Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Side 23

Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Side 23
Kvennaskólanum undir handar- jaðri Ragnheiðar. Það varö Svövu mikil gæfa, að hún naut kennslu og tilsagnar Ragnheiðar, sem tók hana um tima undir sinn verndarvæng og hafði hana hjá sér i nokkur sumur i sumarhúsi sinu, sem hún lét reisa fyrir 1930 i Heiöarbæjarlandi á Þingvöllum. Þetta varö á tvennan hátt lær- dömsrlkt fyrir Svövu, sem lærði þannig i uppvextinum að um- gangast landið á réttan hátt og notfæra sér hina góöu eiginleika moldarinnar til ræktunar nytja- jurta. 1 þessu hvorutveggja var Ragn- heiður sérfræðingur, næmi henn- ar og listrænt mat var óskeikult þegar hin ósnerta náttúra var annars vegar, hún umgekkst og bætti landið, þannig að ekkert spilltist, heldur óx allt upp og gréri i sinni upprunalegu mynd náttúrunnar sjálfrar hjá henni. Bæði ég og Svava dóttir min eigum margar kærar endurminn- ingar frá veru okkar á Þingvöll- um I sumarhúsinu hjá Ragnheiði, það voru ógleymanlegar stundir að sjá hvernig sýna átti náttúr- unni nærgætni og virðingu, eins og Ragnheiður gerði og kenndi öðrum að gera. Timinn liður æ hraðar meö hverjum degi og meö þessum straumi timans berast samferða- mennirnir burt hver á fætur öðr- um, hjá þvi verður ekki komizt, þetta hefur Ragnheiður fengiö aö finna, er hún hefur á skömmum tima misst margar af kærustu vinkonum sinum, og þessu lög- máli hef ég fengið að kynnast við fráfall Ragnheiðar, þvi slitnað hefur þráöur traustrar vináttu okkar i milli, er varaö hefur i tvo tugi ára. £5g ætla mér ekki þá dul, að fara hér að rita um stórbrotinn og stórmerkan starfsferil Ragn- heiðar i meira en hálfa öld, þó kemst ég ekki hjá að drepa hér á nokkur atriði, sem sérstakiega hafa vakið athygli mina, það er hve lif og örlög Ragnheiöar og fjölskvldu hennar voru samofin Kvennaskólanum, móðir hennar nemur þar. og siöan systurnar báðar. fyrst Elin og þá Ragn- heiður. Ragnheiður gekk i 3. bekk Kvennaskólans 1905, á siöasta skólastjórnarári Þóru Melsted, og áfram 1900 á fyrsta skóla- stjórnarári Ingibjargar H. Bjarnasón, og útskrifast úr 4. bekk voriö 1907. Frá árinu 1908 til 1911, jafnhliða annarri vinnu, leikur Ragnheiöur á hverjum morgni á oregl undir morgunsöng I Kvennaskólanum, þetta gerði hún I sjálfboðsvinnu fyrir Ingibjörgu H. Bjarnason, sem lét sér alla tiö mjög annt um Ragnheiði og kom henni aö nokkru leyti f móðurstaö eftir • sáran missi. 1 löngu og farsælu samstarfi þessara tveggja mikilsvirtu kvenna hnýttust traust vináttubönd, sem héldust til æviloka Ingibjargar H. Bjarnason árið 1941, og áfram fram yfir lif og dauða. Eftir tveggja ára námsdvöl Ragnheiðar árin 1911 og 1912, við Statens Lærerhöjskole i Kaup- mannahöfn, réðst hún i vetrar- byrjun árið 1913 sem kennari við Kvennaskólann i Reykjavik, allt i samráði við Ingibjörgu H. Bjarnason. 1 erföaskrá sinni arf- leiddi Ingibjörg H. Bjarnason Kvennaskólann aö öllum eignum sinum, að undanskildum þeim, sem hún ánafnaði Ragnheiöi Jónsdóttur vinkonu sinni og fl. Eítir 30 ára samstarf Ingi- bjargarog Ragnheiöar tók Ragn- heiöur við rekstri skólans af Ingi^ björgu haustiö 1941. Ragnheiöur var fórstöðukona Kvennaskólans á árunum 1941-1959 og kennari óslitið frá árinu 1913, til vorsins 1960, er hún lét af störfum eftir langt og farsælt starf i hálfa öld. Nú á timum er menntunin, sem fræðslan veitir, tvenns konar, al- menn menntun og sérmenntun. Hin almenna alhliða menntun gerir mannfólkið fært um aö efla og þroska alla andlega hæfileika sina á breiðum grunni, og fá þannig heiidarsjónarmið reynsl- unnar hjá lifsreyndum kennurum til að styðjast við, er mæta skal erfiðleikum og vandamálum lifs- ins. Þeir sem þannig kennslu fá, eru þvi vel undirbúnir til að vega og meta, þegar út i heiminn kem- ur. Þessi lifræna kennsla var aðalsmerki hinna þriggja miklu stjórnenda Kvennaskólans, sem nú eru gengnar, þeirra Þóru Mel- sted, Ingibjargar H. Bjarnason og Ragnheiðar Jónsdóttur. Þóra Melsted var forstöðukona Kvennaskólans frá 1874-1906. Ingibjörg H. Bjarnason frá 1906-1941 og Ragnheiður Jóns- dóttir frá 1941-1959. Af þessum þrem merku konum átti Ragn- heiöur lang lengstan starfsferil viö Kvennaskólann I Reykjavik, hún starfaði þar i hálfa öld. Þess- ar 3 konur lýsa eins og þristirni yfir vegferö skólans, yfir hyldýpi skilningsleysis og fáfræði, sem jafnan herjar á mannfólkið. Er Ragnheiður Jónsdóttir lét af forstöðukonustarfinu áriö 1959, verða að margra dómi þáttaskil i sögu skólans, andrúmsloftiö breytist og Kvennaskólinn fær annan svip. Gamii hljóðláti kröfuharði timinn ineð morgun- söng og bæn er að hverfa og nýi tirninn nreð öllum sinurn hávaða er að halsla ser völl. Ekki veit ég hvað þessi breyting, þessi nýju áhrif, kunna að hafa i för með sér fyrir farsæld Kvennaskólans, en hitt veit ég, að það er og var ómetanlegt i vaxandi byggð Reykjavikur, að hafa átt slfka hornsteina, sem þessar þrjár konur, er af óendanlegri fórnfýsi i anda hinnar gömlu sálfræði, aö gera mestar kröfur til sin sjálfs, inntu af hendi giftudrjúgt starf um áraraðir fyrir.litil laun. Ingibjörg H. Bjarnason stóö á sinni tfð fyrir stofnun Minningar- gjafasjóös Landspitalans, til styrktar efnalitlu fólki, er þurfti á sjúkrahússvist að halda. Ragn- heiður Jónsdóttir var I stjórn sjóðsins frá stofnun hans áriö 1916, og þar til hún lét af störfum sem gjaldkeri sjóðsins árið 1972. Ævistarf Ragnheiðar Jónsdóttur verður jafnan tengt skólamálum og hefði þvi veriö mikils viröi, að hún, sem lifaö hefur öll helztu timamót i langri sögu Kvenna- skólans i Reykjavik, hefði sagt áður en timaglas hennar var út- runnið með eigin orðum frá eigin brjósti af reynslu sinni um menn og málefni i sambandi viö skóla- málin og þá alveg sérstaklega I bók þeirri, sem nýlega var skráð I sambandi við 100 ára sögu Kvennaskólans i Reykjavik og út vaij- gefin af Almenna bókafélag- inu' árið 1974. Eftir að Ragnheiður lét af störf- um og settist i helgan stein, var hún mjög ern, allt til ársins 1977, er heilsan tók að bila og hún andaöist i Landspitalanum. Þessi fátæklegu kveðjuorð min veröa ekki fleiri, ég minnist meö þakklæti kynna minna af Ragn- heiði Jónsdóttur, og bið þann sem alla dregur til sin, hann sem vakir á hverjum staö, að varðveita og blessa hana i heimum hins himneska rfkis. S.Sigurösson. Islendingaþættir 23

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.