Íslendingaþættir Tímans - 05.04.1975, Side 4
sveit. Það var i anda Skarphéðins.
(Visir varstofnaður8.april 1912). Árið
1930 lagði Skarphéðinn simalinu frá
simstöðinni á Kálfafellsstað heim að
Vagnsstöðum, verkið fékk hann að
framkvæmda sjálfur. Þetta greiddi
mikið fyrir þvi, að fá sveitalinu austur
eftir Suðursveit 1943, leyfði Skarphéð-
inn að tengja sveitalinuna við sina, og
stytta þannig sveitalinuna sem land-
siminn lagði. Eitt af þvi sem Skarp-
héðinn lagði gjörva hönd á var að
smiða likkistur, gerði hann nokkuð að
þvi á timabili. Ferðir á Vatnajökul fór
hann margar upp fré Staðarhálsum til
mælinga á jöklinum. Mælingar á
skriðjöklum hér hafði hann með hönd-
um mörg ár á vissum stöðum.
Skarphéðinn var fæddur á Vagnstöð-
um i Suðursveit 18. janúar 1895. For-
eldrar hans voru Gisli Sigurðsson og
Halldóra Skarphéðinsdóttir, bæði af
góðu bergi brotin. Þau reistu sér ný-
býli á Vagnsstöðum 1884, ekki með
styrk af opinberu fé, heldur af eigin
rammleik. Vagnsstaðir eru i landi
Borgarhafnar, i þeirri jörð áttu
Vagnsstaðahjón einhver hunduð, á
þeim rétti byggðu þau nýbýlið, og
nytjuðu sin hundruð i heimajörðinni.
Búskapur þeirra var farsæll, þó efnin
væru ekki mikil. Gisli var aðdráttar-
maður góður með allt veiðifang, sem
bætti vel i búi, hann var dugnaðar-
maður og laghentur vel. Halldóra var
góð húsfreyja, vel vinnandi til handa,
hreinleg i allri umgengni og matartil-
búningi. Þá var gestrisninni á Vagns-
stöðum viðbrugðið.
Börn þeirra Vagnsstaðahjóna voru
átta, i eftirtalinni aldursröð: Lárus
trésmiður, Eskifirði. Kvæntur Hall-
friði Guðmundsdóttur frá Skarði i
Lundareykjadal. Sigriður gift Kristni
Jónssyni frá Ausu i Andakil. Bjuggu i
Holtum Mýrum, Þernunesi og Hafn-
arnesi. Sigurður. Kvæntur Þorbjörgu
Teitsdóttur frá Lambleiksstöðum.
Bjuggu i Borgarhöfn. Páll Sigbjörn
Þórarinn. Dó á fyrsta ári. Sigbjörn
Jörgen Skarphéðinn. Ókvæntur, heim-
ili hans Vagnsstaðir. Rannveig Þórunn
gift Vigni Jónssyni múrara, frá Arna-
nesi, bjuggu i Höfn. Valgerður, gift
Gisla Teitssyni bróður Þorbjargar
konu Sigurðar. Bjuggu þau á Höfn.
Gunnar Jens, kvæntur Sigriði Þórar-
insdóttur frá Borgarhöfn. Bjuggu þau
á Vagnsstöðum. Sigriður andaðist
fyrirnokkrum árum. Búa þeirGunnar
og Þórarinn sonur hans félagsbúi á
Vagnsstöðum. Kona Þórarins er Ing-
unn Jónsdóttir frá Smyrlabjörgum. Er
nú húsfreyja á Vagnsstöðum og stýrir
þar búi innan stokks með mestu rausn
eins og fyrrverandi húsfreyjur á þvi
heimili hafa gert. A Vagnsstöðum ólst
Skarphéðinn upp i glöðum systkina-
4
hóp, og þar dreymdi hann fallega
framtiðardrauma, eins og fleiri er til-
heyrðu aldamótakynslóðinni. Þar hef-
ur hann smalað kviám, og rekið kýr á
stöðul, einhver ár eins og titt var með
unglinga i sveit á þeim tima. Þetta
starf gat gefið unglingum gott tækifæri
að hugsa um lifið og gróanda þess.
Skólamenntun barna og unglinga var
ekki mikil á þessum árum, þó mun
Skarphéðinn hafa notið fárra vikna
kennslu 2—3 vetur eftir að fræðslulögin
gengu i gildi 1907 til fermingar. Aldur
sinn ól Skarphéðinn á Vagnsstöðum að
fráteknum þeim missurum sem að
framan getur. Hann vann að upp-
byggingu Vagnsstaðaheimilisins með
Gunnari bróður sinum og Sigriði konu
hans, og siðar ungu hjónanna Þórar-
ins og Ingunnar, þá komu sér vel hans
högu hendur og skapandi andi. Vagns-
staðaheimilið má telja I fremstu röð
heimila i þéssu héraði.
Skarphéðinn var jarðsettur 28. des-
ember við Kálfafellsstaðarkirkju, að
viðstöddu miklu fjölmenni. Húskveðja
heima á Vagnsstöðum og ræðu i kirkju
flutti séra Fjalar Sigurjónsson. Dag-
ana fyrir jarðarförina var fremur rysj
ótt veður. Ég var að segja við mitt
heimafólk, skyldi hann Skarphéðinn
ekki ætla að fá gott veður að kveðja
sveitina sina hinzta sinn, hann hefði þó
átt það skilið. 1 dagbók minni stendur
um veðrið að kvöldi jarðarfarardags-
ins. Logn fyrst, for að gola á vestan um
hádegi, kaldi af og til eftir það lengst
af sólskin. Svo hef ég bætt við, eini sól-
skinsdagurinn i langan tima, þannig
fylgdi sólin Skarphéðni siðasta áfang-
ann eftir þvi sem skammdegissól get-
ur gert. Var það ekki viðurkenning frá
almættinu, fyrir það sem hann hjálp-
aðisvo mörgum að standa sólarmegin
i lifinu. Deyr fé, deyja frændur, deyr
sjálfur ið sama, en orðstir deyr
aldrigi, hveims sér góðan getur.
Já, hann Skarphéðinn er dáinn og
gamla rafstöðin min hætt að snúast.
En áfram veltur timans hjól með sin-
um jafna hraða. Það skilar okkur
ýmsu á leið sinni bæði góðu og vondu,
en er ekki litið um að það skili okkur,
eins fórnfúsum mönnum eins og
Skarphéðinn á Vagnsstöðum var, sem
vildi svo margt fyrir fólkið gera til að
létta þvi lifsbaráttuna og tryggja
öryggi þess, án þess að innheimta dag-
laun að kvöldi.
Ég þakka þér allt vinur.
Steinþór Þórðarson.
t
Hér langar mig með nokkrum
fátæklegum orðum að minnast mins
kæra föðurbróður, sem hvarf frá okk-
ur svo skyndilega 18. desember sl.
Aðdragandi hinna snöggu umskipta
voru aðeins nokkrir dagar, en bana-
meinið var heilablæðing. Hann fékk að
taka siðustu andvörpin á þvi heimili,
sem hannhafði átt alla ?evi.
Á Vagnsstöðum fæddist Sigbjörn
Jörgen Skarphéðinn 18. janúar 1895, og
vantaði hann þvi aðeins einn mánuð til
að ná áttatiu ára aldri. Hann var
fimmta barn hjónanna Halldóru
Skarphéðinsdóttur og Gisla Sigurðs-
sonar, sem bjuggu á Vagnstöðum
allan sinn búskap. Faðir Halldóru var
Skarphéðinn bóndi á Fagurhólsmýri
og Borgarhöfn Pálssonar bónda i
Arnardrangi Jónssonar prests á
Kálfafelli i Fljótshverfi Jónssonar
bónda á Höfðabrekku Runólfssonar.
Móðir Skarphéðins Pálssonar var
Guðlaug Jónsdóttir bónda i Holti á
Siðu Pálssonar. Móðir Guðlaugar var
Ragnhildur Jónsdóttir bónda i Svina-
felli Ásmundssonar. Móðir Páls i
Arnardrangi var Guðný Jónsdóttir
prests á Prestbakka Steingrimssonar.
Móðir Halldóru á Vagnsstöðum var
Þórunn Gisladóttir bónda á Fagur-
hólsmýri Gislasonar bónda á Hörgs-
dal og viðar Jónssonar, móðir Gisla á
Fagurhólsmýri var Sigriður Lýðs-
dóttir sýslumanns Vik Guðmunds-
sonar. Móðir Sigriðar var Margrét
Eyjólfsdóttir, Eyvindarmúla. Móðir
Þórunnar var Jórunn Þorvaldsdóttir
bónda á Hofsnesi Pálssonar bónda á
Hofi Eirikssonar. Gisli á Vagnstöðum
var sonur Sigurðar bónda i Borgar-
höfn Jónssonar bónda i Heinabergi
Hálfdánarsonar. Móðir Sigurðar var
Sigriður Jónsdóttir bónda . i Borgar-
höfn Gislasonar bónda, sama staðar
Arasonar bónda i Hestgerði Gisla-
sonar. Móðir Gisla á Vagnsstöðum
var Rannveig Jónsdóttir bónda i
Borgarhöfn Þorsteinssonar en móðir
Jóns var Rannveig Jónsdóttir á
Felli. Móðir Rannveigar i Borgarhöfn
var Katrin Jónsdóttir bónda i Borgar-
höfn Þorleifssonar bónda á Hól i Land-
eyjum Sigurðssonar sýslumanns á
Smyrlabjörgum Stefánssonar.
Það koma margar ljúfar minningar
fram i hugann við burtför
Skarphéðins, þegar litið er til baka og
alls þess minnzt, sem hann var okkur,
sem bárum gæfu til að alast upp með
honum, og njóta fræðslu hans,
leiðsagnar og þess mikla ástrikis, sem
við systkinin urðum aðnjótandi.
Siðar þegar við eignuðumst börn lét
hann þeim einnig i té ást og umhyggju
sina i rikum mæli.
Þegar Skarphéðinn var að aiast upp
var skólaganga barna stutt og stopul.
islendingaþættir
)