Íslendingaþættir Tímans - 25.10.1968, Blaðsíða 6

Íslendingaþættir Tímans - 25.10.1968, Blaðsíða 6
MINNING Benedikt Kristjánsson bóndi, Hólmgarði Trumban og lútan 1959, en þaC eru þýðingar á lj£«ðum Eskimóa, Afríkunegra og Kínvayia, mjög vel heppnuð bók og brautryðjenda verk. Á þessu ári kom út ljóða- bók, sem ber nafnið Við Sanda. Önnur ljóðabók er í prentun, svo og frásagnir úr Hvalfirði. Því Hall- dóra var sístarfandi við að safna þjóðlegum fróðleik og frásögum. Um skeið átti hún fasta þætti 1 sunnudagsblaði Tímans og var blaðinu mikill fengur að. Hún var ritstjóri Pennaslóða, en það var safnrit af sögum eftir konur. Þó líkamsþrek HaHdóru væri ekki mikið hin síðari ár réðist hún að áeggjan Stefáns Einarssonar, prófessors í það stórvirki að snúa hinu fornenska kvæði, Bjólfskviðu á íslenzka tungu. Það var ekki að- gengileigt verk, því fyrst þurfti hún að nema tyrfið fommálið. En þetta verkefni var henni mjög kær komið og vann hún að því öllum stundum, sem hún gat við komið, 6júk og heilbrigð, og á banasæng- inni var hún enn að fást við það, auk þess sem hún vann ab því hel- sjúk, að búa ljóðabók undir prent un. Hún fékk leyfi læknanna til að hafa hjá sér ritvél svo hún gæti unnið að hugðarefnunum með þeim litlu kröftum, sem gáfust hverju sinni. Ég fór með henni þeg ar hún fór heim til að sækja þá hluti sem hún vildi hafa hjá sér til að vinna að. Það var sárt til þess að hugsa, að þessi mikla hæfi leika og starfskona skyldi eiga svo nauman tíma til stefnu. Hún var svo á'hugasöm og átti svo margt ó- gert. Þó óbrúlegt sé gaf Halldóra sér töluverðan tíma til að sinna félags málum og var jafnan ágætur liðs maður, enda oft falin trúnaðar- 1 störf. Hún var í stjórn Rithöfunda félags íslands og formaður þess um skeið, fyrst kvenna á íslandi, sem rithöfundar veittu það trúnað 1 arstarf. í stjóm Menningar og frið arsamtaka íslenzkra kvenna og for maður þess félags tvö ár. Hún var fulltrúi Kvenréttindafélags íslands á landsfundum og mörg ár í rit- nefnd 19. júní, blaðs félagsins. Enníremur sá hún um dagskrár í útvarpi fyrir bæði þessi kvenna- sambönd. Og liðtækur félagi vaæ hún í kvæðamannaifélaginu Iðunni. Fundum okkar Halldóru bar fyrst saman fyrir ríílega tveim tug um ára, þegar ég var að safna efni í ársritið Emblu. Kom þá í ljós að Hinn 27. september s.l. andaðist Benedikt Kristjánsson, sem var bóndi á Hólmvaði í Aðaldal í Suð- ur-Þingeyjarsýslu lengi ævinnar. Benedikt var fæddur 25. 11. 1885 1 Brekknakoti í Reykjahverfi. Hann var þvi kominn hátt á áttugasta og fjórða árið, þegar hann dó. Frá Brekknakoti fluttist hann með for eldrum sínum að Hólmavaði vorið eftir að hann fæddist og átti þar heima tl æviloka. Foreldrar hans voru: Kristján Jónsson og kona hans Kristjana Flóventsdóttir. Kristján var fæddur 1839 að Helluvaði í Mývatnssveit, sonur Jóns Jónssonar bónda þar og konu hans Sigurlaugar Guðlaugsdóttur. þar var höfundur, sem gat lagt okkur Ið með gott efni. Kynni okkar urðu meiri með árunum og varð mór brátt ljóst, að Halldóra var sérstæður persónuleiki, sem fengur var að kynnast. Og hin síð- ari árin áttum við margar ánægju- legar stundir saman, í góðum hópi hjá Sigríði systur hennar, hús- freyju að Hávarsstöðum, á ferð um íslenzkar sveitir, í glöðum fé- lagsskap þar sem stökur flugu og á einmæli við kyrlátt rabb. Fáa hef ég þekkt jafnfljóta Halldóru að gera hina fleygu stöku eða gera betur. Henni virtist aldrei orðs vánt í rími, þegar hún var vel upp- lögð. Stökur hennar leiftruðu af lífi og græskulausri kímni. Og sár- þjáð kvað hún í sumar sér til kvala iéttis gamansamar tökur. „Mér leið miklu betur á eftir“, sagði hún brosandi þegar hún lét mig heyra. Það var gaman að ferðast með Halldóru um sveitir landsins, sveit in heilaði hana, átti hana. Hún afgirti skika í Draghálslandi, hlúði þar að lyngi og ræktaði skóg. Hún annaðist þennan reit sinn af þeirri natni, sem henni var svo eiginleg, og gaman var að eiga þar með henni stundir, hvort sem hún var Þau áttu margt barna. Tveir synir þeirra urðu bændur í Aðaldal: Guðni í Grímshúsum og Kristján á Hólmavaði. Kristjana var dóttir Flóvents bónda á Syðrisál í Ljósa- vatnshreppi Jónssonar blóðtöku manns Jónssonar. Meðal systkina hennar var Ámi bóndi 1 Hörgsdal í Skútustaðahreppi, faðir Helga, sem þar bjó lengi á eftir honum. Kristján bjó að Hólmavaði fyrst 1878—1884 og síðan 1886 til ævi- loka 1914. Benedikt Kristjánsson var stoð foreldra sinna við búskapinn strax og hann fékk aldur til- Hann taldi sig þó ekki fyrir jarðnæðinu með- an faðir hans lifði. Benedikt kvænt að gefa áburð um vor eða lesa ber um haust. Eina ferð fórum við um Norðurland þegar haustlitir voru fegurstir. Það var heilandi að fylgjást með hrifnæmi hennar af fögru og litríku landi. Hún tók litmyndir, kvað stökur og lék á als oddi. Og nú að leiðarlokum er þökk- in efst í huga. Þökkin fyrir að hafa átt þess kost að blanda geði við þessa fjölgáfuðu listakonu, fín gerða en þó sterka, réttsýna og heilbrigða í hugsun. Nú eru litir haustsins að daprast. Vetur mun brátt leggja þá undir fönn. Hún valdi sér sjálf hvílustað við lyng og mosa. Hvítt lín mun breiðast jdir gröf’ hennar. En að vori lifn- ar lyngið á ný og minniingarnar eru fjölærar. Halldóra mun lengi lifa í verkum sínum. Hennar vefð- ur jafnan gott að minnast. Megi það verða huggun dóttur hennar, sem sýnt hefur dæmaátt þrek þetta erfiða sumar. Um leið og ég votta henni og fjölskyldu hennar samúð mína get ég -ekki óskað henni annars betra en börnin henn ar fái í arf sem mest af fjölþætt- um gáum ömmu sinnar, góðvild henmar og réttsýni. Valborg Bentsdóttir. ó IslendingaþættiR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.