Heimilistíminn - 07.03.1974, Side 19
4 sneiðar lúða, 150—200 gr, hver
safi úr einni sitrónu
salt og olia
Fisksneiðarnar eru vættar með sitrónu-
safanum og salti stráð á þær. Penslið með
oliu og grillið, þar til þær eru gegnsteikt-
ar. Borið fram með sitrónusneiðum og
steinséljustráðum kartöflum, remoulaði-
sósu og grænu salati.
Marineruð lúða
3/4—1 kiló lúðusneiðar, ca 3 cm þykkar
Lögurinn er gerður úr:
3/4 dl oliu, 1/4 dl sitrónusafa, 1/2 tsk salti,
2 msk. fintsöxuðum lauk, klipptum gras-
lauk og steinselju og krydda má hann eitt-
hvað.
Leggið fisksneiðarnar i eldfast fat. Bland-
ið oliu, sitrónusafa, salti og kryddjurtum
saman og hellið yfir. Látið siðan standa á
köldum stað i klukkustund eða svo meðan
fiskurinn drekkur i sig bragðið. Setjið þá
fatiðinn i 200stiga heitan ofn i 20—25 min-
útur. Berið fram i fatinu og hafið soðnar
kartöflur með.
Steikt lúöa með sósu
4 sneiðar lúða (1 á mann)
egg, rasp, hveiti
salt, pipar, feiti
2 stórir laukar
2 epli
4—5 tómatar
25 gr. smjörliki
Litið eitt af Tabascosósu.
Fisksneiðarnar eru meðhöndlaðar eins og
venjulega upp úr þeyttu eggi og raspi með
litlu af hveiti og kryddi i. Steikið upp úr
smjörliki og gætið þess að hafa ekki of
mikinn hita, svo sneiðarnar gegnumstei-
ist, án þess að brúnast of mikið. Kraumið
sneiddan laukinn i smjörliki, takið hann
19
Grilluð lúða \