Íslendingaþættir Tímans - 05.04.1975, Blaðsíða 10
Björn
fyrrv. deildarstj
„Tilvera okkar er undarlegt
feröalag.
Við erum gestir og hótel okkar
er jöröin.
Einir fara og aðrir koma i dag,
þvi alltaf bætast nýir hópar
i skörbin.”
Tómas Guðmundsson.
Björn Sigmundsson lézt aö heimili
sinu, Munkaþverárstræti 4, Akureyri,
að kvöldi 18. janúar 1975, á áttugasta
og fjórða aldursári. (Jtför hans fór
fram frá Akureyrarkirkju, að við-
stöddu fjölmenni, þann 25. janúar s.l.
Séra Pétur Sigurgeirsson, vigslu-
biskup jarðsöng. Björn var fæddur á
Ytra-Hóli i öngulsstaðahreppi 27.
júni 1891. Foreldrar hans voru:
Sigmundur Björnsson, bóndi og
kambasmiður á Ytra-Hóli og kona
hans Friðdóra Guölaugsdóttir frá
Þröm i Garðsárdal. Bræður Friðdóru
voru þeir séra Sigtryggur og Kristinn
Guðlaugssynir, sem á sinni tið gerðu
garðinn frægan að Núpi i Dýrafiröi.
Björn var næstelztur sjö systkina.
Elztur var Guðlaugur, sem um árabii
annaðist póstferðir milli Akureyrar og
Grimsstaða á Fjöllum, og var til þess
tekið hve farsæll og dugandi hann
reyndist i þvi starfi. Hans er getið i
Söguþáttum landpóstanna. Guðlaugur
er látinn fyrir fáum árum. Finnur,
fyrrv. landsbókavörður, búsettur i
Reykjavik. Tryggvi er um árabil hef-
umflúin. Böðvar Steinþórsson hefur
nú kvatt þetta lifssvið og er nú kominn
til æðri dýrðarheima.
Ég þakka honum allt á löngum og
tryggum kynningarstundum og geymi
um minn góða vin kærar og hlýjar
minningar.
Og lokaorð min i þessari stuttu
kveðju til Böðvars og sem ég hygg að
svo vel eigi við lif hans, eru þessi orð
skáldsins: ,,A reynslunnar bók mest
um lifið er lært”.
Blessuð sé minning hans.
Sigurður Stefánsson
frá Stakkahlið.
10
Sigmundsson
ur búiö á hálfri fööurleifð sinni. (Jörð-
inni var skipt fyrir allmörgum árum).
Tryggvi hefur nú látið jörð og bú af
hendi til barna sinna, Ólafs og Ólafar,
svo enn um sinn mun sama ættin sitja
jarðirnar: Ytra-Hól I og Ytra-Hól II.
Sigurlina var húsfreyja á Ytra-Hóli,
(öðrum hlutanum), en er látin fyrir
mörgum árum. Þar búa nú synir henn-
ar. Elínrós er búsett á Akureyri og
annaðist hún bróöur sinn eftir að hann
varð ekkjumaður og hlaut fyrir það
verðugt lof. Yngstur systkinanna er
Kristinn, bóndi og fyrrv. oddviti að
Arnarhóli I öngulsstaðahreppi.
Björn stofnaði sitt eigið heimili að
Ytra-Hóli þann 24. júli 1915. Þá kvænt-
ist hann Guðrúnu Gunnlaugsdóttur,
ættuð úr Svarfaðardal. Guðrún var
glæsileg og góð kona og verkhög svo af
bar. Hún lézt þann 26. febrúar 1973.
Björn flutti til Akureyrar árið 1924,
með konu og tvö börn. Sigmund og
Onnu Soffiu. A Akureyri fæddust þeim
tveir synir að auki Finnur Sveinbjörn
og Vikingur Þór. öll eru börn þeirra
gift, góðum mökum, eru i góðum stöð-
um, búsett eru þau á Akureyri, nema
Finnur, sem á heima i Reykjavik. Það
hefur verið á oröi haft um þessi börn
hve framúrskarandi þau voru góð og
umhyggjusöm foreldrum sinum, til
þeirra hinztu stundar.
Arið 1928 gerðist Björn fastráðinn
starfsmaður hjá Kaupfélagi Eyfirð-
inga og var lengst af deildarstjóri i
Byggingavörudeild K.E.A. Árið 1961
lét hann af störfum samkv. lögum um
aldurshámark. Það er til marks um
hreysti Björns og samvizkusemi að á
þessum þrjátiu og þremur starfsár-
um, hjá K.E.A. hafi hann verið frá
verkum i þrjá daga.
Margt er okkur hulið i heimi hér, en
þó vitum við öll: Að eitt sinn skal hver
deyja. En þrátt fyrir það kemur okkur
alltaf á óvart þegar fregnin berst um
að einn samferðamaðurinn hafi verið
burtkallaður úr þessari tilveru og þvi
fremur, sem hann hefur staðið okkur
nær.
Þegar mér barst fregnin um að
Björn Sigmundsson væri allur komu
ýmsar minningar um samstarf okkar
og kynningu fram i hugann. Þrátt fyrir
það að við höfðum báðir hafið störf um
svipað leyti hjá Kaupfélagi Eyfiröinga
'og m.a. verið með að stofna Starfs-
mannafélag K.E.A. þann 22. nóv. 1930,
þá varð enginn náinn kunningsskapur
okkar á milli mörg næstu árin þar á
eftir. Það var fyrst veturinn 1944 þegar
Leikfélag Akureyrar setti á sviö
Gullna hliðið, leikrit Daviðs Stefáns-
sonar. Þar lék Björn sitt stjörnuhlut-
verk „Jón gamla” á móti hinni ágætu
leikkonu Arndisi Björnsdóttur, sem fór
með hlutverk „Kerlingarinnar”. Þetta
var I fyrsta sinn, sem ég kynntist
störfum L.A. og um leið margra
ágætra leikara sem þar störfuðu. Mitt
hlutverk þarna hjá L.A. var að standa
að tjaldabaki og „hvisla” ef einhver
leikarinn skyldi falla út úr „rullunni”.
Ég minnist þess ætið hve samstarf
þeirra, Björns og Arndisar var gott og
hve vel þau kunnu að meta hæfileika
hvors annars. Þarna unnu þau mikinn
leiksigur á sviðinu, eins og svo oft áður
og siðar. Nokkru seinna eða 1957, á 40
ára afmæli L.A. fór Björn aftur með
þetta sama hlutverk i „Gulina hliðinu”
og lék þá á móti Matthildi Sveinsdóttur
fjölhæfri og ágætri leikkonu, og
skiluðu þau hlutverkum sinum meö
prýöi.
Ekki var Björn alUal sauui viö
íslendingaþættir