Íslendingaþættir Tímans - 25.10.1968, Blaðsíða 16

Íslendingaþættir Tímans - 25.10.1968, Blaðsíða 16
SJÖTUGUR: GUDMUNDUR £ HAGALÍN RITHÖFUNDUR Enginn vafi er á því, að Guð- mundur G. Hagalín er einn af önd- vegishöfundum okkar á þessari öld, og mörg teikn benda til þess, að síðari tímar muni meta hann enn meira en samtíðin. Um hann bafa staðið nokkrir stormar og skoðanir verið allskiptar um höf- undargildi hans. Hagalin er af- kastámikill, svo að firnum sætir, og komu sum ár 3—4 frumsamd- ar bækur eftir hann, en auk þess ritaði hann fjölda greina í blöð og tímarit. Slík afköst hlutu að sjálf- sögðu, að setja mark sitt á ritin. Enginn maður er slík ofurmenni, að allt sé fullskapað og ófágan- legt eftir fyrstu tök, en nostursem 5n drepur einnig ærið oft í dróma fleyga frásagnargleði, og vafasamt er að halda því fram, að Hagalín hefði orðið meiri eða betri höfund- ur. hefði hann látið harða nostur- semi 'og sjálfsgagnrýni velta marg- víslega hverri setningu fyrir sér. Vel má á það fallast, að flýtis- glapa gæti í ritum Hagalíns, og meiri vandvirkni hefði úr þeim bætt, en hætt er við, að það hefði vængstýft verk hans á margan veg. Hann segir frá eins og eðli hans knýr hann til verks og sá frásagnarháttur, sem er honum í merg runninn, hlýur að ráða ferð hans. Guðmundur Hagalín ritar sögur sínar af djúpri persónulegri inn- sýn í líf og gerð þjóðarinnar, og hann er mestur sögumaður ís- lenzkra höfunda á þessari öld. Hon um fór eins og svo mörgum öðr- um, sem leituðu um stund utar í nýjan söguheim, út fyrir eigin reynslusvið, að hann varð varla nema hálfur maður, en hann skildi nógu fljótt, að hann var kominn út fyrir sjálfan sig og leitaði inn- ar og heim aftur, og birtist þá samur og jafn og áður. Á honum sannaðist algild regla Rithöfund- ur, sem ritáð hefur snjöll skáld- 'verk, hlýtur að vera svo rótfast tré í þjóðlífsjarðvegi þeirra, að það beir aldrei nýja, fullþrosk- aða ávexti í öðrum urtagarði nýs forms eða annars reýnsluheims. Persónulegur reynsluheimur, lífið sjálft, skynjað í eigin lífsstríði er nauðsynlegur grunnur hvers skáld verks. Með ævisöguritun sinni hóf Guð mundur Hagalín gamla og þjóð- lega frásagnarlist í nýtt samtíðar veldi. Lítill vafi er á því, áð þess- ar sögur, og raunar allar beztu skáldsögur Guðmundar Hagalíns, verða æ því betur metnar, sem tímar líða. Þar er um að ræða ómetanlegan fjársjóð, óbrotgjarn- ar heimildir um líf þjóðarinnar, siðalögmál hennar, lífshættir og manngerðir, fjársjóð, sem vex að gildi með hverjum áratug. ví er ekki ólíklegt, að rithöfundarvegur Guðmundar G. Hagalín verði því meiri, sem lengra líður. Sá dóm- ur verður ef til vill felldur, þótt síðar verði, að hann hafi birt bet- ur og skýrar en aðrir líf þjóðar sinnar eins og það var í þann mund, sem hann komst til vits og ára. Guðmundur Gislason Hagalín er fæddur 10. okt. 1898 í Lokinhömr- um í Arnarfirði vestra, og varð því sjötugur á þessu ári. Foreldr- ar hans voru Gísli Kristjánsson, bóndi og skipstjóri í Lokinhömr- um, en móðir hans var Guðný Guð mundsdóttir frá Mýrum í Dýra- firði, annáluð gáfu- og gerðarkona. Að Guðmundi standa vestfirzkar bændaættir og er þar margt stór- gerðarmanna, sem sær og fjöll hafa meitlað í mynd sinni. Haga- lín ólst upp á vestfirzku myndar- heimili, þar sem hart var sótt til sjós og Iands, lifað í þeirri trú á guð og menn, sem samgróin var íslenzkum barningi fram á annan og þriðja tug aldarinnar. En bókin var heimilisvinur þar sem á fleiri íslenzkum heimilum um aldamótin. Guðný, móðir Haga- líns, var greind og bókhneigð og kunni íslenzk skáld, einkum Jónas og Grímf sögufróð mjög og hafði á valdi sínu vestfirZka frásagnar- snilli. Af þessum sjóði miðlaði hún og heimilið óspart, og í þessu uppeldi og fyrstu lífskynnum er vafalaust að leyta dýpstu rótanna í höfundargerð Hagalíns. Hagalín hefur og sjálfur minnzt gamallar og gáfaðrar sögukonu á heimilinu, er hann hafi numið af firn þjóð- sagna og ættarsagna, er hún sagði með fornlegu orðfæri og sérkenni legu. Auk þess segir Hagalín ein- hvers staðar, að sögur Jóns Trausta og Þorgils gjallanda hafi haft mikil áhrif á sig, en ekki er hægt að segja, að greinilegra á- hrifa gæti í verkum Hagalíns frá þessum höfundum, nema óbeinna. Sú æð, sem veitti Hagalín blóð, var af öðrum toga og sterkari en svo, þótt báðar væru jafníslenzk- ar, hin þingeyska og hin vest- firzka. Hagalín var elztur tíu systkina, og varð snemma að vinna hörð- um höndum, en þó var þrá hans til ritstarfa svo mikil, að flest annað varð að víkja, sem vikið gat, þegar eftir farmingaraldur. Efnahagur fjölskyldunnar breytt- ist til hins verra um þær mund- ir af völdum fiskleysis í vestfirzk um fjörðum fyrir togaraágang og veikindi herjuðu. Foreldrar tagalíns fluttust í þurrabúð í Hauka dal í Dýrafirði, og Hagalín hóf nám, fyrst þar heima, en næsta vetur að Núpi, síðar nam hann 'hjá séra Böðvari Bjarnasyni und- ir menntaskóla og tók gagnfræða- próf 1917. Hann stundaði sjó- róðra á sumrum og settist síðan í menntaskóla, en honum samdi ekki við námsaga skólans of vel, og varð rýr aflahlutur hans af náminu, eins og oft vill verða um þá, sem komnir eru út á sjálfstæða rithöfundarbraut. En Hagalín mun hafa verið mikill lestrarhestur og lesið vel góðar norrænar og ensk- ar bókmenntir. Annars feom Hagalín víða við á næstu árum, bæði í félagsmálum og blaðamennsku og var ritstjóri Austurlands og Austanfara á Seýð 16 fSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.