Heimilistíminn - 14.04.1977, Síða 7
Popp-koriiid
BARBI
BENTON
Barbi Benton er nýtt nafn i
skemmtanaiönaðinum. Þótthúnsé svo
til ný af nálinni, hefur Barbie tekizt að
koma út ekki færri en þremur breið-
skifum og sú fjórða er á leiðinni.
Fyrsta platan hét „Barbie”, sú næsta
,,Barbiedoll”ogsú þriðja „Something
New”: Engin þessara platna hefur
skapað nokkra ólgu, en eftir sölunni aö
dæma, á þessi unga, bandariska stúlka
dágóðan aðdáendahóp.
En Barbi' Benton er ekki mikil
söngkona. Hún hefur nú nýlega lokið
fyrstu hljómleikaferðsinni um Evrópu
og viða voru gagnrýnendur óvægnir
mjögi dómum. Sumirsögðu þó, að hún
væri mjög aðlaðandi og tækist að ná
góðu sambandi viö áheyrendur sina.
Barbi Benton hlaut frægö sina i ein-
um af sjónvarpsþáttum „McCloud”
Þar kom hún fram sem söngkona og
gerði það vist svo vel að hljómplötu-
samningurinn var kominn heim til
hennar tilbúinn til undirritunar um
leið og þátturinn hafði verið sýndur i
sjónvarpinu.
Barbi Benton er fædd i Sacra-
mento, en flutti til Hollywood eftir stú-
dentspróf. Þar hugðist hún læra til
dýralæknis, en kvikmyndaborgin hef-
ur upp á margt annað að bjóöa og ekki
leið á löngu unz Barbi komst aö raun
um að hún vildi heldur verða leikkona.
t þrjú ár nam hún leiklist hjá Jeff
Corey og Charles Conrad og fékk jafn-
framt smáhlutverk i auglýsingamynd-
um. Bráttfékk hún verk að vinna i vin-
sælum sjónvarpsþáttum og fólk fór að
taka eftirhenni.En mesta frægö hlaut
hún þó fyrir að vera stúlka mánaðar-
ins i timaritinu Playboy og um langt
skeið vinkona eigandans, Hughs Hefn-
er.
Barbi er nú 27 ára og ákveðin i aö
veröa kvikmyndaleikkona, en þangað
til nyturhún góðs af sölu á breiöskifum
sinum.
V
7