Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Síða 37

Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Síða 37
Kristín Sveinbjörnsdóttir Hranfnabjörgum, Arnarfirði F: 8. des. 1899 D: 13. ág. 1977 I dag verður til moldar borin frá Fossvogskirkju Kristin Sveinbjörnsdóttir, húsfreyja, Hafnabjörgum i Arnarfirði. Með henni er kvödd heiðurs- kona, verðugur og góður fulltrúi islenzkrar húsmóöur og sveita- konunnar, sem vinnur störf sin hvern liðlangan dag af hægð og litillæti. Kristin var fædd 8. desember 1899 að Hóli við Bildudal i Arnar- firöi. Foreldrar hennar voru Sveinbjörn Egilsson og Valgerður Jónsdóttir. Hún eyddi æsku- og unglingsárum i Arnarfirði og On- undarfirði, iðulega við kröpp kjör. Þau voru 3 systkinin, bræð- urnir Egill og Rafn. Egill er látinn, en Rafn búsettur á Akra- nesi. Fimmtán ára unglingur kom Kristin i Lokinhamradal, ysta dal byggðan við Arnarfjörð norðan- veröan. Þar er fagurt landslag, stórbrotið og tilkomumikið. All- vatnsmikil á rennur eftir miöjum dal, en sitt hvoru megin árinnar eru bæirnir i dalnum. A kyrrum sumarmorgni, áður en hafgoluna leggur inn fjörðinn, er þarna ein- staklega fallegt, i blámóðu sjást fjöll og dalir hinum megin fjarð- ar, en beint á móti blasir við Selárdalur með hvitkögraöan sand i forgrunni. Þarna er harðbýlt og afskekkt, en mikið athafnalif var þarna á hrörleika að hann vissi nákvæm- lega hvaö hann var áöur búinn aö segja mér og hvaö ekki. ,,Ég er ekkert að endurtaka þetta, ég sagði þér þetta um daginn.’y Þessar frásagnir hafa ekki verið ■ hreinritaðar og biöa þvi birtingar enn um sinn. Hér hefur verið stiklað á stóru, en þessi kveöjuorð skulu ekki höfö fleiri og er þó margt ósagt enn sem hæfði aö telja meðal annars um störf Ingvarsaðfélagsmálum. En að leiðarlokum skal aðeins þakkaö með orðum fyrir hlýju sem alltaf hefur mættokkur hjón- um á Bjallanum, ekki sfzt þegar þess hefur helzt þurft, og munu fleiri hafa slika sögu að segja. Þaö er gott aö eiga minningar um gott fólk. Ami Böövarsson æskudögum Kristinar, því eins og viðast á Vestfjörðum var mest byggt á sjósókn og sjávarafla. Mikill útvegur var frá Lok- inhamradal, og stundum lágu um 30 vermenn við i Grisavik (Vik- in), en þar var aðalútræöi og uppsátur i dalnum. Skammt var til gjöfulla miða en frá Lokin- hamradal blasir viö óravidd hafsins t.il vesturs og suðvesturs. Þá munu nær 40 manns hafa haft fasta búsetu i Lokinhamradal Kristin kom á heimilið hjá þeim hjónum Ólafi Kristjánssyni og konu hans Sigriði Jónsdóttur sem bjuggu að Hrafnabjörgum, en Sigriður var móöir Steingrims Jónssonar rafmagnsstjóra, sem var landskunnur maður á sinni tiö. Kristin átti þarna gott atlæti. Hún varð sem fósturdóttir þeirra hjóna, mat þau sem sina foreldra og skirði börn sin eftir þeim. Upp frá þessu dvaldi Kristin i Lokinhamradal og unni mjög dalnum sinum og firðinum stór- brotna. Þarna kynntist hún manni sinum Ragnari Guðmundssyni frá Meðaldal i Dýrafirði, sem var þá við sjó- róðra i Vikinni. Þau voru gefin saman i hjónaband árið 1923 og hófu skömmu siðar búskap i Lokinhömrum. Bærinn stóð á fegursta stað, fyrir miöjum dal þaðan sem sést vitt til allra átta Að Lokinhömr um bjuggu þau nokkuð fram yfir 1940, er þau keyptu jörð og hús aö Hrafnabjörgum og fluttu þangað. Eftir Ólaf og Sigriði höfðu búið þar hjónin Ingvaldur Kristjáns- son og kona hans Jónfriður Gisla- dóttir, sem enn lifir. Kristin og Ragnar sátu siðan þá jörð og hálfa Lokinhamrajörðina á móti Jónasi Sigurðssyni og Sigriði Andrésdóttur, sem enn býr i daln- um með Sigurjóni syni sinum. Ragnar og Kristin eignuðust 9 börn. Oft hefur þvi þurft að taka til hendi hjá þeim hjónum. Ragn- ar var mikill höfðingi i sjón og raun, umsvifamikill og oddviti sveitarinnar um tugi ára. I minningargrein um Kristinu tengdamóður mina, get ég ekki látið hjá liða að minnast um leið Ragnars, svo samofin eru þau minningu minni. Ég skildi fyrst Vestfirði eftir að ég hafði hitt Ragnar. Ég held, að Ragnar Guðmundsson hafi veriö mynd hins vestfirzka bónda um aldir Bóndi var starfsheiti hans búskapur aðalstarf, en þó fannst mér hann ætið miklu meiri sjó- maður og það fyrst og fremst. Ég varð þess ævintýris aðnjótandi aö fara eitt sinn i róður með Ragn- ari heitnum og sá þá hvað hann naut sin og kunni vel til sjó- verka. Haust og vor stundaöi hann stift sjóinn, og var alltaf bátur og iðulega fleiri en einn i nausti Ragnars. Ragnar Guömundsson var framámaður i slysavarnamálum og starfaði mikið aö þvi hjartans máli sínu. Hann var stofnandi og fornlaöur björgunarsveitarinnar Vina- bandsins þar i sveit i fjölda mörg ár. Kristin unni mjög manni sinum og studdi hann af fremsta megni i þessu máli. Eftir lát ólafs sonar þeirra stofnuðu þau sér- stakan minningarsjóð við Slysa- varnarfélag Islands til minningar um hann A frumbýlingsárum þeirra Kristinar og Ragnars voru engar vélar notaðar við búskapinn, enda er landslagi svo háttað og jarðvegur mjög grýttur, aö þaö var ekki fyrr en á siðustu búskaparárum þeirra, sem tún urðu að mestu véltæk, en Ragnar andaöist árið 1963. íslendingaþættir 37

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.