Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Side 11

Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Side 11
Jón Agústsson Höfn, Hornafirði Ég átti þvi láni aö fagna að kynnast þessum góöa dreng bæði i starfi og i fé- lagsmálum. Jón Agústsson var aöeins búinn að dvelja hér i Höfn i rúm 4 ár er hannléztafslysförum sunnudaginn 27. marz s.l. Hann var þó á þessum stutta tima fyllilega fallinn inn i þaö litla samfélag, sem segja má aö svona byggöarlög myndi. í tveimur félögum sem ég er i, var Jón einnig félagi. Hann var mjög virkur i báöum. Vera má aö hann hafi verið i mörgum öör- um félögum hér þótti mér sé ekki um það kunnugt. 1 ööru þessu félagi skátafélaginu Frumbyggjum, vorum við Jón Ag- ústsson búnir aö vera saman i stjórn s.l. tvö ár. A þeim tima sýndi hann okkur þær hliðar á sér sem flestir munu minnast lengst, þ.e. djörfung, viöleitni til aö fara nýjar leiðir og siö- ast en ekki sizt, sérlega viöfeldna framkomu og léttleika i skaphöfn. Hitt félagið sem ég var félagi Jóns I, var Björgunarfélag Hornarfjarðar. Þótt samskipti okkar Jóns væru ekki eins náin i þvi félagi er mér vel kunn- ugt um aö einnigþar var hann dugandi félagi. Þátttaka Jóns I þessum tveimur fé- lögum, sem hér hafa verið að framan nefnd segir sina sögu um þaö hvar hann kaus aö hasla' sér völl á félags- legum vettvangi. I minni stuttu en eftirminnilegu við- kynningu við Jón Agústsson kom margsinnis fram vilji hans til góðra verka og djörfung til aö fara ótroðnar slóöir. Ég minnist einkar vel kvöldstundar eitt sinn er viö sátum á tali við unga drengi I skátafélaginu og verið var aö hugleiða útilegu viö óbliöar aöstæöur. Þar benti hann þessum drengjum á, aö þótt svo liti út á yfirborðinu sem þessieöa hin ferðin heföi mistekizt, þá heföi hún kannski orðið til meira gagns heldur en margar feröir sem gengiö hefðu snuörulaust fyrir sig. Svona lag- aö væri bara smækkuð mynd af ferð- um landkönnuöa. Ýmist væru þaö þeir,sem hefðu gagn af feröinni, elleg- ar aörir sem nytu góös af henni. Einsog sagan greinir okkur frá hafa íslendingaþættir landkönnuöir oft orðiö aö gjalda fyrir ævintýri meö lifi sinu. Ef allir vissu um endalok feröar i upphafi væru flestar frægustu ferðir sögunnar ó- / farnar enn. í Björgunarfélagi Hornafjaröar haföi Jón m.a. þá ábyrgöarstööu aö vera formaður leitarflokks. Slikir menn þurfa á viðtækri reynslu og þekkingu aö halda. Þaö er þvi eðlilegt að lita á ýmsar feröirog leiöir sem Jón fór jsinum fristundum, sem þátt i und- irbúningi undir það að vera vel i stakk búinn ef til hans þyrfti að sækja hjálp. Jón Ágústsson skapaði sér vinsældir hér á Höfn i hvaöa starfi sem hann kom nálægt. Það hefur stundum verið sagt aö maður kæmi I manns staö. Varöandi fráfall Jóns leyfi ég mér að örvæntaum aö þetta máltæki standist. Þvi sum þau störf sem Jón tók að sér hér I byggðarlaginu, höfðu staðið ó- skipuö um lengri eöa skemmri tima er Jón tók þau aö sér.. Óafvitandi hefur Jón reist sér bauta- steina hér, ýmist I hugum samborgar- anna ellegar áþreifanlega. Ég nefni bara einn. Það er endurreisn skáta- skálans l Selhrauni i Laxárdal, sem hann var aðalhvatamaður að og halda mun minningu hansá loftium mörg ó- komin ár. Ég votta eiginkonunni, Guörúnu Baldvinsdóttur og börnunum og öðrum aðstandendum hugheila samúð mina. HeimirÞór Gislason Að sjálfsögöu ei við fáum fullþakkað þaö, sem fyrir okkur hér vannstu. Þaö ómetanlegt var aö eiga þig aö, þvi albeztu leiöina fannstu. Þá leiö, sem við öll gátum sætt okkur viö viö sanngjarnri lausn máttum una. öllum þeim fjölmörgu er lagöir þú liö er ljúft þina handleiðslu aö muna. Nei, samskipti mannanna — enginn sem þú átti svo létt meö aöskilja. Við erum þvi raunsærri og rikari nú af réttlæti og góöfúsum vilja Þú áttir til ómælda athafnaþrá, þá arfleifð aö nema og kanna. Feröum var heitið um fjöllin hin blá, þau freistuðu djarftækra manna. Þér enn munu ætlaöar ferðir um fjöll á fegursta tilverusviöi Kynnin viö þökkum og heitnin þin öil þá hnigin er lifssól aö viöi. Þaö tekur mann ár og ævi aö sætta sig viö fráfall ungra manna sem i miöri önn dagsins hverfa skyndilega af sjónarsviöinu. Jóns Agústssonar sem fórst af slys- förumviö Stokksnes 27. marz s.l. hefur áður veriö minnzt hér i blaöinu. Nú viljum viö einnig biöja fyrir örfá kveöjuorö helguö honum sem þakk- lætisvott fyrir samskipti á liönum ár- um Ráöum Jóns og ieiðbeiningum var holltaö hlita. Hann haföi þaö aö mark- miöi hverju sinni, sem betur mátti fara meö fuilri virðingu fyrir lögunum — án þess þó aö vera þræll þeirra, en hann starfaði i þjónustu þeirra sem bilaeftiriitsmaður meö meiru. Bflaviö- geröir voru snar þáttur I lifi Jóns og báru hæfni hans sem bifvélavirkja glöggt vitni. Viö minnumst þess, hve vel hann efndiorð sin á viöskiptalega sviöinu. t þvi sambandi koma manni I hug þessi fleygu orð sem maöur las ungur og snertu hugann djúpt: „Betri eru Hálfdan heitin þin en handsöl ann- arra manna.” Liðsinni Jóns var veitt langt umfram þaö er skyldan bauö og naut þess margur þegar fokiö var I skjólin og billinn hans var I lamasessi. Gerðir hans báru vott um velvild, en ekki valdboö og þær öfluöu honum vinsælda i starfi. Staöhættir hornfirzkra byggöa hafa upp á margt aö bjóða. Véltæknin greiöir götu okkar að vissu marki. Hún fær notið sin á ýmsum stööum viö hin- ar ólikustu aðstæður. Innan hennar 11

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.