Heimilistíminn - 07.03.1974, Page 20
upp úr og kraumið siðan niðurskorna
tómata og epli, þar til það er meyrt. Setjið
þá laukinn aftur saman við og bætið
nokkrum dropum af Tabascosósu i, en
varlega, þvi hún er eldsterk. Setjið slatta
af þessu á hverja sneið og berið auk þess
fram heitar kartöflur og steikarfeitina
með.
Lúða á frönsku
4 sneiðar lúða (1 á mann)
hveiti, salt, pipar
2 msk smjörliki
2 msk. olifuolia
2 laukar
1— 2 hvitlauksgeirar
2— 4 tómatar
timian, safi úr
1 sitrónu, 1 dl hvitvin
Veltið sneiðunum upp úr hveiti með salti
og pipar i og brúnið þær i blandi af
smjörliki og oliu. Leggið þær siðan i
smurt, eldfast fat. Kraumið saxaðan hvit-
laukinn, sneiddan laukinn og niðurskorna
tómatana i feitinni á pönnunni og kryddið
með salti og pipar. Jafnið þvi yfir fiskinn,
stráið yfir og hellið sitrónusafanum og
hvitvininu meðfram. Látið álpappir yfir
fatið og stingið þvi i 220 stiga heitan ofn i
15 minútur. Borið fram með steinselju-
stráðum kartöflum.
Ofnsteikt Iúða
4—6 sneiðar lúða,
salt, pipar, laukur,
tómatar, hvitvin
smjörliki, kartöflur
Ofnskúffan er smurð og fint saxaður,
kraumaður laukur lagður yfir hana alla.
Tómatarnir eru skornir i sneiðar sem
lagðar eru ofan á. Efst er fiskurinn lagð-
ur, kryddað er með salti og pipar og stóru
glasi af hvitvini hellt meðfram. Setjið
skúffuna i 200 stiga heitan ofn i 20 minút-
ur. Berið fram með kartöflum.
Lúöa i ostsósu
1 kiló lúða
3 msk. smjörliki
3 msk. hveiti,
salt, pipar,
1/4 tsk. múskat,
3 dl mjólk
100 gr rifinn ostur
paprika
Fiskstykkin eru roðflett og úrbeinuð, sið-
an lögð i smurt eldfast fat. Stráið salti og
pipar yfir. Bakið upp smjörlikioghveiti og
vætið-i með mjóik, þar til sósan er mátu-
lega þykk. Látið hana sjóða upp áður en
osturinn er settur i. Bragðbætt með pipar,
salti og múskati. Hellið sósunni yfir fisk-
inn og setjið fatið i 170 stiga heitan ofn i 45
minútur. Stráið papriku yfir að lokum og
berið fram með soðnum kartöflum.
20
Silfiuiúða
1 lúða (l 1/2—2 kg.)
salt, pipar
75 gr smjörliki
50 gr fint saxaður laukur
250 gr sveppir
2 msk klippt steinselja,
sitrónusafi
Lúðan er hreinsuð. Skerið rifu niður eftir
hryggnum á lúðunni og siðan út á við und-
ir stykkið, þannig að vasi myndast beggja
megin. Leggið fiskinn á stórt stykki af ál-
pappir smurðan með smjöri. Setjið allt
hitt inn i vasana, brjótið álpappirinn yfir
og lokið og stingið inn i 200 stiga heitan ofn
i hálftima. Borið fram með kartöflum eða
brauði eða hvoru tveggja.
Soðin lúöa i tómatmayonnaise
150—200 gr soðin lúða, úrbeinuð o.g
roðflett,
100 gr grænar baunir
100 gr rækjur
gúrka, tómatur
steinselja
100 gr. mayonnaise,
100 gr. sýrður rjómi
karry, tómatmauk, salt, pipar
Hrærið mayonnaisið upp með sýrða
rjómanum og bragðbætið með tómat-
maukinu. Setjið fiskinn út i varlega,
ásamt hluta af gúrkusneiðunum, baunun-
um og rækjunum. Skreytið siðan með af-
ganginum. Borið fram með ristuðu
brauði.
Gamall dúkur í
nýju hlutverki
Það er synd, hve oft gömlum. fallegum útsaumi er stungið niður i skúffu
eða inn i skáp, engum til gagns eða ánægju. Hér á myndinni hefur gamall
blúndudúkur verið dreginn fram i dagsljósið á ný, og hugvitssöm húsmóðir
sá, að hann var mátulegur sem gardinukappi eldhúsið. Ekkert þurfti að gera
annað en að þræða gorminn i gegnum göt á blúndunni.