Heimilistíminn - 07.03.1974, Blaðsíða 5

Heimilistíminn - 07.03.1974, Blaðsíða 5
bá l'lutti Guðrún Guðmundsdóttir söng- kona ávarp fyrir hönd félags islenzkra, leikara og var það undirritað af eigin- manni hennar Klemenz Jónssyni. Gjöfin frá leikurunum var íorláta kristalsköttur, sem Guðrún prisaði mjög. Unnur bórðardóttir talaði þvi næst fyrir hönd saumaklúbbsystra Guðrúnar og af- henti gjöf þeirra, sem var mikið og fagurt armband úr gulli og hvitagulli. Margrét Eggertsdóttir færði gullúr frá söngsyst- kinum og Guðrún lýsti þvi yfir, að þetta væri fyrsta gullúrið, sem hún eignaðist á ævinni. bvi næst kom þriðji karlmaðurinn Karl Einarsson og flutti skemmtiþátt, þar sem hann hermdi eftir þjóðkunnum mönnum að vanda. Ekki reyndi hann að herma eft- ir Guðrúnu, en hennar var viða getið i um- ræðum herramannanna i staðinn. Fékk Karl hinar beztu undirtektir og auðvitað sinn skerf af veitingunum á eftir. Meðan á öllum þessum gamanmálum stóð, nutu gestir veitinganna, sem voru ekki af verri endanum, snittur, tartalett- ur, smurt brauð og tertur, sem voru eins og hreinustu listaverk. bað voru vinkonur afmælisbarnsins, sem áttu heiðurinn af meðlætinu. bá kom það atriðið, sem hvað mesta kátinu vakti, að minnsta kosti þangað til hér var komið sögunni. bað voru þær Guðrún og buriður Pálsdóttir, sem sungu „Kattadúettinn” eftir Rossini. Ekki að- eins sungu þær ómótstæðilega, heldur léku þær kattaparið af mikilli snilld og viðstaddir veltust um af hlátri. Næsta atriði var fjöldasöngur, en siðan söng Elisabet Einarsdóttir, sem er systir Mariu Markan. Elisabet er 77 ára gömul, en þrátt fyrir það hefur hún ótrúlega mikla og kröftuga rödd. Gestir risu úr sætum af aðdáun. Margrét Eggertsdóttir las þvi næst skeyti, sem Guðrúnu höfðu borizt, bæði innanlands frá og utan úr heimi. bá kom Gunnar M. Magnúss. og mælti fyrir minni kvenna og endaði tölu sina á þeim orðum, að ef hann ætti eítir að fæðast aftur, þá vildi hann fæðast sem kona. bar sem þarna voru samankomnar ekki færri en tiu þekktar söngkonur, var ekki úr vegi að þær tækju lagið. beim var stillt upp á svið og ,,Táp og fjör” lyfti næstum þakinu af húsinu. bá var skemmtidagskráin tæmd, en eftir enn eitt matarhlé fór Guðrún upp á svið og byrjaði að opna afmælispakkana. Og þar sem Guðrún er sú einstaka mann- eskja sem hún er, varð sú athöfn eitt langt skemmtiatriði, eða eins og buriður orðaði það: ..Einhver sem ekki þekkti Guðrúnu, gæti haldið, að þetta væri sett á svið” bað tók rúma klukkustund að opna pakkana og Guðrún sat alsæl i hrúgu af glitrandi umbúðum og gerði bráðhnyttnar athugasemdir, milli þess sem hún las upp af kortunum, sem l'ylgdu gjöfunum. Fyrirsögnin hér að framan er ein þeirra, Guðrún og buriður Pálsdóttir syngja „Kattadúettinn” eftir Rossini. Aheyrendur táruð- ust af hiátri. A neðri mvndinni taka þær Guðrún, Elisabet Einarsdóttir og buriður lag- ið, við undirleik Guðrúnar Kristinsdóttur. 5

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.