Morgunblaðið - 20.05.2004, Page 48
48 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Grettir
Smáfólk
ÉG BJÓ TIL LISTA YFIR
HLUTI SEM ÉG VIL EKKI AÐ ÞÚ
TÆTIR MEÐ KLÓNUM
ÉG HEFÐI KANNSKI ÁTT AÐ SETJA
LISTANN Á LISTANN
ÞAÐ VEIT ENGINN HVAÐ
DULARFULLI KÖTTURINN ER
AÐ HUGSA
EKKI EINU SINNI
DULARFULLI KÖTTURINN
LEIKVÖLL Í
KÓPAVOGI
VANTAR
BLENDING
FJÖGUR ÞÚSUND SANKTI
BERNARDSHUNDA? ÉG TRÚI
ÞESSU EKKI! HVER SENDI
ALLA ÞESSA FJÁRHUNDA TIL
AKUREYRAR? HVAÐ MEÐ
ALLA KETTINA?
FIMMTÁN FJÁRHUNDA TIL
EGILSSTAÐA... HVAR ER
ÞESSI LEIKVÖLLUR? HVAR ER
KORTIÐ? HVER BAÐ UM
STÓRA DANA?
SÍÐASTI YRIRHUNDUR
SKILDI HLUTINA EFTIR Í
ALGJÖRI ÓREIÐU!
Risaeðlugrín
© DARGAUD
AAARRRRGG!!
ÆÆ!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NÚ HEFUR hinn hárprúði for-
maður stærsta stjórnmálaflokks ís-
lensku þjóðarinnar einmitt fengið
svona ofbirtu í
augun og virðist
því miður vera
býsna illa hald-
inn af henni.
Leitað hefur ver-
ið til sérfræðinga
(hvar værum við
eiginlega stödd
án þeirra?) til að
koma honum til
hjálpar. Þeir
tóku til óspilltra
málanna og eftir ítarlegustu rann-
sóknir komust þeir að þeirri
óvæntu niðurstöðu, að þessi hvim-
leiði og nauðasjaldgæfi augnsjúk-
dómur væri bráðsmitandi, enda
kom fljótlega í ljós að nánustu tagl-
hnýtingar hans eins og t.a.m. hinir
ungu og nýkjörnu þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins svo og nýskipaður
menntamálaráðherra voru komnir
með alvarlegt smit. Fyrst datt ein-
hverjum í hug að leita ráða hjá
Kára Stefánssyni. Hann væri svo
bráðgáfaður og eldklár, en það fór
á annan veg en búist hafði verið
við, vegna þess að hann var kominn
í ljós, þ.e.a.s. Norðurljós, þar sem
hann nú er næstum öllum stundum
og virðist una sér þar mæta vel.
Aðrar heimildir, sem ég get ekki
fyllilega ábyrgst, herma að Kári
hafi verið ansi stuttur í spuna, er
erindið var borið upp við hann, og
sagðist bara ekki hafa minnsta
áhuga á þessu, enda væri hann í
þann veginn að finna góðu genin í
Norðurljósum. Svo bregðast
krosstré sem önnur tré.
Nú voru góð ráð dýr. Tvennt
kom helst til greina. Annaðhvort að
losa sig við Norðurljós eða með
öðrum orðum að fjarlægja þau fyrir
fullt og allt, þótt það gæti reynst
þrautin þyngri. Hitt var að fjar-
lægja sjálfa sjúklingana þ.e. að
flytja þá héðan til annars lands þar
sem Norðurljós eru ekki sjáanleg
eins og t.d. til Ítalíu, en svo heppi-
lega vill til að þar í landi er einmitt
til ákaflega nýtískuleg meðferðar-
stofnun, sem fengið hefur ótal al-
þjóðlegar viðurkenningar og ómælt
hrós fyrir árangursríkar lækningar
á ólíklegustu kvillum og viti menn
hún er í eigu sjálfs Silvio Berlus-
coni eða Il Cavaliere eins og svo
margt fleira þar í landi og heitir,
bíðið þið nú bara við, Luci di Mez-
zogiorno, þ.e. Suðurljós, þótt ótrú-
legt sé. Þetta sagði ólyginn Ítali
mér, þeir eru til þótt lygilegt megi
heita.
Mér skilst að meðferðin sem ætl-
uð er Íslendingunum yrði aðallega
fólgin í því að láta þá horfa tím-
unum saman á sjónvarpsstöðvar
Silvio Berlusconi allar þrjár og
ennfremur á RAI, ríkissjónvarpið
ítalska, þar sem hann er líka með
alla puttana. Að viti óvitlausra
manna er þetta tilvalin leið til þess
að íslensku sjúklingarnir geti
kynnst á sem skemmstum tíma
fjölbreytni í fréttaflutningi, dag-
skrárgerð og síðast en ekki síst
fjölbreytni í eignarhaldi á fjölmiðl-
um! Stjórnendur meðferðarstofn-
unarinnar, Suðurljósa, þykjast geta
ábyrgst að ofbirtan sem nú hrjáir
Íslendingana muni rjátlast af þeim
á lygilega skömmum tíma. Öfugt
við Norðurljós eru Suðurljós vita-
meinlaus og valda þannig engum
skaða á augum.
Þar sem sá sem hér heldur á
penna þykist vita að ítölskukunn-
átta flestra ef ekki allra Íslending-
anna sé ekki upp á marga fiska er
hann reiðubúinn til að kenna þeim
þetta gullfallega tungumál, en að-
eins gegn ofurgjaldi. Maður verður
að gera sitt til að tolla í tískunni.
Að lokum þetta, óprúttnir gárungar
gætu sagt að ef af þessu yrði
myndi öll íslenska þjóðin fagna því
innilega ef þetta heilaþvegna og
heillum horfna lið sneri aldrei aftur
heim til Íslands. Fé hefði farið
betra.
En ef öllu gamni, gráglettni og
skáldskap er sleppt, þá vaknar
óhjákvæmilega sú spurning hvort
þingmenn Sjálfstæðisflokksins séu
bundnari af sannfæringu formanns-
ins en sinni eigin. Hann virðist í
einu orði sagt ekki hafa velþóknun
á öðrum en þægum jákálfum, sem
oft á tíðum eru tilneyddir til að
breyta gegn betri vitund, samvisku
og skoðunum eins og t.a.m. varð-
andi ótæpileg afskipti ríkisins af
gjörðum þegnanna og óþolandi for-
sjárhyggju. Er ekki raunverulegur
en dulbúinn tilgangur forsætisráð-
herra Íslands, Davíðs Oddssonar,
með fjölmiðlafrumvarpinu að koma
á skoðanakúgun og málfrelsis-
skerðingu hér á landi? Er hann
virkilega sama sinnis og yfirlýstur
aðdáandi Mussolinis, Silvio
Berlusconi? Það leynir sér engan
veginn að miklir kærleikar eru með
þeim sálufélögum eins og gagn-
kvæmar heimsóknir benda ótvírætt
til. Ætlar kannski sagan að end-
urtaka sig, en hún segir okkur að á
sínum tíma voru ýmsir sjálfstæð-
ismenn taldir vera nokkuð hallir
undir öfgastefnur á borð við fas-
isma og nasisma.
Að lokum er mér spurn hvort
æðsti ráðamaður íslensku þjóðar-
innar, Davíð Oddsson, taki í sama
streng og „ræðuskörungurinn“
frelsaði í Hvíta húsinu sem segir í
alþekktri einfeldni sinni: „Þeir sem
eru ekki með mér eru á móti mér.“
En hvað sem því líður, þá er eitt
víst að Davíð Oddsson er nú búinn
að fá meginþorra íslensku þjóðar-
innar upp á móti sér vegna vanstill-
ingar, heiftar og fæðar sem hann
leggur á ónefnda feðga. Tökum til í
okkar eigin ranni og losum okkur
við öfgamann, sem virðist einna
helst vilja allt brjóta og bramla.
HALLDÓR ÞORSTEINSSON,
Rauðalæk 7,
Reykjavík.
Að fá ofbirtu í aug-
un af Norðurljósum
Frá Halldóri Þorsteinssyni:
Halldór
Þorsteinsson