Íslendingaþættir Tímans - 25.10.1968, Blaðsíða 13

Íslendingaþættir Tímans - 25.10.1968, Blaðsíða 13
gengið til starfa með heilli og ein- lægard hug og dýpri löngun til að láta gott af sér leiða en séra Ás- munduir Guðmundsson. Séra Ásmundur á fjölda vina Um allt land, ekki sízt gamla nem- endur, bæði frá Eiðum, úr Há- skóla íslands og Kennaraskólan- um, þar sem hann kenndi krist- in fræði um árabil. Kvæntur er séra Ásmundur Steinunni Magnúsdóttur, prófasts að Gilsbakka í Borgarfirði. Koma þar saman tvær göfugar höfðingja ættir. Frú Steinunn er fágætlega glæsileg kona. Öndvegis húsmóðir og móðir. Þau hjón eignuðust sjö börn. Þrjár dætur og fjóra syni. Þar af eru þrír læknar. Öil vel menníuð og mannkostafólk. Ekki efa ég, að margir hlýir straumar leiki um þau hjón og fjölskyldu þeirra á Laufásveg 74 á þessum tímamótum. Sjálfur þakka ég séra Ásmundi og þeim hjónum báðum nærri hálfrar aldar vináttu og góð vild og bið guð að blessa þau bæði það sem eftir er ævikvöldsins, sem ég vona að verði bæði friðsælt og fagurt. Hannes J. Magnússon. Afmæliskveðja frá Eiðaskóla. 6. okt. varð einn af merk- ismönnum lands vors, séra Ás- mundur Guðmundsson, fyrrver- andi biskup. Hann er alþjóð kunn- ur fyrir hið mikla starf, sem hann hefur innt af hendi á sviði trú- móla og skólamála. Mun ekki reynt að gera grein fyrir því öllu hér, aðeins minnt á þann þáttinn, sem ennþá kemur mörgum Austfirð- ingi fyrst í hug, þá er séra Ás- mundur er nefndur. Á árunum 1918—19 vair niður lagðuir búnaðarskóli sá, er starf- að hafði á Eiðum á Fljótsdalshér- aði frá árinu 1883, en jafniframt stofnaður þar nýr skóli, Alþýðu- skólinn á Eiðum. Var hann sett- ur þann 20. okt 1919 og hefur starfað óslitið síðan allt til þessa dags. Fyrsti skólastjóri „EiðaskóLa hins nýja“, eins og Alþýðuskólinn var þá stundum nefndur, var skip- aður séra Ásmundur Guðmunds- son, þá prestur i Stykkishólmi, Helgafellsprestakalli. Það kom að sjálfsögðu einkum í hlut hans og konu hans, frú Steinunnar Magn- úsdóttur, að marka stefnu Alþýðu skólans og móta nemendur hans fyrstu starfsárin. Ávarpsorð séra Ásmundar við skólasetningu haust ið 1919 voru þessi: „Ó, Guð vors lands, ó lands vors Guð“. Þessi á- varpsorð urðu síðan einkunnarorð skólans, mörkuðu stefnu hans og settu einkenni sitt á flesta þá nemendur, sem skólann sóttu. Það voru mörg vandamál og miklir erfiðleikar, sem biðu prests ins úr Stykkishólmi og konu hans á Eiðum. Ekki skal sú barátta og það mikla starf leyst sundur og rakið hér. En hitt stendur óhagg- að, að meðfæddar gáfur, ásköpuð atorka og samheldni þeirra hjóna le.ystu allan vanda á farsælan liátt. Um það bera vitni fjölmargir nem endur og aðdáendur um Austfirði alla og raunar um landið þvert og endilangt. Það er mikils virði fyrir upp- eldis- og menntastofnun, að þar haldi um stjórnvöl sannur maður og einlægur. Það var því mikil gæfa fyrir Eiðaskóla, að séra Ás- mundur Guðmundsson valdist til þess hlutverks að veita Alþýðuskól anum forstöðu. Sú saga, sem hann og samstarfsmenn hans sköpuðu á Eiðum fyrir tæpum 40 árum, mótaði fjölda einstaklinga og gerði þá að betri mönnurn. Enn er skóli settur að Eiðum, ennþá logar glatt á kyndlinum. Margt hefur þó breytzt á þessum þrjátíu og níu árum, en einn er samur: „Guð vors lands“. Hann er kjarninn og kjölfestan í skóla- starfinu enn í dag og svo mun vonandi verða meðan skólasaga er skráö á Eiðum. Eiðaskóli óskar Ásmundi Guð- mundssyni allra heilla á áttræðis- afmælinu, og þeim hjónum báðum þakkar skólin.n stairf og tryggð um langan aldur. Friður Guðs sé með ykkur. Þorkell St. Ellertsson, skólastj .Eiðum. ÍSLENDINGAÞÆTTIR 13

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.