Heimilistíminn - 16.05.1974, Page 29

Heimilistíminn - 16.05.1974, Page 29
hvort þú værir hamingjusamur. — Það er sagt, að það sé erfitt að byggja hamingju sina á tárum annarra, sagði Janet hægt. Þessi orð sátu i vitund minni löngu eftir að hún var farin. Það kom fyrir, að ég lá vakandi um nætur og starði upp i myrkt loftið og hugsaði um, hversu heitt ég elsk- aði þig. Og svo komu tárin... Sólgullnir dagarnir liðu hjá eins og glitrandi perlur á bandi. Á hverjum degi gerðist eitthvað nýtt og dásamlegt — og með hverjum degi færðumst við nær þvi óumflýjanlega. Haustið kom og við tókum aftur að kveikja upp i arninum. Stormasamt októ- berkvöld rauf siminn þögnina. Ég sá þig risa á fætur og svara i sim- ann, og ég vissi áður en þú svaraðir, að þetta væri konan þin. Ég stóð þarna stjörf og orðvana af hræðslu og heyrði þig stynja við og segja: — Nei! Ó, nei! ... Og svo strax á eftir: — Ég kem eins fljótt og ég get. Þú lagðir simtólið á og snerir þér að mér. Þú varst náfölur af örvæntingu. — Ég verð að fara á stundinni, Kate. Það er Jamie. Hann varð fyrir bifreið. Hann hefur verið lagður inn á sjúkrahús. Það var ekkert, sem ég gat sagt. Þú straukst yfir hárið á mér. — Ég veit ekki, hvenær ég kemst til baka. En ég kem, þvi lofa ég þér. Ég hjálpaði þér við að láta niður og vissi með sjálfri mér, að þetta var alls ekki satt. Það gat svo sem verið, að þú kæmir aftur, en ekki til þess að búa hér lengur. Það gæti farið svo, að þú kæmir aftur, en það væri aðeins til að segja mér, að þú ættirengra kosta völ, þú yrðir að vera hjá syni þinum. Þú gætir ekki yfirgefið hann einu sinni enn. Þú myndir grátbiðja mig um að skilja þetta, og ég myndi gráta og biðja þig um að fara ekki frá mér. Þú myndir neyðast til að losa hendur minar með valdi, þvi að ég myndi rig- halda i þig, og fingur minir yrðu eins og klær. Svo myndir þú snúa þér hratt við og hlaupa i burtu frá litla húsinu okkar, þvi að þú myndir ekki megna að horfast i augu við mig. Og ég stæði eftir og sæi bifreiðina aka i burtu, ég myndi æpa á eftir þér, að þú yrðir að nema staðar. Árangurslaust... Arangurslaust... Og þá yrði ekkert til að rjúfa þögnina nema örvæntingarfullur grátur minn, þangað til ég orkaði ekki lengur — siðan myndi tómleikinn og einveran renna upp fyrir mér. Það myndi verða augljóst, að þetta væri satt i raun og veru — þú værir farinn i burtu frá mér, og að þú myndir aldrei koma aftur. Og ég myndi óska þess eins að fá að deyja... Ég var ekki nógu sterk til að biða þessa löngu daga eftir þér, eða öllu heldur eftir vissunni um, að þegar þú kæmir aftur, væri það til að kveðja. Ég setti niður i töskur fyrir þig, og ég gerði mér ljóst, að jafnskjótt og þú værir farinn, myndi ég láta ofan i töskurnar minar og fara lika. Strax sama kvöldið. Þú barst töskuna þina út i bifreiðina, svo komstu aftur inn og stóðst og horfðir á mig: — Mér þykir fyrir þessu, Kate, en ég verð að fara. Þú skilur þetta, ekki satt? — Jú, stundi ég upp. — Hann er sonur þinn. Þú verður að vera hjá honum. Þér þykir vænt um hann. — Það er allt svo einfalt hjá þér, Kate litla, sagðir þú hægt. — Þú elskar eða hat- ar — það er ekkert þar á milli. — Nei, það er ekkert þar á milli. Þú hafðir opnað dyrnar á leiðinni út, en svo snerir þú þér við. Siðan sagðir þú lágt: — Og hvað getur maður gert, Kate, ef maður elskar tvær manneskjur, og þessar tvær manneskjur eru ekki á einum og sama staðnum? Og þegar ég svaraði engu, bættir þú við: — Og hvað á maður að gera, ef annar aðilinn er þar að auki barn? Ég svaraði engu enn, og þú gekkst út að bifreiðinni. Þú ræstir hana, ókst aftur á bak og sveigðir út á veginn. Stundarkorni siðar varst þú úr augsýn og ég fór aftur inn og sat góða stund fyrir framan kulnandi glæðurnar i arninum. Loks reis ég á fætur og gekk striðbusalega að simanum. — Janet, það er ég, sagði ég, þegar ég hafði náð samandi. Má ég koma og búa hjá þér um tima? Ég kem til með að þarfnast sannrar vináttu fyrst um sinn.... Ég hitti þig ekki aftur, Steve. Ekki fyrr en i dag. ÞAÐ VAR hætt að rigna, þegar ég kom út úr lestinni. Þokan myndaði helgibauga umhverfis ljósin á brautarpallinum. Joe gamli, stöðvarstjórinn, stóð þarna i siðum regnfrakka og með sigarettu I öðru munnvikinu, eins og hann var vanur. — Komdu sæl, frú Moore, sagði hann, þegar hann sá mig. — Leiðindaveður, ha? ömurlegt að fara alla leið til Lundúna og hafa ekkert annað en rigningu og þoku upp úr krafsinu! Ég hristi höfuðið. — Ég hafði nú annað og meira en rign- ingu og þoku upp úr þessu ferðalagi, Joe, sagði ég hægt. Allt I einu var ég svo dauðþreytt. Ég sá ljósin á bifreiðinni, sem beið eftir mér og gekk að henni. David, — elsku góði tillitssami David hafði yljað vesalings særða hjartanu i mér og hjúkrað þvi á meðan það var að jafna sig að fullu. Eiginlega að fullu ... David, sem var svo sterkur og hlýr og hafði til að bera alla þá eiginleika, sem eiginmann prýða. Nema hann er ekki þú. Og Stephanie.... Það var hlýtt og notalegt inni i bifreið- inni, og ég sá, að rigningin glitraði i hári hennar alveg eins og á þér. Ég settist við hlið hennar og strauk yfir hár hennar, alveg eins og mig hafði lang- að til að gera þarna á gangstéttinni, og ég minntist fagra maidagsins, þegar hún fæddist — sjö mánuðum eftir að ég fór frá Trefelin. David brosti til min: — Var gaman, elskan min? Ég leit á þennan fámælta, elskulega mann og á Stephanie, sem brosti til min, svo að blá augu hennar ljómuðu. — Já, svaraði ég og varð hugsað til þin, þar sem þú stóðst i rigningunni og horfðir á giftingarhringinn minn og sagðir: — Þú átt mann, Kate. Og börn? David kyssti mig bliðlega á vangann. — Ósköp er hárið á þér fallegt, sagði hann og ræsti bifreiðina. Stephanie kinkaði kolli ákaflega. — Já, en þú ert svo skringileg til augn- anna! Hún horfði forvitnislega á mig. Ég sat kyrr og hugsaði um, hverju ég hafði svarað þér: — Nei...nei, engin börn Steve! Mér fannst ég svo óendanlega döpur og einmana, svo að ég teygði fram höndina i áttina til David. — Sjáðu augun á mömmu, heyrði ég Stephanie segja með sinni barnslega undrandi rödd. — Pabbi, það er rigning i augunum á mömmu...! 29

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.