Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Side 1
2. TBL. — 2. ÁRG. FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1969. NR. 14
THOROLF SMITH
FRÉTTAMAÐUR
Thorolf Smith, blaðamaður, síð-
ustu árin starfsmaður á frétta-
stofu Ríkisútvarpsins, varð bráð-
kvaddur að heimili sínu Miklu-
braut 52 í Reykjavík, fimmtudag-
inn 16. janúar s. 1. Thorolf var
fæddur í Reykjavík 5. apríl 1917
og var 'því nær 52 ára að aldri, er
Itann lézt. Hann verður til grafar
borinn á morgun, laugardaginn 24.
jan.
Foreldrar Thorolfs voru Paul
Smith, verkfræðingur og fyrri
kona hans Oktavía Smith, fædd
Grönvold. Thorolf var því af
Uorskum ættum. Thorolf var bráð
þroska og gjörfulegur og góður
uámsmaður og varð stúdent frá
klenntaskólanum í Reykjavík 1935.
Síðan hélt hann til Noregs og
tók piróf frá verzlunarskóla í
Fjörgvin árið eftir, settist síðan
í Háskóla íslands og tók þar
heimspekipróf 1939 og fyrrihluta-
Próf í lögfræði við Háskóla ís-
lands 1940. Á þessum árum stund-
aði hann einnig frönskunám í
Belgíu og enskunám í Englandi
skamma hríð. Hann var ágætur
máiamaður.
Pegar hér var komið hætti hann
kins vegar föstu námi og kvæntist
1940 Liv Johnsen, dóttuir Jósefs
Johnsen skipstjóra í Björgvin, en
Þau skildu eftir stutta sambúð.
^au áttu einn son, Pétur, sem nú
er orðinn viðskiptafræðingur.
Árið 1940 réðst Thorolf frétta-
niaður til Ríkisútvarpsins og starf
aði í fréttastofunni til 1942. Þá
féðst hann blaðamaður til Alþýðu
blaðsins 1943 og vann þar til 1947
an fór þá til Vísis og vann þar
til 1956, er hann réðst aftur til
fréttastofu ríkisútvarpsins og
gegndi han oft fulltrúastörfum og
var um skeið staðgengill frétta-
stjóra.
Thorolf Smith var búinn mörg-
um hinum beztu kostum blaða-
manns. Hann var vel menntur til
þeirra starfa, málamaður ágæt-
ur, hafði víða farið, meðal ann-
ars starfað á skemmtiferða-
skipi Björgvinjar-gufuskipafélags-
ins Stella Polaris, í hnattferðum
og um suðurhöf. Hann var vel rit-
fær, afkastamaður til starfa, fróð-
ur vel, einkum um ýmis erlend
málefni og fylgdist vel með þeim.
Hann ritaði einnig nokkrar bæk
ur svo sem Af stað burt í fjarlægð,
ferðaminningar, sern út komu
1948, Til fiskiveiða fóru ævisögu
Geirs Sigurðssonar, skipstjóra
1955, Ævisögu Abrahams Lincoln
1959 og Ævisögu John F. Kenn-
edys. Hann þýddi einnig nokkrar
bækur.
Árið 1949 kvæntist Thorolf öðru
sinni Jóhönnu Guðmundsdóttur
firá Litlu-Brekku í Borgarhreppi
í Mýrarsýslu, mikilhæfri ágætis-
konu, sem istundaði þá nám í
læknisfræði, en hún lézt fyrir ald-
ur fram eftir þungbæran sjúk-
dóm árið 1955. Var það Thorolfi
mikið og þungt áfall, ekki sízt
vegna þess að þau áttu þrjú ung
börn, sem nú eru stálpuð, Einar
Pál, Hjördísi og Jóhönnu.
Árið 1956 kvæntisf Thorolf í
briðja sinn Unni Gísladóttur kenn
ara frá Borgarnesi- Hún reyndist
honum svo frábær og umhyggju-
samur lífsförunautur, að aðdáun
vakti þeirra, er til þekktu og
börnum hans af fyrra hjónabandi
sem bezta móðir. Hlaut Thorolf
þar heimilisskjól og stuðning, sem
hann hafði ríka þörf fyrir.
Frú Unnur sýndi einnig öldruð-
um tengdaforeldrum Thorolfs frá
fyrra hjónabandi, þeim Guðfríði
Jóhannesdóttur og Guðmundi Þor-
valdssyni, sérstaka umhyggju og
ástúð eins og hún væri þeirn ná-
komin og hélt t. d. upp á stóraf-
mæli í lífi þeirra með þeim hætti
sem eftir var tekið.
Thorolf Smith tók mikinn þátt
í félagsstörfum af ýmsu tagi, enda
var hann ágætlega til þess fallinn
og áhugasamur um margvísleg góð
málefni. Hann átti sæti í stjórn
Norræna félagsiiis í mörg ár og
einnig í stjórn Blaðamannafélags
íslands. Formaður þess var hann
tvisvar, 1950 og 1956. í því félagi
vann hann mikið og gott starf,
hafði mikinn áhuga á málefnum
stéttar sinnar og lagði þeim lið
eftir mætti.
Hann stundaði einnig um skeið
málakennslu, bæði við Málaskó!
ann Mími og Kvennaskólann !
Reykjavík. Hann var einnig lög
giltur dómtúlkur og skjalaþýðand’
starfaði þar til dauðadags. Þar
MINNING