Morgunblaðið - 20.05.2004, Page 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 49
Stækkun ESB
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi frá Andrési Péturssyni, for-
manni Evrópusamtakanna:
„Vegna greinar sem undirritaður
sendi inn og Morgunblaði birti
mánudaginn 3. maí til að vekja at-
hygli á fundi um stækkun Evrópu-
sambandsins og íslenska útrás skal
tekið fram að efni hennar var að
mestu byggt á texta sem birtist í
fréttabréfi Evrópusamtakanna
nokkrum dögum síðar. Það efni var
að mestu skrifað af Signýju Sigurð-
ardóttur, ritstjóra fréttabréfsins, og
hefði hún því einnig átt að vera titluð
sem höfundur greinarinnar. Þetta
var handvömm af minni hálfu og vil
ég því koma þessari leiðréttingu á
framfæri.“
Touran sjö sæta
Ranglega var sagt í umfjöllun um
Toyota Corolla Verso í blaðinu í gær
að Volkswagen Touran væri fimm
sæta. Hið rétta er að hann er sjö
sæta. Leiðréttist það hér með.
Nafn misritaðist
Þau mistök urðu í Fasteignablaði
Morgunblaðsins mánudaginn 17. maí
að föðurnafn Elsu Valdimarsdóttur
misritaðist í myndatexta. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Fyrirlestur vegna meistaraprófs í
verkfræðideild HÍ verður á morg-
un, föstudaginn 21. maí kl. 16, VR-
II, stofu 158. Reynir Sævarsson,
meistaranemi við umhverfis- og
byggingarverkfræðiskor verk-
fræðideildar Háskóla Íslands, mun
flytja fyrirlestur sem hann nefnir:
Greining á Skerjafjarðarveitu.
Greining er gerð á uppbyggingu og
rekstri Skerjafjarðarveitu, sem er
suðurhluti fráveitukerfis Reykjavík-
urborgar. Mæligögn sem safnað hef-
ur verið í kerfinu eru greind. Hermi-
líkan af rekstri þriggja stærstu
dælustöðva veitunnar er sett upp og
það kvarðað með mæligögnum. Lík-
anið er notað til að besta rekstur
dælustöðvanna og til að kanna hag-
kvæmni ýmissa breytinga á rekstri
og útfærslu kerfisins. Spáð er fyrir
hvernig kerfið muni bregðast við
auknu rennsli vegna nýrrar byggðar
á veitusvæðinu o.fl.
Verkefnið er unnið í samstarfi við
starfsmenn Gatnamálastofu Reykja-
víkurborgar, sem einnig styrkir
verkefnið. Leiðbeinandi Reynis er
Sigurður M. Garðarsson, dósent í
verkfræðideild, meðleiðbeinandi er
Hafsteinn Helgason, ráðgjafarverk-
fræðingur hjá verkfræðistofunni
Línuhönnun. Prófdómari er Jónas
Elíasson, prófessor í verkfræðideild.
Fundur um fjölmenningu Menn-
ingarmálanefnd Reykjavíkurborgar
boðar til opins fundar um fjölmenn-
ingu með fulltrúum innflytjenda, í
Iðnó, á morgun, föstudaginn 21. maí
kl. 17.15.
Tilgangur fundarins er að hlusta á
raddir innflytjenda og nýta ábend-
ingar þeirra til að efla þjónustu
menningarstofnana borgarinnar í
þágu fjölmenningarlegs samfélags.
Ennfremur verður þátttaka innflytj-
enda í menningarlífi borgarinnar
rædd og hvernig menningarstofn-
anir og menningarmálanefnd borg-
arinnar geta virkjað mannauð
þeirra. Fundurinn fer fram bæði á
íslensku og ensku. Fundurinn, sem
haldinn er á alþjóðlegum fjölmenn-
ingardegi UNESCO, er öllum opinn.
Á MORGUN
VERKFRÆÐISTOFA Austurlands
mun hanna hitaveitu fyrir Eskifjörð.
Bæjarráð Fjarðabyggðar lagði til
grundvallar forval, þar sem sex völd-
um verkfræðistofum var boðið að
taka þátt, en þær voru AVA ehf.,
Fjarhitun hf., Hönnun hf., Tækni-
þing Húsavík/Útrás, Verkfræðistofa
Austurlands ehf. og VST hf.
Talið er að kostnaður við hönnun
hitaveitunnar geti numið allt að tíu
milljónum króna og er reiknað með
að framkvæmdir hefjist á árinu.
Hanna hitaveitu
fyrir Eskifjörð
ÍÞRÓTTIR og hreyfing er þema árlegrar svarthvítrar ljósmynda-
samkeppni sem ljósmyndavöruframleiðandinn Agfa stendur fyrir. Á síð-
asta ári hlaut Gréta Guðjónsdóttir ljósmyndari fyrstu verðlaun í sam-
keppninni og prýðir verðlaunamynd hennar, „Gaukur í lauginni“, dagatal
og ýmsar framleiðsluvörur Agfa í ár. Hlaut Gréta Leica M7-myndavél í
verðlaun.
Agfa er einn stærsti framleiðandi ljósmyndavara í heiminum og er sam-
keppnin opin ljósmyndurum alls staðar að. Á síðasta ári voru yfir 5000 ljós-
myndir sendar í keppnina. Verðlaunamyndirnar verða valdar af al-
þjóðlegri dómnefnd, en síðasti dagur til að póstleggja ljósmyndir er 28. maí
næstkomandi. Veitt verða 30 verðlaun og viðurkenningar en þrenn helstu
verðlaunin eru Hasselblad-myndavélar. Upplýsingar um samkeppnina og
umsóknareyðublað má finna á vef Agfa: www.agfa.com/photo/multicont-
rast-competition/invitation/
Verðlaunamynd Grétu Guðjónsdóttur úr ljósmyndasamkeppni Agfa í
fyrra, myndin Gaukur í lauginni, prýðir dagatal og framleiðsluvörur Agfa í
ár.
Svarthvít samkeppni
LAX-á ehf. og Agn ehf. ætla að
styrkja Barna- og unglingageðdeild
Landspítalans – BUGL með því að
efna til söfnunar á vefnum agn.is.
Lax-á ehf. og agn.is ætla að halda
úti verslun á vefnum 20.–31. maí þar
sem vörur frá ýmsum fyrirtækjum
verða til sölu. Mun fólk geta fengið
vörurnar sendar heim með afslætti
og rennur allur ágóðinn til þessa
málefnis. M.a. verður hægt að kaupa
veiðileyfi á vatnasvæði Lýsu 20.–30.
júní og mun allur ágóðinn renna til
BUGL, segir í fréttatilkynningu.
Styrkja BUGL
með sölu
á vef sínum
Laugavegi 32 sími 561 0075
sumarskolinn.is
sumarskolinn.is
Höfum fengið til sölu Borgartún
28. Um er að ræða eftirsótt
skrifstofu- og verslunarhúsnæði
á 1. og 2. hæð auk kjallara,
samtals alls 600 fm.
Til sölu er byggingarréttur á
bakhluta lóðar fyrir 6 hæða
skrifstofu- og verslunarhúsnæði
samkvæmt samþykktu deili-
skipulagi.
Skrifstofu- og verslunarhúsnæði
Teikningar og skriflegar umsagnir
fást afhentar á skrifstofunni.