Heimilistíminn - 27.01.1977, Page 12

Heimilistíminn - 27.01.1977, Page 12
BBBBBBSBBI Barnasagan: m Lewis Carrol: Lísa r 1 U ndralandi Dans krabbanna 10. þáttur. Skjaldbökubróðirinn andvarpaði nú mæðu- lega og þurrkaði sér um augun með hrammin- um. Hann leit á Lisu og reyndi að segja eitt- hvað, en gat engu orði upp komið fyrir stunum og andvörpum. ,,Það er engu likara en að bein standi i honum”, sagði flugskrimslið og fór að hrista hann allan til og slá hann á bakið. Að lok- um fékk þó skjaldbökubróðir málið aftur. Hann hélt áfram sögu sinni, en á meðan streymdu tárin niður kinnar hans. ,,Þú hefir vist ekki verið lengi neðansjávar — ” (,,Nei, það hefi ég ekki verið”, anzaði Lísa) — ,,og þú hefir þess vegna aldrei kynnzt krabba —” (Lisa byrjaði að segja: „Ég hefi einu sinni smakkað —” en hún áttaði sig og sagði aðeins: „Nei, aldrei”) — „og þá veiztu k ekki hvað krabbadansinn er unaðslegur?” „Nei, það veit ég ekki. Hvers konar dans er það?” spurði Lisa. „Það skal ég segja þér”, sagði flugskrimslið. „Fyrst er mynduð röð i fjörunni —” „Tvær raðir!” greip skjaldbökubróðir fram i. „Seiir, skjaldbökur, laxar o.s.frv. — og svo þegar öllum marglyttum er rutt úr vegi —” „Og það tekur venjulega talsverðan tíma”, greip flugskrimslið fram i —” „Þá er gengið áfram, tvö skref”, „Sérhver leiðir sinn krabba”, kallaði flug- skrimslið. „Já, vitaksuld”, sagði skjaldbökubróðir, „sem sagt tvö skref áfram og eitt til hægri”. 12

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.