofnun og Mot-
orola C200 GSM síma frá Sím-
anum auk peningaverðlauna.
Verðlaunahafar í öðru og þriðja
sæti fengu peningaverðlaun
auk Casio FX-9750 vasareikna,
farsíma, rafrænna skólaorða-
bóka, farsíma, flugmiða innan-
lands frá Íslandsflugi, stærð-
fræði-forrit frá Námsgagna-
stofnun, minnislykil og
flíspeysu frá Nýherja og osta-
körfu. Aðrir þátttakendur
fengu peningaverðlaun auk
Casio fx-350MS vasareiknis
fyrir þátttökuna og árangurinn
í undanúrslitum. Þessi veglegu
verðlaun hefðu verið óhugsandi
án þess höfðinglega stuðnings
sem stærðfræðikeppnin hefur
notið frá þeim 26 fyrirtækjum,
stofnunum og sveitarfélögum
sem að keppninni hafa komið.
nemendur í úrslitakeppnina.
Voru þeir frá Árskóla, Grunn-
skólanum á Hofsósi, Grunn-
skóla Siglufjarðar, Grunnskóla
Húnaþings vestra, Grunnskól-
anum á Blönduósi, Húnavalla-
skóla, og Varmahlíðarskóla. Í
fyrsta sæti varð Óskar B.
Helgason úr Varmahlíðarskóla,
bekkjar Árskóla sem sækja
verklega kennslu til FNV voru
til sýnis í Verknámshúsi. Þá
var sumarhús, sem nemendur í
húsasmíði hafa byggt í vetur,
opið almenningi.
122 nemendur af Norðurlandi
vestra tóku þátt í undankeppn-
inni. Að þessu sinni komust 16
Kepptu í stærðfræði á FNV-deginum
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Sigurvegarar í stærðfræðikeppninni, f.v. Ragnar P. Árdal, Friðrik L.
Kárason og Óskar B. Helgason.
LANDIÐ
Geitagerði | Á dögunum stór-
skemmdist heimilisrafstöð við
Hrafnsgerðisá á Droplaugarstöðum
í Fljótsdal. Ástæðuna má rekja til
þess að rafstöðvarhúsið fylltist af
snjó og túrbínan losnaði upp af fest-
ingum sínum og lyftist í um eins
metra hæð.
Hitastig var um frostmark þegar
þetta gerðist, mikil krapahríð í
byggð og snjókoma til fjalla, en áin
alauð, vegna undangenginna hlý-
inda. Ekki sáust merki um krapa-
hlaup í ánni.
Svo virðist sem snjórinn hafi
myndast inni í túrbínunni, líklega
vegna undirkælingar vatnsins í
þrýstirörunum og þrýstingsmunar
sem leiðir til þess að vatnið frýs þeg-
ar það skellur á skóflum vatnshjóls-
ins. Snjór fyllti frárennslið, sprengdi
upp túrbínuna og fyllti að lokum
stöðvarhúsið. Ekki er vitað um sam-
svarandi atburð annars staðar hér á
landi.
Húsið fullt af snjó en alauð jörð
Að morgni 3. maí kom Helgi
Hjálmar Bragason bóndi á Setbergi,
í Droplaugarstaði og sá að það var
rafmagnslaust. Þegar komið var að
stöðvarhúsinu sá hann að það var
fullt af snjó, þó að jörð væri alauð.
Ekki var viðlit að opna dyrnar og var
brugðið á það ráð að losa glugga á
stafni hússins. Síðan var gengið í að
moka snjónum úr húsinu, sem
reyndist óskemmt. Snjórinn virtist
vera af venjulegri gerð, hvítur
kornasnjór og nokkuð þéttur, eink-
um næst vélunum.
Skýringar vandfundnar
Helgi Hallgrímsson náttúrufræð-
ingur frá Droplaugarstöðum, nú bú-
settur á Egilsstöðum, kannaði að-
stæður og bar málið undir vísinda-
og tæknimenn, m.a. á Orkustofnun,
Veðurstofu Íslands og Verkfræði-
stofu Austurlands. Einnig hafði
hann samband við aðra rafstöðvar-
eigendur og Árteig í Kinn, sem fram-
leiða litlar vatnsaflstöðvar. Enginn
kannaðist við ámóta fyrirbæri og
skýringar voru ekki á reiðum hönd-
um.
Í greinargerð sem Helgi Hall-
grímsson tók saman, er eft-
irfarandi niðurstaða: „Flest-
ir eru þó sammála um að
skýringanna sé að leita í
undirkælingu vatnsins ( þ.e.
hitastigi fyrir neðan frost-
mark), sem hafi stafað af
mikilli ofanhríð og snjóburði
í ána uppi á Heiðinni. Um
tíma gæti áin hafa runnið
fram sem þykkt krapavatn,
án þess þó að um eiginlegt
krapahlaup með tilheyrandi
uppbelgingi, hafi verið að
ræða. Neðst í vatnsrörun-
um bráðnar krapinn vegna
aukins þrýstings (frost-
mark vatns lækkar með
auknum þrýstingi) og eyðir þar með
varma úr vatninu og veldur aukinni
kælingu þess, svo að það er verulega
undirkælt þegar það spýtist út úr
krananum á vatnshjólið og frýs þá
samstundis og myndar kristalla.“
Heimilisrafstöðin breyttist í snjóframleiðsluvél
vegna undirkælingar í þrýstirörum
Undur og stórmerki
á Droplaugarstöðum
Ljósmynd/Einar Guðsteinsson
Búið að moka mesta snjónum út: Rafstöðvarhúsið á Droplaugarstöðum
slapp óskemmt þrátt fyrir gífurlegt fannfergi innandyra.
Þeyttist í loft upp: Túrbínan sem breyttist
óvænt í snjóframleiðsluvél losnaði af festing-
unum við atganginn.
Reyðarfjörður | „Við höfum ekki hugmynd um hvernig þetta verður í
raun og veru og verðum bara að laga okkur að breytingunum jafn-
óðum,“ segir Jóna Ólafsdóttir, starfsmaður í Sparkaupum á Reyð-
arfirði, spurð um hvernig henni lítist á væntanlega uppbyggingu á
Reyðarfirði.
„Mér líst bara vel á og það verður forvitnilegt að fá ný andlit í
byggðarlagið og meira líf en verið hefur,“ svarar Bjarney Ingv-
arsdóttir, samstarfskona Jónu, að bragði.
Þegar spurt er um hvort þær noti ekki tækifærið og skipti um vinnu
þegar sprenging verður í atvinnulífinu segjast þær ekkert hafa hug-
leitt það, en auðvitað verði möguleikarnir allir aðrir innan skamms en
verið hefur í fábreyttu samfélagi þar sem atvinnumöguleikar hafa
fjarri því dropið af hverju strái. „Menn hafa hér þurft að harka af sér
á köflum,“ segir Jóna og telur umbreytinguna af hinu góða.
Rólyndislegt yfirbragðið hverfur af bænum
„Bærinn verður þó sjálfsagt aldrei samur aftur, ekki svona rólynd-
islegur eins og verið hefur til margra ára. Bráðum teygja sig hér
blokkir hátt upp í loftið og göturnar verða fullar af fólki. Auðvitað
mun maður sakna rólegheitanna að vissu marki, en þó ekki, því kyrr-
staðan í atvinnulífinu var að drepa allt. Nú kemur unga fólkið heim
aftur þegar það er búið að mennta sig af því að tækifærin verða til
staðar hér.“
Er að gera holu í fjallið
„Pabbi minn er að gera holu hérna í fjallið hinum megin og tók fjöl-
skylduna með sér,“ segir Skagastúlkan Malen Steindórsdóttir, sem
vinnur í Sparkaupum ásamt ígripavinnu í Olís og á bar í bænum. „Við
vorum úti í Noregi að vinna þar og komum svo hingað. Pabbi er yf-
irverkstjóri í Fáskrúðsfjarðargöngum og við búum hér á Reyðarfirði á
meðan göngin eru gerð. Þetta verður allt í lagi,“ segir hún. „Verður
sjálfsagt skemmtilegra heldur en nú er í bænum, því hér er heldur
dauflegt enn sem komið er.“
Verðum að aðlag-
ast jafnóðum
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Taka breytingum á reyðfirsku samfélagi fagnandi: Malen Steindórsdóttir,
Bjarney Ingvarsdóttir og Jóna Ólafsdóttir.