Íslendingaþættir Tímans - 25.10.1968, Side 3

Íslendingaþættir Tímans - 25.10.1968, Side 3
ÞÓRÐUR H. JÓHANNES50N verkstjóri Vinur minn Þórður H. Jóhann- esson, verkstjóri hjá Olíufélaginu h.f. lézt hinn 15. ágúst sl. 75 ára að aldiri. Jarðarför hans fór fram ‘þann 23. ágúst að viðstöddu fjöl- menni. Þórður H. Jóhannesson var Reyk víkingur í báðar ættir og í húð og hár. Hann var fæddur 17. júld 1893 í Aðalstræti 9 og voru for- eldrar hans Jóhannes Sigurðsson firá Steinshúsi (þar sem Vélsmiðj-- an Hamar er nú) og kona hans Jónína Rósenkranzdóttir frá Mels- húsum. Þórður fluttist með foreldrum sínum til Viðeyjar árið 1916. Hann kvæntist Solveigu Sigmundsdóttur írá Hafnarfirði árið 1918 og áttu þau hjón heimili í Viðey í rúm 20 ár. Ég kynntist þeim lijónum árið 1929, er ég var um tíma við vél- gæzlu hjá útgerðarfélaginu Kára h.f .í Viðey. Hið íslenzka steinolíu- hlutafélag hafði látið byggja olíu- geymi í Viðey og vorið 1930 kom fyrsta skipið, sem losaði benzín í geyminn. Benzínið var svo flutt í tunnum til Reykjavikur á stórum °Pnum bátum. Þórður tók við því starfi að fylla á tunnur og afgreiða frá geyminum. Seinna tók, eins og kunnugt er, Olíufélagið h.f. yfir starfsemi HÍS og hinn ágæti og samvizkusami starfsmaður Þórður Jóhannesson fylgdi að sjálfsögðu nieð. Þórður var mjög vel látinn mað- Ur og vann sér hylli húsbænda jafnt sem samstarfs- og undir- öianna. Hann var dagfarsprúður ttiaður, en jafnan glaður og reifur °g átti létt með að sjá hinar spaugi legri hliðar lífsins og glaðværð hans var hrein og smitaði þá, sem með honum unnu. Þórður var hjálpsamur maður og greiðvikinn en fastur fyrir og lét ekki hlut sinn fyrir neinum, ef því var að shipta. Hjá Olíuféjaginu starfaði hórður til dauðadags og vissi ég aÖ hann var mjög þakklátur stjórn ÍSLENDINGAÞÆTTIR endum félagsins fyrir hlýhug og hugulsemi er þeir sýndu honum í þeim veikindum, sem hann átti við að striða síðustu árin. Þórður var hrókur alls fagnaðar þar sem menn komu saman til að gera sér glaðán dag í vinaiiópi. Var hann hinn mesti aufúsugestur enda söngvinn mjög og hafði ó- venju sterka og hljómíþýða rödd. Þórður varð fyrir því slysi að missa ungur aðra hendina. Þann miJSi bar hann með hinni mestu karlmennsku og lét ekki aftra sér í starfi. Þrátt fyrir handarmissinn handlék Þórður byssu af mestu leikni, var afbragðsskytta og marg ar ánægjulegar stundir áttum við saman í Viðey ,þegar við fórum á fuglaveiðar með byssu í hönd. í þeirri íþrótt munu fáir hafa stað- ið Þórði á sporði, þótt báðar hend- ur hefðu. Þórður H. Jóhannesson átti ,því láni að fagna að eiga hina ágæt- ustu konu og var sambúð þeirra hjóna hin ástríkasta. Eignuðust þau 5 börn, sem öll eru á lífi, hið myndarlegasta og duglegasta fólk. Þessar fáu og fátæklegu línur eiga að vera örlítill þakklætisvott- ur til þessa ágæta vinar míns, sem ég sakna sárt — en sárast þó þeg- ar ég heyri glatt fólk koma sam- an til að taka lagið. Með þessu skrifi gefst mér líka tækifæri til að votta samúð okkar hjóna og okkar fjölskyldu hinni ágætu vin- konu okkar Solveigu Sigmunds dóttur og börnum hennar og þeirra fjölskyldum. Guð blessi ykk ur öll. Karl Guðmundsson. f Þórður H. Jóhannesson frá Við- ey lézt 15. ágúst s.l. Hann var fædd ur í Reykjavík 17. júlí 1893, og var því rúmlega 75 ára. Þórður var hið mesta hraustmenni, þar til fyrir nokkirum árum að hjarta- sjúkdómur tók að herja á hann, og þó hann að lokum félli fyrir þessum sjúkdfhni, stundaði hann störf sín nær óslitið allt til dauða- dags. Þórður var starfsmaður hjá Olíufélaginu h.f. frá því að það hóf starfsemi sína í janúar 1947 síðustu árin sem verkstjóri. Áður starfaði hann að mestu leyti hjá Hinu ísl. Steinolíuhluafélagi, i Við ey árin 1916 til 1939 og í Reykja- vík þar til hann gerðist starfsmað- ur Olíufélagsins. Þórður hofur því óneitanléga starfað lengur við olíuverzlun en nokkur annar maður fram til þessa dags. Þórður var um árabil formaður starfsmannafélags Olíu- félagsins og, rækti hann það starf með sömu kostgæfni og önnur störf, er honum voru falin. Húsbændur Þórðar fyrr og síðar höfðu hinar mestu mætur á hon- um, sakir trúmennsku og mann- kosta enda voru honum falin marg vísleg umsjócarstörf. Fyrir rúmum 50 árum sté 3

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.