Heimilistíminn - 16.05.1974, Blaðsíða 16

Heimilistíminn - 16.05.1974, Blaðsíða 16
Phyllis Keeble á 11 börn og það yngsta fæddist, þegar hún var 53 ára. Hér sézt hún með það úti að ganga. hall, þegar þau voru bæði 22 ára. Þau hlökkuðu til að eignast barn, en 25 ár liðu án þess að nokkuð gerðist. Þá frétti frúin af pillu, sem átti að auðvelda konum að verða ófriskar. Hún tók pilluna, vel vit- andi um að margar konur,sem höfðu orðið ófriskar með hjálp hennar, misstu fóstrið á fyrstu manuðunum. Hún vissi, að slikt myndi fá mjög á hana andlega, en mikil varð gleði hennar, þegar hún fæddi dóttur á 26. brúðkaupsdaginn sinn. Siðar vildi hún ekki taka pilluna af ótta við aðjpignast tvibura. Silfurbrúðkaup — Ég held, að silfurbrúðkaupið okkar hafi átt einhvern þátt i þessu, sagði frú Broomhall eftir fæðinguna. —Við höfðum verið gift i 25 ár, ég hafði heyrt um pill- una og þá nótt tók ég hana. Dálitlu siðar fannst mér ég vera eitthvað undarleg, mér leið ekki illa, bara skrýtilega og fór þvi til læknis. Þegar hann sagði mér, að ég væri ófrisk varð ég yfir mig hamingju- söm. Barn! Ég sem var 48 ára! Dóttirin Joyce leit dagsins ljós eftir keisaraskurð, og frú Broomhall segir að lifið hafi gjörsamlega tekið stakkaskipt- um. Það væri dálitið undarlegt að eignast barn, þegar allar vinkonurnar væru að eignast barnabörn. Nú er Joyce fimm ára. Samkvæmt opinberum heimildum er frú Winifred Wilson elzta móðir i Evrópu. Hún var 55 ára, fimm mánaða og tiu daga gömul, þegar hún eignaðist dóttur árið 1937 i Cardiff. Nú er dóttirin gift og móðir. 1 október 1965 eignaðist frú Phyllis Keeble i Essex ellefta barn sitt. Þá var hún 53 ára og sjö barna amma! Eina sanna ástæða til þess að Hrói llöttur stal frá þeim ríku, var sú, að þeir fátæku áttu ekkert til aö stela. * Miklu betra væri nú,að við gætum séð annað fólk.eins og það sér sig sjáift. *' Bernskan er sá hamingjutimi, þegar martraðir konta aðeins fyrir i svefni. * Enginn er vitrari en sá, sem þegir... á réttu augnablliki. * Allar konur eru eins... nema þær sem eru meira eins og aðrar. * Vinsælasta vetrariþróttin er að fara með flugvél til Spánar. * Sá sent helciur, að hann viti allt, fer i taugarnar á okkur, sem gerum það. I.itil ihúð er betri en stórt skuldabréf. Eitt er gott við skó sem særa. Þú gleymir öllunt hinum áhyggjunum. * Svartsýnismaðurinn hefur oftar á réttu að standa, en bjartsýnismaður- inn er oftar ánægður. Það bezta við göntlu, góðu dagana er... aö þeir konta ekki aftur. 16

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.