Íslendingaþættir Tímans - 25.10.1968, Blaðsíða 19
grét húsfreyja að Eyvindará á
Fljótsdalshéraði og Kristín, hús-
freyja að Hríshóli í Reykhólasveit.
Þórólfur er fæddur 4. nóv. 1905
að Mýri í Bárðardal, sonur hjón-
anna Jóns bónda þar Karlssonar
Friðrikssonar bónda á Stóruvöllum
í Bárðardal og Aðalbjargar Jóns-
dóttur Jónssonar bónda á Mýri.
Á Mýri var jafnan fjölmennt
heimili, gestkomur tíðar einkum á
sumrin og mikil kynni við inn-
lenda og erlenda ferðamenn, sem
lögðu leið sína yfir Sprengisand og
voru ýmsir lærdómsmenn marg-
fróðir. Varð sú kynning til menn-
ingar.
Sönglist var mikið iðkuð á þeim
bæ og er Mýrarættin miklum söng-
hæfileikum búin meðal annarra
góðra gáfna. Má í því sambandi
nefna: Pál H. Jónsson kennara á
Laugum, fyrrv. ritstjóra Samvinn-
unnar, og Áskel Jónsson söngstj.
á Akureyri. Þeir eru bræður Þór-
ólfs, en systkinin voru níu alls.
Guðrún og Þórólfur eiga sex
börn. Þau eru í aldursröð talin:
1. Aðalsteinn bóndi í Stórutungu
II. (nýbýli), giftur Guðrúnu Jón-
mundsdóttur frá Reykjavík,
eiga sex börn.
2. Jón Sveinn bóndi Stóruvöll-
um, giftur - Sigríði Báldursdóttur
frá Stóruvöllum, — eiga 7 börn.
3. Þórdís Vilborg, gift Agli Jóns
syni frá Fögruhlíð í Suður-Múla-
sýslu, búa á Syðri-Varðgjá í Eyja-
firði, — eiga 8 börn.
4. Hrafnhildur, húsfreyja Landa
móti, Ljósavatnshreppi, heitbund
in Hermanni Sigurðssyni frá Ingj-
aldsstöðum í Reykdælahreppi, —
á eitt barn.
5. Ragnheiður, húsfreyja á Eski
firði, gift Guðna Þór Magnússyni
húsgagnasmið, — á 5 börn.
6. Gunnar bóndi Fellsenda í
Ljósavatnshreppi, giftur Þorgerði
Kjartansdóttur frá Víðikeri, — á
4 börn.
Aðalsteinn — elzta systkinið —
átti fertugsafmæli 31. maí þetta ár.
Og yngsta systkinið, Gunnar, átti
þríugsafmæli 13. marz í ár. Eru
því fern merkisafmæli í fjöl-
skyldu hjónanna í Stórutungu um
garð gengin á þessu ári.
Á jörðum Bárðdælahrepps inn
við öræfin er oft snjóléttara en
utar í héraðinu og þar vorar oft
fyrr, — einkum á bæjunum í dal-
botninum og í innlandinu fram
með Skjálfandafljóti. I hörðum vor
um var oft fyrrum, fé utan úr
sveitinni og jafnvel lengra að rek-
ið þannig til létta á fóðrum. Þar
bjargaði það sér sjálft undir eftir-
liti, því landið er mjög kjarngott
Stóratunga er landmikil jörð til
afréttar. Heimafyrir er skýlt. Við
bæinn er mjög sérkennilegt lands-
lag og álfaborgafegurð og þar er
leikið á vindhörpur í klettum
Tungulækur, sem er lítil á, fellur
við bæjarhlaðið með smáfossa-
klið og silungar spretta þar sporð
um.
Árið 1946 byggðu Stórutungu
hjónin íbúðarhús úr steini. Árið
1957 stofnaði Aðalsteinn sonur
iþeirra nýbýli, Stórutungu II, og
byggði íbúð ofan á fyrra húsinu.
Arið 1928 var Tungulækur virkj
aður fyrir bæinn. Árið 1955 endur-
byggði Þórólfur þá rafstöð. Og
1961 byggði Aðalsteinn Þórólfsson
aðra rafstöð við Tungulæk/vegna
síns heimilis.
Túnið í Stórutungu hefir verið
aukið í stórum stíl og heyaflinn
hefir vaxið að sama skapi.
Samvinna milli búanna er svo
mikil og góð, að utanaðkomandi
menn greina ekki á milli. Telur
Þórólfur sig njóta mikils í þeirri
samvimnu.
Þórólfur hefur verið heilsuveill
lengi. Hann hefur þjáðst af brjósk-
eyðingu í baki og gengur i bol.
Laus við sjálfshól segir hann að
mest sé konu sinni og bömum vel-
farnaðurinn í Stórutungu að þakka.
Þórólfur hafði upplag fyrir
að verða smiður, en atvik réði því,
að hann varð bóndi. Ekki virðist
hann hafa ástæðu til að harma það.
Gott er að vita sig hafa hæfileika
á fleiru en einu sviði, og hagleik-
’ur kemur bónda vel.
Þérólfur er félagslyndur maður,
hefur mikinn áhuga á hvers konar
framförum og er bjartsýnn. Hann
er gleðimótamaður og góður fé-
lagi. Orðfær fumdarmaður eins og ;
frændur hans fleiri. Það heiur kom
ið í hans hlut að gegna ýmsum
félagsmálastörfum. Hann hefur ver
ið í skólanefnd sveitar sinnar síð-
an 1942 og formaður hennar síð-.
an 1950. Beitti hann sér fyrir því,
að byggt var gott skólahús fyrir!
sveitina að Stóruvöllum. Fullnægir ;
það einnig félagsfaeimilisþörf!
byggðarinnar eins og sakir standa.
Beitti hann bæði kappi og forsjá'
til framgangs byggingarmálinu. Er
mér þetta kunnugt. Ég kynntist1
málinu allrækilega, því hann spar-
aði mig ekki sem þingmann hér-
aðsins við að veita sér aðstoð í
þágu þess, eins og auðvitað var ,
skylda mín.
Þórólfur hefur verið formaður
sjúkrasamlags Bárðdælinga síðan
1957.
í stjórn Búnaðarfélags Bárðdæla
hefur hann lengi verið og oft full-
trúi þess á fundum Búnaðarsam-
bands Suður-Þingeyinga.
í stjórn Bárðdæladeildar Kaup-
félags Þingeyinga á hann sæti og
hefir oft mætt sem fulltrúi hennaæ
á fulltrúaráðsfundum félagsins.
Lengi hefur hann verið formað-
ur Framsóknarfélags Bárðdæliriga
og setið kjördæmisiþing og flokks-
þing Framsóknarmanna.
Fleira mætti fram telja af félags-
málastörfum, en ég læt staðar num
ið.
Á sextugsafmæli Guðrúnar
Sveinsdóttur, 2. sept. s.l. var veizla
góð og mannfagnaður að Stóru-
tungu í Bárðardal.
Þessi sextuga, afkastamikla erf-
iðiskona úr landvarnarliði þjóðar-
innar kom til dyra ungleg og fríð,
eins og hún hefði aldrei drepið
hendi í kalt vatn.
Hógvær, alúðleg og háttvís fagn
aði hún gestum sínum.
fSLENDINGAÞÆTTIR
19