Morgunblaðið - 20.05.2004, Side 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 43
✝ Hallgrímur Val-geir Guðmunds-
son rafvirkjameist-
ari fæddist á
Álafossi í Mosfells-
sveit 5. október
1930. Hann lést á
hjartadeild Land-
spítalans við Hring-
braut þriðjudaginn
11. maí síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðmundur Kristinn
Guðjónsson, tré-
smiður í Reykjavík,
f. á Litlahólmi í
Leiru 17.6. 1891, d.
29.1. 1971, og Kristín Jónsdóttir,
f. á Bakka í Ölfusi 7.6. 1903, d. 1.4.
1937. Systkini Hallgríms eru:
Guðjón, f. 21.2. 1928; María Hall-
dóra, f. 23.1. 1934; Hulda Ester, f.
15.5. 1935; Kristín, f. 6.3. 1937.
Við lát móður sinnar fór Hall-
grímur sjö ára gamall í fóstur til
Sigríðar Guðmundsdóttur, f. á
Kúfustöðum í A-Húnavatnssýslu
22.5. 1897, d. 5.12. 1985, og Jóns
Jónssonar múrara, f. á Skeggja-
stöðum í Árnessýslu 6.3. 1891, d.
8.12. 1973. Hjá þeim ólst hann upp
ásamt Höllu Pálsdóttur, f. 2.2.
1929, d. 5.3. 2004.
Hinn 25. ágúst 1955 kvæntist
Hallgrímur Elísabetu Sveinsdótt-
ur sjúkraliða, f. í Reykjavík 8.9.
1926, d. 20.8. 1989. Hún var dóttir
Sveins E. Sveinssonar matsveins,
f. í Reykjavík 19.7. 1899, d. 25.2.
1989, og Hólmfríðar Eyjólfsdóttur
f. á Þurá í Ölfusi 20.8. 1892, d.
mund Kristin, f. 25.2. 1953, d.
25.4. 1979. 5) Höllu Sjöfn vöku-
konu, f. 11.4. 1954, gift Jóhanni
Sigurði Víglundssyni kennara, f.
23.1. 1954, börn þeirra eru: a)
Guðmundur Örn, f. 16.2. 1983. b)
Rakel Sólrós, f. 2.8. 1987. c) Andri
Þór, f. 27.7. 1988. 6) Önnu Lydíu
umönnunarstarfsmann, f. 9.6.
1955, fv. maki hennar er Kristján
Sigurður Þórðarson trésmiður,
dætur þeirra eru: a) Eyrún Halla,
f. 27.9. 1977, gift Davíð Þór Jóns-
syni, f. 19.9. 1973, börn þeirra eru
Tristan Alex, f. 27.12. 1998, og
Alexía Líf, f. 14.4. 2004. b) Þóra
Elísabet, f. 3.1. 1983, unnusti
hennar er Karl Viðar Grétarsson,
f. 3.8. 1983. 3) Ástríður Anna, f.
18.1. 1989. 7) Sigríði, matráðs-
konu, f. 10.12. 1959, sambýlismað-
ur hennar er Guðjón Steinarsson
bóndi, f. 26.9. 1962, synir hennar
eru: a) Hallgrímur Valgeir, f.
21.10. 1974, dóttir hans er Elísa-
bet Ásta, f. 21.7. 1997. b) Eiríkur
Ingi, f. 9.8. 1976, kvæntur Bertu
Gunnlaugsdóttur, f. 1.12. 1981,
dóttir þeirra er Selka Sólbjört, f.
7.7. 2000. 8) Svein, verkamann, f.
23.6. 1961, fv. sambýliskona hans
er Lára Ólafsdóttir, f. 17.2. 1964,
synir þeirra eru: a) Sigurður Axel,
f. 4.7. 1980, unnusta hans er Hild-
ur Vatnes Kristjánsdóttir, f. 11.9.
1982. b) Fannar Freyr, f. 8.7.
1987. 9) Elsu Halldísi, húsmóður í
Svíþjóð, f. 6.8. 1963, gift Hans Er-
ik Strandberg, kennara, f. 1.3.
1968, börn þeirra eru: a) Sylvía
Emma, f. 24.10. 1992. b) Simon Jó-
hannes, f. 9.1. 1994. c) Rosmarie
Ellen, f. 12.7. 1996. d) Rebekka
Evelyn, f. 9.10. 1997. e) Sóley
Birgitta, f. 4.7. 2001. 10) Hall-
grímur Valgeir Yoakum, verka-
maður (sonur Sigríðar), ólst upp á
heimili þeirra hjóna.
Útför Hallgríms var gerð frá
Garðakirkju 19. maí.
8.12. 1942. Saman
eiga þau börnin: 1)
Soffíu Söndru, hjúkr-
unarfræðing í Banda-
ríkjunum, f. 27.9.
1946, fv. maki hennar
er Roger Vaughn,
börn hennar eru: a)
Kristín, f. 15.4. 1967,
gift Daniel Zeits, f.
28.10. 1960, börn
þeirra eru Robert
Daniel, f. 25.7. 1986,
og Kayla Elisabet, f.
7.5. 1990. b) Robert
(Toby) Kevin Vaughn,
f. 19.5. 1975. 2) Fríðu
Kristínu Elísabetu sjúkraliða, f.
22.2. 1949, gift Hans Hafsteins-
syni rafvirkja, f. 5.8. 1946, börn
þeirra eru: a) Hafsteinn, f. 16.9.
1972, unnusta hans er Erla Anna
Ágústsdóttir, f. 9.8. 1982. b) El-
ísabet, f. 19.7. 1974, gift Gunnari
Rúnari Jónssyni, f. 4.11. 1974,
börn þeirra eru, Björgvin Axel, f.
24.9. 1990, Daníel Jóhann, f. 13.7.
1996, og Inga Lára, f. 21.1. 2004.
c) Róbert Daði, f. 5.5. 1980. d) Jón
Pétur, f. 28.4. 1983. 3) Sonju Guð-
björgu ljósmóður, f. 26.11. 1951,
fv. maki hennar er Guðmundur
Bernharðsson trésmiður, f. 9.5.
1951, börn þeirra eru, a) Gísli Val-
geir, f. 17.1. 1974, sonur hans er
Atli Freyr, f. 12.5. 1992. b) Guð-
björg, f. 10.10. 1978, unnusti
hennar er Jón Gunnar Kristjáns-
son, f. 12.12. 1979, sonur þeirra er
Guðmundur Ísak, f. 16.10. 2000. c)
Bernharður f. 21.12. 1983. 4) Guð-
Að lifa og deyja með reisn er það
sem við öll þráum en fáum auðnast.
En það má segja um pabba að hann
hafi náð að lifa og deyja með reisn.
Pabbi var fæddur á Álafossi í
Mosfellssveit þar sem báðir foreldr-
ar hans störfuðu. En flutti svo til
Reykjavíkur fimm ára gamall. Hann
var mikill mömmustrákur og var
það honum því mikið áfall þegar
móðir hans dó af barnsförum vorið
1937. Fósturforeldrar hans reynd-
ust honum þó afar vel og átti hann
náin tengsl við uppeldissystur sína
Höllu Valgerði. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Austurbæjarskóla og
stundaði svo nám í rafvirkjun við
Iðnskólann í Reykjavík 1949–1953.
Ári seinna tók hann sveinspróf hjá
Kristmundi Gíslasyni og hóf þá störf
hjá Raforku og vann þar til ársins
1958. Það ár byrjaði svo pabbi að
vinna hjá Bræðrunum Ormsson við
uppsetningu og viðhald á lyftum.
Þar vann hann þegar honum bauðst
staða í Þýskalandi við sína iðn. Við
krakkarnir urðum mjög spennt að
flytja til útlanda, pabbi dró svarið á
langinn þó hann hafi aldrei ætlað sér
að flytja út og bauðst þá verkstjóra-
staða hjá Ormsson sem hann þáði.
Árið 1973 tók hann við viðgerðar-
þjónustu hjá Ormsson en henni var
skipt upp þar sem hann hafði bara
áhuga á hluta af henni. Þeir voru
lengi tveir sem sáu um viðgerðir og
eftirlit á lyftum og kölluðu þeir fyr-
irtækið sitt Raflyftur. Fyrir nokkr-
um árum skiluðu þeir Ormsson aftur
inn þessum viðgerðum og viðhaldi á
lyftum og starfaði pabbi sem verk-
taki hjá þeim síðustu ár.
Pabbi og mamma giftu sig 25.
ágúst 1955 en þau ætluðu að gifta
sig 18. ágúst, á afmæli Reykjavíkur,
og litu þau alltaf á þann dag sem
brúðkaupsdag sinn. Pabbi sagði að
hann liti svo á að hann hefði notið
þess einu sinni á ævinni að fá að fara
í fæðingarorlof og var það í júní
1955, en þá var allsherjarverkfall í
langan tíma og nýtti hann þann tíma
í að kynnast þeim börnum sem
fylgdu konunni sem hann elskaði og
giftist, auk þess að sinna sinni dótt-
ur sem fæddist í apríl 1954 og
kannski smábarninu sem fæddist
þarna í júní og hann tengdi þetta
fæðingarorlof við.
Foreldrar okkar bjuggu sín fyrstu
ár í Hæðargarði 30 í Reykjavík en í
október 1962 keyptu þau sér hús í
Goðatúni 30 í Garðabæ. Þá vorum
við krakkarnir á aldrinum 1½ árs til
16 ára og það yngsta okkar fæddist
svo tæplega ári seinna, í ágúst 1963.
Þarna var okkar heimili og úr þessu
hreiðri flugum við hvert af öðru, en
þarna áttum við alltaf skjól, auk
allra góðu stundanna sem við söfn-
uðumst þar saman.
Mamma greindist með krabba-
mein þegar hún var rúmlega fimm-
tug en þau áttu mörg góð ár eftir
það, nutu þess að ferðast saman, auk
þess sem þau gerðu mikla breytingu
á húsinu en sá draumur hafði blund-
að í mömmu frá því að þau keyptu
húsið. Þar að auki fannst þeim
spennandi að fá barnabörnin hvert
af öðru en þau tóku að sér dótturson
fæddan 1974. Í ágúst 1989 dó
mamma en hún var búin að vera
veik allt það ár. Hún vildi enga með-
ferð en tók verkjalyf og dó sam-
kvæmt sinni ósk á heimili sínu í
Goðatúni 30 þar sem pabbi fékk að-
stoð okkar systkinanna til að annast
hana. Hann bjó í húsinu til ársins
1995, þá keypti undirrituð húsið og
bjó þar með fjölskyldu sinni í átta
ár. Húsið var selt í fyrra en afsal var
ekki undirritað fyrr en á þeim degi
sem pabbi dó, skrítin tilviljun.
Líf hans snerist að mestu leyti um
börn hans og barnabörn síðustu 15
ár. En þó börn og barnabörn séu
yndisleg þurfum við líka að eiga vin
af gagnstæðu kyni og pabbi var svo
heppinn að eiga góða vinkonu síð-
ustu 12 ár. Þau ferðuðust mikið,
bæði innan lands sem utan og áttu
saman margar ánægjustundir. Þau
tóku snemma þá ákvörðun að halda
sínu fyrra lífi frá því sem þau áttu
saman þannig að við krakkarnir
kynntumst þeirri konu ekkert.
Þegar maður eldist er mikil gæfa
að eiga margar dætur sagði pabbi
eitt sinn því þær hlúa að manni, en
til þess kom aldrei. En við systur er-
um sjö eins og dygðirnar sjö. Sú
elsta er góðvild, næst kemur friður,
sú þriðja er trúmennska, svo kemur
hógværð, þá kemur gleðin, kærleik-
urinn og langlyndið, en drengjunum
fylgdi vonin.
Við systkinin erum afar þakklát
fyrir að hafa átt svona föður sem
umbar allt og sýndi öllu skilning og
fannst að allir ættu að fá tækifæri,
hann var hinn stóri kærleikur.
Hvert örstutt spor var auðnuspor með
þér,
– hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við guð um þúsund ár.
(Halldór Kiljan Laxness.)
Elsku pabbi, friður guðs veri með
þér.
Fyrir hönd okkar systkinanna
Anna Lydia Hallgrímsdóttir.
HALLGRÍMUR
VALGEIR
GUÐMUNDSSON
Elsku mamma. Þú
gantaðist stundum með
það, að ég myndi nú
setja nokkrar línur á
blað þegar þú færir.
Þegar til kom hafði ég
ekki þann kraft sem
þurfti til, en ég sagði jú já við þig og
orð skulu standa.
Við fjölskyldan höfum verið hepp-
in í lífinu – svo heppin að eigingirni
mín var mikil þegar ég vildi ekki
horfast í augu við að þú værir að
kveðja mig. Ég vildi hafa þig lengur
hjá mér. En svo fann ég að þú varst
tilbúin og þá gat ég kvatt, en það var
sárt.
Ég er svo þakklát fyrir að Gunna
Sigga og Mummi voru hjá þér á
kveðjustundinni. Allt varð svo fallegt
og friðurinn fyllti hjörtu okkar þegar
við mættum. Auðvitað er þetta und-
arlegt og öðruvísi, sérstaklega fyrir
REGÍNA
BENEDIKTSDÓTTIR
✝ Regína Bene-diktsdóttir fædd-
ist á Ísafirði 14. mars
1917. Hún lést á
Landspítalanum 29.
desember síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá Nes-
kirkju 13. janúar.
pabba, sem er búinn að
hafa þig sér við hlið í 62
ár. En hann er ótrúlega
duglegur, orðinn sér-
fræðingur á örbylgju-
ofninn, hvað þá annað.
En þetta er nokkuð
sem mun taka hann
tíma að venjast, ef það
er nokkurn tímann
hægt, eftir allan þenn-
an tíma sem þið áttuð
saman.
Ég fæ ennþá þessa
hugdettu: „Ég verð að
hringja í mömmu og
segja henni frá …“ og
þá man ég. En ég tala nú oft við þig
og segi þér frá – ég hef það á tilfinn-
ingunni að þú heyrir og mér finnst
ég hafa sönnun þess að þú vakir yfir
okkur í fjölskyldunni. Enda var hún
þér kær, um það efaðist enginn.
Elsku mamma. Þakka þér fyrir
allt – alla hjálpina í gegnum lífið –
alla væntumþykjuna fyrir mér og
börnunum mínum og nú síðast
barnabörnunum mínum. Þau elska
þig öll.
Ástarkveðjur.
Þín dóttir
Sigrún.
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís
Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
Englasteinar
Legsteinar
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug í veikindum og við
andlát elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, fósturföður, tengdaföður, sonar,
tengdasonar og afa,
ELÍASAR KÁRASONAR
bifreiðastjóra,
Flúðaseli 61,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til hjúkurnarfólks á 12E Landspítala.
Ásta Björk Björnsdóttir,
Arnar Smári Elíasson,
Hjördís Þóra Elíasdóttir,
Kári Sævar Elíasson, Rósa Birgisdóttir,
Hulda Hrönn Elíasdóttir, Hörður Sigurgeir Friðriksson,
Elmar Freyr Elíasson,
Björn Finnbogason,
Sigrún Sigurjónsdóttir,
Björn Guðmundsson, Guðfríður Guðjónsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu við andlát og útför systur okkar og
mágkonu,
STEFANÍU UNU PÉTURSDÓTTUR,
Austurbrún 6,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til stafsfólks gjörgæsludeildar
Landspítalands við Hringbraut fyrir hlýja og
góða umönnun.
Bogi Pétursson, Margrét Magnúsdóttir,
Jóna Vilborg Pétursdóttir,
Guðlaug Pétursdóttir,
Stefán Pétursson, Kristbjörg Magnúsdóttir,
Jón Pétur Pétursson,
Sigurlína Pétursdóttir, Eyvindur Pétursson,
Halldór Pétursson, Bryndís Björnsdóttir,
Ingi Kristján Pétursson,
Þorsteinn Pétursson, Snjólaug Aðalsteinsdóttir.