Íslendingaþættir Tímans - 26.08.1970, Blaðsíða 19

Íslendingaþættir Tímans - 26.08.1970, Blaðsíða 19
SJÖTUG: SIGRÍÐUR JÚNSDdrm verðir kynnu aS stöðva þetta fyrirtæki þó ekki væru bíl- ar notaðir. Egill fann þó upp ráð við slíku ef til þyrfti að taka. Svo stóð á, að koma þurfti skjótlega til Reykjavíkur skuldabréfum til greiðslu eða tryggingar láni, sem Vatnsveita Selfoss hafði fengið í lánastofnun þar. Samdi Egill nú við póstmeistarann á Selfossi Guð- mundu Ólafsdóttur, að Geir yrði gerður út sem landpóstur með skuldabréfin í pósttösku og látinn bera skjaldarmerki ríkisins sem tákn um stöðu síina, en enginn mátti eða gat leyft sér að stöðva slíkan embættismann. Var nú skjaldarmerkið saumað innan í jakka Geirs og síðan hélt hann ásamt félaga sínum í ferðina með 10 sleða hlaðna mjólk. Allt gekk vel yfir Hellisheiði, en í Hveradala brekkunni komu til móts við sleða lestina 10 verkfallsverðir og gengu allir við hakasköpt. Var þana liðs- munur mikill og vopna ef til átaka hefði komið, en svo varð ekki því göngumenn höfðu ekki fyrirmæli um að stöðva önnur farartæki en bíla svo þeir létu Geir og þá fé- laga fara ferða sinna í friði. Þurfti Geir ekki einu sinni að sýna skjald armerkið. Þegar til Reykjavíkur kom voru viðtökur húsmæðra slíkar, að þær flykktust út á götur með sjóðheitt kaffi þar sem sleðalestin fór um til að hressa hina langþreyttu ferða menn og vildu með því sýna þeim þakklæti sitt fyrir að þeir voru að flytja mjólk til borgarinnar, en mjólkurskortur var þá orðinn vegna verkfallsins. Frá þessu er sagt hér til fróðleiks því um er að ræða smá þátt í atvinnusögu sunnlenz'kra bænda fyrir 35 árum, en um leið sýnir þessi frásaga það traust sem Geir bóndi naut njá þeim sem þurftu að velja mann til að stjórna áhættusömum flutn- ingum á heiðum uppi um hávetur, en slíkt starf var ekki heiglum hent. Hvar sem Geir fer fylgir honum hressilegur blær. Hann bregður á glens við menn, því dauðilia er honum við drunga og mollu. Þá tekur hann oft lagið og kveður vísur sem honum þykja þess virði að kveðnar séu. Geir hefur verið svo gæfusam- Ur, að vera eiginlega áltaf að hiakka tiT. Þegar hann var kom- inn í verið þá fór hann að hlakka til vorsins, að koma heim, sjá gras íslendingaþættir Hinn 30. júlí s.l. varð sjötug Sig- ríður Jónsdóttir frá Melbreið í Fljótum ekkja Hannesar Hannes- sonar kennara og fræðimanns sem um langt skeið var kennari í Holts hreppi við frábærar vinsældir, en hann lézt í júlí 1963. Síðan hefur Sigríður átt heimili ýmist hjá Val- þerg syni sínum, sem fyrst eftir fráfall Hannesar bjó á Melbreið, en þegar hann flutti að Nýrækt og tók við skólastjórastarfi við skólann á Ketilási flutti Sigríður suður til Reykjavíkur og dvaldist þar til skiptis hjá börnum sínum, þar til hún aftur fluttist norður fyrir um það bil þremur árum og átti þar heima síðan. Traust eru þau bönd sem binda Sigríði Fljótum, enda hefur hugurinn ávallt verið þar, þó hún hafi dval- ið annars staðar. Sigríður fæddist á Melbreið, ið gróa, lömbin fæðast, að lifa ljós ar nætur og langa bjarta daga, og hanm hlakkaði til heyskaparins. Það var honum yndi að slá, sæta, binda og reiða heim. Sjá heybands lestina — 10 hesta undir grænum böggum. Gg svo kom haustið. Þá fór Geir á fjallið að smala. Það hefur líklega verið meðal hans beztu stunda. Hann naut þess, áð teiga að sér ferskt fjallaloftið, njóta kyrrðarinnar, heyra hvíslið í litlum læk eða lind, sjá fannhvítar fjárbreiður renna og liðast eftir grundum og hlíðum, heyra jarm- inn, hestana hneggja, hundana gelta og smalana hóa. Taka svo þátt í söng og gleði þegar komið var í tjaldstað. Svo kom veturinn, þá var gaman að ganga í fjárhús- in. Gefa á garðann og horfa á skepnurnar, sem allar voru vinir bóndans og v-eittu honum og fólki hans lífsbjörgina. Þá hefur Geir notið mikils yndis af því að leggja beizli við gæðing, stíga á bak og „finna fjörtök stinn“. Geir hefur verið athafnamaður í búskiap. Hainn hefur breytt smá- býli í höfuðból. Hann var meðal fyrstu bænda í sinni sveit til að byggja vandað íbúðarhús úr stein- aldamótaárið. Foreldrar hennar voru: Jón Guðvarðsson og Aðal- björg Jónsdóttir. Hún ólst þar upp, en 18. júní 1922 verða þátta- skil í lífi Sigríðar, er hún gengur að eiga Hannes Hannesson. Þau byrja bús'kap á Melbreið og eiga þar heimili síðan eða bar til Hann- es deyr, sem eru eftir því sem mér telst til 43 ár og mmum mán- uði betur. Lífsstarf Sigríðar og Hannesar er mikið. Þeim hjónum varð 8 barna auðið, sem öll eru á lífi enn. Þau eru: Valberg, kvæntur Ásu Magnúsdóttur, Aðalheiður, gift Stefáni Jónassyni, Pálína, gift Kristni Sigurgeirssyni, Guðfinna, gift Sigurði Sófaníassyni, Sigur- lina, gift Úlfari Þorsteinssvni, Erla og Snorri, Haukur. kvæntur Eddu Sigurðardóttur. Barnabörnin eru orðin 22 og barnabarnabörnin 3, steypu. Þegar íslendingar héldu upp á þúsund ára afmæli Alþingis á Þingvöllum árið 1930, þá var Geir að hamast við að hræra stein steypu með skóflu í hönd og byggja húsið sitt. Síðan hafa öll önnur hús verið byggð í Hallanda og mikið ræktað. Nú hafa þau hjón Margrét og Geir minnkað við sig, því Óskar sonur þeirra og Sigríður kona hans eru búin að stofna heimili í Hallanda. Ný kynslóð er að taka við. Gömlu hjónin hafa þó talsvert af skepnum enn til að hugsa um. Oft er gestkvæmt. Fjölskyldan er tengd traustum tryggðarböndum og oft leita afkomendurnir á heimaslóðir til fundar við foreldra, afa og örnmu og er tekið opnum örmum. Þá er gott að eiga enn björg í búi, því öHum er veittur góður beini skyldum og vandalaus um og íslenzk gestrisni í heiðri höfð ásamt öðrum fornum dyggð- um. Það er mín afmælisósk til Geirs bónda í Hallanda, að hann haldi áfram að hlakka til og að þau hjón bæði megí sem lengst lifa og halda .‘vtarfskröftum. Ágúst Þorvaldsson. 19

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.