Heimilistíminn - 16.05.1974, Síða 34
stUlku, sem lengi var búin að þjást i ástar-
sorg hans vegna, Sonju Behrs.
Sonja komst áð raun um, að hún var gift
manni, sem i raun og veru var tvær per-
sónur. Annars vegar var hortugur greifi,
sem endilega vildi vera bóndi, og hafði
yndi af svallveizlum, og hinsvegar dáður
hugsuður og rithöfundur, sem virtist
hvergi hamingjusamur nema á meðal
barna.
Ari eftir að hann gekk i hjónaband
ákvað Tolstoy að gera þessar góðu og
slæmu hliðar sinar, efasemdir og ótta, að
fyrirmynd persónu i ritverki. Það, sem
meira var, svið bókarinnar sjálfrar átti
að endurspegla hina eilifu baráttu góðs og
ills hið innra með hinum sjálfum.
Næstu sex árunum eyddi Tolstoy i að
koma hugsunum sinum i orð i ritverkinu
,,Strið og friður.” Siðan, meðan æstir út-
gefendur lofuðu honum gulli og grænum
skógum fyrir næsta ritverk, sneri hann
sér af alhug að verkefnum þorpsskólanna,
og aðþvi að læra forngrisku. Hann skeytti
engu bænum konu sinnar um peninga, en
lifði sinu ljúfa lifi i sjö, löng ár. Loksins
og að likindum fyrir sárbeiðni konu hans
sneri þessi furðulegi maður sér að þvi að
skrifa aðra bók, og á tveim árum, 1875 til
1877 lauk hann við „önnu Kareninu.”
Hvað er hægt að segja um mann, sem
hefur skrifað það, sem álitið er vera ein-
hver bezta skáldsaga allra tima, og sezt
siðan niður i hálfgerðri fýlu og skrifar þá
næst-beztu? Á þvi er enginn vafi, að hann
var snillingur, bókmenntalegt ofurmenni.
En það liggur alveg jafn ljóst fyrir, að það
hlýtur að hafa verið martröð að búa með
honum.
Ef til vill er það furðulegasta við
Tolstoy sem mann,staðreyndin, að hann
breyttist aldrei. Hann hélt áfram að
skrifa af snilld. Ár eftir ár hélt hann
áfram leit sinni að andlegum sannindum.
Hann var sifellt i leit að dyggðum og ein-
faldleik, sem alltaf forðuðust hann.
Það gat ekki hjá þvi farið, að dýrlingur-
inn I eðli hans gæfi i burtu lendur hans og
húseignir. En hann sá ekkert athugavert
við það, að burgeisinn i honum skyldi gefa
þetta eiginkonu hans i stað bændanna og
vinnufólksins, svo að lifnaðarhættir hans
breyttust i engu frá þvi, sem verið hafði.
Fjörutiu ára hjónaband með þessum
skapmikla snillingi setti sitt mark á
Sonju. Auk þess að ala upp stóra fjöl-
skyldu, lenti mesta erfiðið af daglegum
rekstri býlisins á herðum hennar. Hún
hafði meira að segja tekið að sér að vera
einkaritari eiginmannsins. Hvorki meira
né minna en sjö sinnum handskrifaöi hún
upp aftur „Strið og frið.”
Svo rak að þvi, að hegðun greifafrúar-
innar var farin að verða jafnvel enn.
furðulegri en hegöun greifans, og gat
raunar ekki talizt neitt undrunarefni.
Vissulega hlaut manneskjan að vera
komin á barm örvæntingarinnar af öllum
þessum ósköpum, og enn bættist það ofan
34
á, að Tolstoy hugði á að gefa útgáfuréttinn
af bókum sinum.
Um nokkurt skeið hafði verið grunnt á
þvi góða á milli þeirra hjónanna, en þegar
hann heyrði hana vera að rjátla i skjölum
hans, fannst honum full-langt gengið.
Slika afskiptasemi fannst honum hann
ómögulega geta þolað. Hann ætlaði að
yfirgefa heimili sitt fyrir fullt og allt.
Hvarf Tolstoys hafði óskaplegan gaura-
gang i för með sér, og greifafrúin reyndi
allt hugsanlegt til að svipta sig lifi, þótt
þær tilraunir hafi ef til vill ekki verið sem
alvarlegastar. Hún henti sér i vatn, siðan
út um glugga og loks niður i brunn. Svo
stakk hún prjónum i sig og krafðist þess ,
að eiginmanni hennar væru send sim-
skeyti, svo að hann gæti fylgzt með þvi,
sem gerðist.
En Tolstoy var á hröðum flótta og stefndi
til Kákasus, þar sem hann hafði dvalizt
ungur maður. Loks gerðist það i bænum
Astapovo, að honum fannst hann svo að-
framkominn, að hann gæti ekki haldið
lengra. Þar andaðist hann úr lungna-
bólgu eftir fimm daga legu.
Hann lét eftir sig erfðaskrá, þar sem
hann mælti svo fyrir, að hann skyldi graf-
inn „i ódýrasta kirkjugarði i ódýrustu
kistu.” Þessu skeyttu menn engu, og
Tolstoy var grafinn við hlið forfeðra sinna
á Jasnaja Poljana.
Hann hefði áreiðanlega móðgazt stór-
lega, ef einhverjum hefði komið til hugar
að grafa hann annars staðar.
ERU ÞÆR EINS?
— Hann hefur allt af verið snillingur að fara með tölur. Myndirn-
ar virðast eins, en sex atriðum hefur verið breytt á neðri mynd-
inni. Lausn i næsta blaöi.
/