Morgunblaðið - 20.05.2004, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
UM 480 starfsmenn starfa hjá íslensku bönk-
unum á erlendri grundu. Þar af eru liðlega 400
starfsmenn KB banka í níu löndum en um
helmingur þeirra er starfs-
menn bankans í Svíþjóð. Að
auki starfar fjöldi starfs-
manna bankanna á Íslandi
að útrásarverkefnum bank-
anna og má því áætla að vel
á sjötta hundrað manns
starfi að útrás bankanna.
Alls eru starfsstöðvar
bankanna erlendis þrettán
talsins. Íslandsbanki, Landsbanki og KB banki
hafa allir komið sér upp starfsstöðvum í Lond-
on og Lúxemborg. KB banki hefur farið víðar
og er hann einnig með starfsemi á öllum Norð-
urlöndunum, í Sviss og New York í Bandaríkj-
unum.
Á sjötta hundrað
manns starfa við
útrás bankanna
Hundruð/6B
SAMTÖK banka og verðbréfafyrirtækja (SBV)
gagnrýna lánveitingar lífeyrissjóðanna til
sjóðfélaga í ársskýrslu sinni og í nýlegum bréf-
um til bæði fjármálaráðherra og efnahags- og
viðskiptanefndar Alþingis.
Í bréfi til efnahags- og viðskiptanefndar
bendir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri
SBV, á að á hinum Norðurlöndunum tíðkist
ekki að lífeyrissjóðir standi í lánveitingum til
sjóðfélaga. „Ástæður þess eru ýmist að þeim sé
það beinlínis bannað eða að slíkum lánum séu
sett jafnströng skilyrði og gerð eru til annarra
lánastofnana, sem aftur veldur því að lífeyr-
issjóðirnir hafa ekki talið forsvaranlegt að
fara í samkeppni á þeim markaði. Það hefur
ekki háð þeim á nokkurn máta í fjárfestingum
sínum og því engin rök, sem stundum hafa
heyrst hérlendis, að þetta sé mikilvægur þátt-
ur í fjárfestingarstefnunni,“ segir í bréfinu.
Lúta ekki sömu reglum
Þar er jafnframt bent á að lífeyrissjóðir lúti
ekki sömu ströngu skilyrðum og bankar og
sparisjóðir um lánastarfsemi. Þá séu lífeyr-
issjóðir undanþegnir tekjuskattsskyldu og hafi
því bæði aðgang að ódýrara fé, sem skekki
samkeppnisstöðu, auk þess sem til þeirra séu
ekki gerðar jafnstífar kröfur um fagmennsku
við lánveitingar og gildi um viðskiptabanka og
sparisjóði. Í bréfi til fjármálaráðherra segir að
SBV telji brýnt að lokað verði fyrir heimildir
lífeyrissjóðanna til sjóðfélagalána eða þeim
skorinn mun þrengri stakkur.
SBV gagnrýna lán-
veitingar lífeyris-
sjóða til sjóðfélaga
Telja lífeyrissjóðslán/B4
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær
fertugan karlmann, Stefán Aðalstein Sig-
mundsson, í tveggja ára fangelsi fyrir aðild
sína að hinu svokallaða Skeljungsráni sem
framið var af þremur mönnum 27. febrúar
1995.
Ákærði var fundinn sekur um að hafa í fé-
lagi við annan mann, sem nú er látinn, hrifsað
tösku með 6 milljóna króna uppgjöri olíufé-
lagsins Skeljungs af tveimur starfsstúlkum
þess við Íslandsbanka í Lækjargötu, eftir að
hafa slegið aðra þeirra í höfuðið með slökkvi-
tæki svo að hún féll í götuna.
Við ákvörðun refsingar var tillit tekið til
þess að langt er liðið frá brotinu. Auk fangels-
isrefsingar var ákærði dæmdur til að greiða
Sjóvá-Almennum tryggingum 5,7 milljónir
króna í skaðabætur.
Málið dæmdi Pétur Guðgeirsson héraðs-
dómari. Verjandi ákærða var Sigmundur
Hannesson hrl. og sækjandi Kolbrún Sævars-
dóttir saksóknari hjá ríkissaksóknara.
Dæmdur í 2 ára
fangelsi fyrir
Skeljungsránið
YNGSTI einstaklingur sem
komið hefur á barna- og ung-
lingageðdeild Landspítala með
lystarstol var 10 ára, að því er
fram kom í svari heilbrigðisráð-
herra á Alþingi við fyrirspurn
Guðrúnar Ögmundsdóttur.
Þeir sem veikjast af átröskun
eru fyrst og fremst ungar konur
á aldrinum 15–24 ára en átrösk-
unartilfellum hjá þeim sem eru
eldri, þ.e. 28–50 ára, hefur einn-
ig fjölgað á allra síðustu árum.
Um einn af hverjum 20 lystar-
stolssjúklingum er drengur.
Ekki er vitað um heildarfjölda
þeirra sem veikst hafa af átrösk-
un á Íslandi á liðnum árum en í
svarinu kemur fram að reiknað
er með að tíðni hér á landi sé
svipuð og í Vestur-Evrópu. Það
þýðir að 24 ný tilfelli af lystar-
stoli og 36 tilvik af lotugræðgi
komi upp hér á landi á ári./27
10 ára með
lystarstol
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hef-
ur komist að þeirri niðurstöðu að
lög um innherjaviðskipti hafi ekki
verið brotin þegar fruminnherjar
í Eimskipafélagi Íslands keyptu
bréf í félaginu um miðjan janúar
sl., skömmu eftir að sala þess á
Útgerðarfélagi Akureyringa,
Haraldi Böðvarssyni og Skag-
strendingi hafði verið tilkynnt.
Sama dag og viðskipti innherj-
anna fóru fram fjárfesti Eim-
skipafélagið síðan í fyrirtæki í
Noregi.
Viðskiptunum var af Kauphöll
Íslands vísað til umfjöllunar Fjár-
málaeftirlitsins en þeir aðilar sem
áttu þarna hlut að máli voru Sam-
son Global Holdings, sem er í eigu
Björgólfsfeðga og Magnúsar Þor-
steinssonar, og tveir þáverandi
stjórnarmenn í Eimskipafélaginu,
þeir Þórður Magnússon og Bald-
ur Guðnason. Þá seldu sama dag
tveir stjórnendur Haraldar Böðv-
arssonar hluti sína í félaginu.
Gagnrýnt
af bönkunum
Upp úr miðjum janúar sl. var
greint frá gagnrýni greiningar-
deilda banka á þessi viðskipti. Í
Hálffimmfréttum KB banka 15.
janúar sagði m.a.: „Í kjölfar sölu
Eimskipafélagsins á HB og ÚA á
yfirverði hafa innherjar keypt
töluvert magn í dag. Þetta verður
að teljast sérstaklega bagalegt í
ljósi þess að fremur litlar upplýs-
ingar hafa verið gefnar um söluna,
t.d. vita markaðsaðilar ekki
hversu mikið af skuldum félagsins
fylgja hinum seldu hlutum. Raun-
ar verður að teljast undarlegt að
félagið skuli ekki vera á athugun-
arlista Kauphallarinnar, þar sem
ómögulegt er að átta sig á hvernig
félag Eimskipafélagið verður í
framtíðinni og hvort yfir höfuð
það verður til, eftir umfjöllun und-
anfarinna daga.“
Fjármálaeftirlitið um umdeild innherjaviðskipti
Kaup í Eimskip
ekki brot á lögum
♦♦♦
♦♦♦
FJÖLDI fólks lagði leið sína á Austurvöll um
hádegi í gær þar sem efnt var til fjöldafundar
undir yfirskriftinni Stöndum vörð um lýðræð-
ið. Áhugahópur um virkara lýðræði boðaði
fundinn en hópurinn telur leikreglur lýðræð-
isins ekki vera virtar hér á landi. „Lýðræði
byggist á umræðum, gagnsæi, ábyrgð, virð-
ingu og trausti. Íslensk stjórnvöld sniðganga
lýðræðislega umræðu í hverju málinu á fætur
öðru og beita handafli til að koma fram mál-
um,“ segir í ályktun frá hópnum.
Fundarmenn þöndu dómaraflautur og hófu
upp rauð spjöld en fundarstjóri minntist á að
lýðræðið myndi kannski virka betur ef Ís-
lendingar eyddu jafnmiklum tíma í að virkja
það eins og þeir eyða í íþróttir.
Ólafur Hannibalsson flutti ávarp þar sem
hann ávítaði forsætisráðherra fyrir vinnu-
brögð í kringum fjölmiðlafrumvarpið og
hvatti forseta Íslands að nýta málskotsréttinn
og leyfa þjóðinni að greiða atkvæði um málið.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hvatt til lýðræðis
ALGENGARA er að konur slasi sig við hesta-
mennsku en karlar, og eru hestakonur sem
slasast mun yngri en karlarnir. Þetta er meðal
þess sem kemur fram í grein eftir Brynjólf
Mogensen, sviðstjóra lækninga á slysa- og
bráðasviði, og Magnús Pétursson, forstjóra
Landspítala – háskólasjúkrahúss, sem birt er í
Morgunblaðinu í dag.
Alls komu 1.022 einstaklingar á slysa- og
bráðamóttöku LSH með áverka sem tengjast
hestamennsku á einhvern hátt á tímabilinu
1999–2003, eða rúmlega 200 manns á ári. Þess-
ir 1.022 einstaklingar voru með 1.457 áverka.
Algengastir voru áverkar á höfði og hálsi eða
308 og voru 286 áverkar á mjöðm og læri.
Kvið- og bakáverkar voru 184, 175 slösuðust á
úlnlið og hendi og áverkar á brjóstkassa 147.
Rúmlega 8% þeirra sem slösuðust, eða 86 á
tímabilinu, þurftu að leggjast á sjúkrahús
vegna meiðsla sinna og var rúmlega fjórð-
ungur þeirra með mikla eða þaðan af meiri
áverka. Tveir létust af áverkum sínum.
Brynjólfur og Magnús segja þessi slys allt of
mörg og of algeng. Konum sé hættara í hesta-
mennsku en körlum, en því sé öfugt farið í
flestum öðrum tegundum slysa. Á tímabilinu
komu 579 konur og 443 karlar með áverka á
slysa- og bráðadeild LSH. Slys meðal kvenna
koma oftast fyrir á aldrinum frá tíu ára til þrí-
tugs og eru algengust í aldurshópnum 15–19
ára. Karlarnir slasast mest um miðjan aldur.
Konur slasa sig oftar á hestbaki en karlar
Fækka má/33