Morgunblaðið - 20.05.2004, Side 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 57
Nánari upplýsingar á www.isisport.is
Nýttu eigin orku og vertu með!
Í tilefni að fyrirtækjakeppninni Hjólað í vinnuna 17. - 28. maí
F
A
B
R
IK
A
N
Safnast saman við Laugardalsvöll kl. 14:00
Dreifing happdrættismiða, félagar í hjólreiðasamtökum
veita góð ráð og sýna ýmis konar búnað. Lestin leggur
af stað í lögreglufylgd kl. 14:30.
Dagskrá á Ingólfstorgi
Lestarstjórar flytja ávörp:
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra, Ellert B. Schram
forseti ÍSÍ og Kolbrún Halldórsdóttir þingkona.
Heppinn hjólagarpur vinnur glæsilegt reiðhjól frá Erninum.
Umsjón:
ÍSÍ (Ísland á iði), Landssamtök hjólreiðamanna, Íslenski
fjallahjólaklúbburinn, Hjólreiðafélag Reykjavíkur og
Hjólreiðanefnd ÍSÍ.
Hjolalestin
MIKE Skinner snýr aftur með
þemaplötu. Þetta er engin rokk-
ópera með há-
stemmdum sögu-
þræði heldur
indírappsögur af
strætinu. Þótt lög-
in standi vel fyrir
sínu virkar platan
best sem heild, allavega í fyrstu
þegar hlustandinn er að kynnast
henni. Mikil gleði er fólgin í því að
uppgötva að platan tengist öll en
ekki er hægt að segja of mikið frá
söguþræðinum án þess að spilla fyr-
ir. Við sögu koma gaurinn Mike,
kærastan Simone og vinirnir Dan
og Scott. Helstu aukahlutir eru sófi,
sjónvarp (bilað), gras, farsími (batt-
eríslaus eða lélegt samband) og
þúsund pund (týnd).
Lögin hafa öll grípandi viðlag
sem auðvelt er að læra. Taktarnir
einfaldir og í stíl við það sem heyrð-
ist á frumrauninni Original Pirate
Material nema tónlistin er fjöl-
breyttari í þetta sinn. Fyrstu tónar
plötunnar eru dramatískir, í laginu
„It Was Supposed to Be so Easy“,
sem fjallar um hversdagsdramatík á
borð við að gleyma mynddiskinum
heima hjá þér og fara með tómt
hulstur í vídeóleiguna. Góð kynning
á því sem koma skal.
Það er meira að segja ballaða á
plötunni, „Dry Your Eyes“. Ótrú-
lega fallegt lag með melódískum
strengjum og gítar sem segir á inni-
legan hátt frá sambandsslitum
(ástæðan gefin upp í lögunum á
undan).
Síðasta lagið „Empty Cans“ er
frábært, í raun tvískipt lag með
tveimur endum á sögunni. Á síðari
hlutanum er tónninn mýkri og pí-
anó búið að bætast við.
Flæði er ekki það sem er Mike
efst í huga í rappinu en það eykur
bara á einlægnina. Hann notar
tungumálið á skemmtilegan hátt,
stundum með því að breyta eðlileg-
um takti til að leggja áherslu á mál
sitt.
Platan er ekki fyrir þá sem eru
fastir í tónlistarlegum kassa og vilja
ekki fara út fyrir sitt rokk eða hipp
hopp. Þetta er plata sem er ekki
auðvelt að negla niður í ákveðinni
tónlistarstefnu og er án efa sú besta
sem ég hef heyrt á þessu ári.
Tónlist
Sögur af
strætinu
THE STREETS
A Grand Don’t Come for Free
Inga Rún S igurðardóttir
BRITNEY Spears yfirgaf í skyndi
sviðið þegar tónleikum hennar
var að ljúka í Berlín í Þýskalandi
á dögunum. Hún táraðist og hélt
inn í bifreið sem beið hennar fyrir
utan tónleikastaðinn. Á meðan
voru hljóðfæraleikarar enn á svið-
inu að ljúka síðasta laginu á dag-
skránni. Hún hélt beint á hótel í
borginni og hunsaði aðdáendur
sem biðu fyrir utan. Ástæðan fyr-
ir þessari uppákomu er sú að
Britney hefur verið harðlega
gagnrýnd fyrir að þykjast syngja
mestan part þeirra tónleika sem
hún hefur haldið.
Hún beið því óþreyjufull eftir
því að ljúka tónleikaferðalaginu
og halda heim til sín. Hún hefur
nú þegar frestað tónleikaför í
Suðaustur-Asíu. Unnusti hennar,
Kevin Federline, hefur dvalið með
henni stærstan hluta tónleikaferð-
arinnar í Evrópu, en parið hefur
meðal annars sést sletta úr klauf-
unum í Amsterdam og Malaga.
Britney Spears gagnrýnd fyrir að þykjast syngja á tónleikum
Reuters
Britney Spears á sviði.
Táraðist á sviðinu