Heimilistíminn - 07.03.1974, Qupperneq 39
munandi sterkt mótefni gegn sykri og
bakteríum og þaö er þaö sem tannlæknar^
kalla erföir. En þó að einhverjir i fjöl-
skyldunni hafi slæmar tennur, getur mað-
ur sjálfur gert allmikið til að bæta ástand-
ið. Einmitt þess vegna á ekki að láta þetta
eiga sig og hugsa sem svo, að ekki verði
hjá tannskenndunum komizt, heldur
leggja harðar að sér við að gæta tann-
anna.
Annað mikilvægt atriði er flúorinnihald
vatnsins. Greinilegt er, að börn af svæð-
um með flúorauðugu vatni, iiafa minna
skemmdar tennur en hin. Glerungurinn á
tönnum þeirra er sterkari og þvi er mót-
staðan gegn bakteriunum meiri.
— Er þá ekki um einhver önnur atriði
að ræða, þegar tennur skemmast i smá-
börnum?
— Það hljómar ef til vill einkennilega,
en mörg börn bókstaflega fæðast með
tennur með djúpum rákum. Ég er sjálft
eitt þessara barna, segir Inger Bay — og
ég var ekki nema smábarn, þegar sett var
þunnt silfurlag á tennurnar til að koma i
veg fyrir að rákirnar yrðu gróðrarstia
fyrir bakteriur. Margir tannlæknar eru
fúsir að gera þetta fyrir slik börn.
Við vitum lika, að börn, sem verið
hafa mikið veik og fengiö einhver ósköp af
lyfjum, fá oftar holur i tennur en önnur.
Rannsóknir á þessum börnum leiða i ljós,
ab barnalyf eru oft sæt á bragðið og oft fá
börnin siðasta lyfjaskammt dagsins i
rúminu, eftir að þau hafa burstað tenn-
urnar. Þá vinnur sykurinn i munninum
alla nóttina. Kóladrykkir eru skaðlegir
börnin sinar og loks bursta foreldrarnir
tennur barnanna. Þetta er mjög vel hægt
að gera að skemmtilegum hlut i stað þess
sem hann er — martröð fyrir alla aðila.
Þessum vana ætti að halda, alveg þar til
barnið fer að ganga i skóla. Það er mis-
ráðið að láta börnin sjálf um svo mikil-
vægan hlut, sem tannburstun.
Annað atriði, þar sem foreldrar
geta ráðið miklu, er mataræðið. Reynið
mjög snemma að venja barnið á heil-
næma fæðu og fjölbreyttán smekk i fæðu-
vali. Það er stórsynd gagnvart börnum,
að gera allan mat sætan fyrir þau. Það
gera alltof margar mæður, þegar á með-
an barnið er i vöggu. Dóttir Inger Bay,
Annette er 5 ára og hefur aldrei haft
skemmda tönn. Hún var á timabili ákaf-
lega hrifin af karrýsild og finnst ekkert
sérlega mikið koma til súkkulaðis.
Inger Bay heldur áfram: — Venjið
börnin á, að gulrót er mun betri á bragðið
en krembrauð eða kókosbolla. Auðvitaö
þurfa börn að fá sælgæti og sjálf er ég
ákaflega hrifin af disætum ábæti annað
slagið. En þá skola ég siðustu skeiðunum
niður með mjólk. Hún hreinsar vel, þar til
tækifæri er til að bursta tennurnar.
En þá skola ég siðustu skeiðunum niður
með mjólk. Hún hreinsar vel, þar lil tæki-
færi er til að bursta tennurnar.
Hvað börnin varðar, get ég helzt
ráðlagt einn mikinn sælgætisdag. Hjá okk
ur er það þannig, að ég keypti risastóra
glerkrukku og i hana er allt sælgæti sett,
sem til fellur á einni viku. Við fylgjumst
vel með þvi sem safnast og hlökkum
gjarnan til laugardagsins. Þá hökkum við
það allt i okkur. Á eftir skemmtum við
okkur jafnvel við að bursta tennurnar vel
og vandlega. Og siðan er að hlakka til
næsta laugardags.
— Varðandi flúor, sem kvað vera svo
hollt fyrir tennurnar. Er það ekki hættu-
legt heilsunni, ef það er notað i miklu
magni?
— Það hefur aldrei verið sannað, en
hins vegar getum við sannað, að börn,
sem fá tennurnar penslaðar með flúor,
hafa 40% minni tannskemmdir en hin. t
einstaka tiifellum er meira að segja hægt
að sanna allt að 70%) minnkun. Við er-
um mjög hlynnt fiúor eftir þennan árang-
ur.
— Getur tannlæknirinn gert meira fyrir
okkur en að athuga tennurnar á hálfs árs
fresti?
Hann gtur borið á tennurnar og kennt
rétta notkun tannburstans. Hann getur
lika kennt okkur að nota tannþráðinn.
Þráðurinn nær inn i öll skúmaskot i tönn-
unum og fjariægir alla matarafganga. Ég
nota hann á Anetta hálfsmánaðarlega.
Þráðurinn er varla viðurkenndur ennþá,
en ég er mjög hrifin af honum.
— Hvernig eigum við fullorðna fólkið
að bursta tennurnar svo rétt sé?
— Með fremur hörðum, þurrum bursta
gerum við skrúfhreyfingar á tönnunum,
bæði að framan innan og neðan, að sjálf
sögðu að ofan á tönnum neðri góms.
Það er fæðið, hreinsunin og flúorinn,
sem ræður. En ég viðurkenni, að það þarf
Framhald á bls. 4 6
fyrir tennurnar, en það eru allir gos-
drykkir, ef þeirra er neytt i miklu magni.
Og það á að gæta sin fyrir súrum mat eins^
vel og sætum. Það er ágætis ráð, þegar
neytt er sæts eða súrs, aö drekka litils-
háttar af mjólk á eftir. Hún hreinsar skin-
andi vel.
— = Hvað er hægt að gera fyrir tennur
barnanna sinna?
— Fyrst og fremst að kaupa tann-
bursta, helzt um leið og fyrsta tönnin
kemur i ljós. Leggið strax grundvöllinn að
þeim góða vana að hreinsa tennurnar.
Byrjið ekki strax'með tannkrem og þá að-
eins mjög litið fyrst. Munið að undir öllum
kringumstæðum er bezt að nota tannkrem
með flúor. Reynið að gera tannburstunina
að svolitlum fjölskylduviðburði. Fyrst
bursta mamma og pabbi sinar tennur, þá
39