Heimilistíminn - 07.03.1974, Qupperneq 18
Kryddið meö salti og pipar og muniö að
súpan er talsvert sterk. Þegar kjötiö er að
veröa meyrt, er grænmetið og þunnar
gúrkusneiðar sett i pottinn. Þessi réttur
verður sérlega bragðgóður ef bætt er i
hann litlu glasi af sherry.
Mafsinn er hitaður og síðan eru soðnar
kartöflur bornar meö.
Gratineraður fiskur
10-12 frosin rauðsprettuflök (litil) eða
annar fiskur
smjörliki, salt
1-2 sitrónur
1 dós sveppir
3-4 tómatar
1 dós sveppasúpa
2 egg
rasp
graslaukur
Smyrjið ofnfast fat og leggið frosinn
fiskinn i. Ef aðeins er til eitt stórt stykki af
frosnum fiski, er hægt að saga það i
sundur eða skera, með nokkrum
erfiðleikum þó. Saltið fiskinn og kreistið
safa úr 1/2 eða einni sitrónu yfir og leggið
siöan álpappir yfir. Fatið er nú sett i 200
stiga heitan ofn i 15min. Þá er það tekið út
og sundurskornir tómatar og sveppirnir
settir með. Hrærið sveppasúpuna með
eggjarauðunum en setjið ekki vatn i og
setjið siðan stifleyttar hviturnar út i.
Setja má m jólk eða rjóma i, ef súpan er of
sterk. Hellið henni siðan yfir fatið með
fiskinum, stráið raspi yfir og litlu einu af
bræddu smjöri. Setjið siðan fatið aftur.i
ofninn og nú má hitinn vera aðeins meiri.
Eftir 15-20 minútur á yfirborðið að vera
orðið ljósbrúnt. Klippið graslauk og stein-
selju yfir og leggið sitrónusneiðar á.
Spaghetti með kjötsósu
1 1/2 pakki Spaghetti
3- 4 laukar
3 msk smjörlfki
4- 5 hökkuð buff úr frysti eða dós
1 msk kveiti
1 dós tómatar
1 litil dós tómatmauk
salt, pipar og paprika
þurrt merian og basilikum
Tabasco sósa eða önnur sterk kryddsósa
Rifinn ostur.
Ef buffin eru frosin, eru þau sett á
pönnu i smjörliki og hituð, þar til þau eru
þið. Þau eru siðan mulin gróft meðgaffli á
pönnu og sett til hliðar. Hakkið laukinn og
kraumið hann i smjörliki, setjið kjötiö
siðan i og hrærið vel saman. Þá eru
tómatarnir, hveitið og tómatmaukið sett
saman við. Ef buffin eru úr dós, er safinn
eða sósan af þeim sett meö i. Sjóðið við
hægan hita i 15 min., hrærið öðru hverju
og kryddið eftir smekk með kryddinu og
sósunni. Tabasco má aðeins setja i dropa-
tali, þvi hún er mjög sterk. Meðan kjöt-
sósan sýður, er spaghetti soðið i stórum
18
potti með miklu vatni og 1 msk salti. Það
þarf um 20 min. suðu. Hellið þvi i sigti,
setjið 1 msk smjör i pottinn og siðan
spaghettið aftur i. Hristið pottinn yfir
miklum hita um stund og setjið siðan
spaghettiið i stóra skál. Setjið hluta af
sósunni út á, en berið afganginn fram i
skál. Setjið skál með rifnum osti á borðið.
Karrýlundir
1 st. lundir (mörbrad)
2 stórir laukar
3-4 msk smjörliki
2- 3 tsk karry
2 msk hveiti
1-2 dós kjötbollur
3- 4 dl kjötseyði
salt og pipar
1-2 dl rjómi
3 stórir bollar hrisgrjón
grænar baunir.
Skerið lundirnar i strimla og laukana i
hringa. Brúnið hvort tveggja létt i
smjörlikinu, sem karrýið hefur áður verið
sett i. Hellið súpunni út i og hrærið var-
lega. meðan sósan jafnast. Sjóðið við
hægan hita, þar til kjötið er nær meyrt. Á
meðan eru 5 bollar vatns soðnir i öðrum
potti og i það sett salt, smjörliki ca 1 msk.
og hrisgrjónin. Hrærið i og setjið þétt lok
á, sjóðið i 12 min og slökkvið undir. Látið
pottinn standa, þar til kjötrétturinn er til-
búinn að minnsta kosti 10 min. til viðbitar.
Setjið kjötbollurnar út i sósuna og siðan
rjómann og bætið þá vatni i eftir þörfum.
Kryddið eftir smekk. Hitið baunirnar i
smjörliki og setjið þær saman við hris-
grjónin rétt áður en borið er fram.
Ostaþrihyrningar
9 stórar sneiðar af formfranskbrauði
eða samlokubrauði
smjör og 16-18
sneiðar af mildum osti
Smyrjið sneiðarnar og skerið
skorpurnar af. Leggið ostsneiðarnar á,
þannig að þær hylji brauðið, en standi
ekki út af þvi. Leggið sneiöarnar saman
þrjár og þrjár og smyrjið þá efstu. Skerið
þær siðan i kross á milli horna. þannig að
alls fáist 12 þrihyrningar.Leggiðþá á grill-
rist eða bökunarplötu og ristið þá i
ofninum 250 stiga heitum.
Þrihyrningarnir eru bornir fram með
hreðkum, gúrkusneiðum eða bara þvi
sem til er af fersku grænmeti.
Hvellterta
3 lagkökubotnar
1 pakki kremduft
mjólk
1 glas sherry
1 dós blandaðir ávextir eða slatti áf
frosnum berjum
sykur eftir smekk
flórsykur
Ef tertubotnarnir koma úr frystinum,
eru þeir settir i 170 stiga heitan ofn, þar til
þeir eru þiðir. Á meðan hrærið þið
kremduftið út i mjólk eftir þvi sem
leiðbeiningar segja til um á pakkanum.
Frosin ber eru sett á disk og sykri stráð
yfir. Hellið safanum úr dósinni yfir
botnana og sherrýinu út i kremið. Jafnið
kremlagi á tvo botna og setjið ávextina
eða berin ofan á Þriðji botninn er settur
efstur og flórsykri stráð á hann gegnum
sigti. Skreytt með ávöxtum eða berjum.
ís með súkkulaðisósu
Takið isinn út úr frystinum háll'ri klst.
áður en bera á hann fram og stingið
honum i kæliskápinn.
2 1 mjólkuris
150 gr. smurostur (hreinn)
7-8 msk kakó
50-100 gr sykur
3 dl heitt vatn
möndlur eða hnetur
Hrærið smurostinn saman við kakó,
heitt vatn og sykur eftir smekk i skaftpotti
með þykkum botni. Þeytið til sósan er
jöfn og sjóðið upp. Látið sósuna kólna en
hrærið i henni öðru hverju og bætið köldu
vatni i , ef hún ætlar að verða of þykk.
Sneiðið isinn i skálar eða á diska, hellið
sósunni yfir og stráið gróft söxuðum
möndlum eða hnetukjörnum yfir. ískex
eða marengs borið með.
Stórlúða er ljúffengur matur og gaman að mat-
reiða. Vegna stærðarinnar fæst hún yfirleitt
niðurskorin i hagkvæma bita eða sneiðar. Lúða
getur orðið allt að 500 kíló, en til er lika smærri
lúða, sem hentar betur á heimili. Reynið lúðu,
hún svikur engan. Munið þó að alveg glæný lúða
er ekki eins £óð, hún þarf að liggja nokkra daga,
áður en fina bragðið kemur, en það gerir hún
kannski um borð i bátum og skipum. Uppskrift-
irnar hér á eftir eru miðaðar við fjóra i mat.
0
D
D
D
/