Heimilistíminn - 22.02.1979, Qupperneq 16
FLA UELISSA UMURINN
ER SKEMMTILEGUR
Hafið þið nokkurn tima
reynt að sauma flauelis-
saum? Ef ekki, þá er kom-
inn timi til þess að reyna
það. Þessi saumur er næsta
óvenjulegur, og hann má
nota á óendanlega marga
vegu. Hægt er að sauma
hann i prjón og efni, og nota
hann til skrauts á fatnaði
eða þá i heila púða, allt eftir
þvi, sem ykkur langar til.
Saumur þessi er fljótlegur
og einfaldur og við ætlúm
að birta hér munstur til að
fara eftir, og nokkrar hug-
myndir að þvi, hvernig má
nota sauminn.
En fyrst er það saumaað-
ferðin.
1. Svona litur flauelissaumurinn út frá upphafi til
enda. Þið byrjið á þvi, að teikna munstrið, sem þið
ætlið að nota, á smjörpappir. Siðan fáið þið ykkur
plastlok eins og höfð eru yfir smjördósunum, sem
fást i öllum verzlunum. Dragið munstrið upp á
dósarlokið og klippið siðan út með beittum skærum.
Þá er komið það, sem þið eigið að sauma utan um. Á
fyrstu myndinni sjáið þið fiðrildisvæng, en það er
einmitt fiðrildi sem ætlunin er að láta ykkur
sauma, frá upphafi til enda.
2. Þá er komið að þvi að byrja að sauma flauelis-
sauminn. Þið notið ullargarn, og hafið þrjá þræði i
nálinni. Annars má vist nota hvaða garn sem er, allt
eftir þvi i hvað er saumað, og hvaða garn fer bezt
við efnið. Þegar búið er að sauma utan um plastið,
sem þið klipptuð út, er eins og þið hafið saumað flat-
saum, og hann verður nokkuð þykkur, vegna þess
að garnið er þrefalt og af þvi að saumað hefur verið
utan um plastið.
3. Næst er klippt upp úr saumnum, en áður verður
reyndar að festa hann niður á bakhliðinni. Þið fáið
ykkur tvinna i sama lit og efnið, sem saumað er i, og
festið þræðina niður að aftanverðu með aftursting.
Afturstingurinn er saumaður á miðjan „flatsaum-
inn,” eins og strik eftir öllu munstrinu. Klippið svo
upp úr „flatsaumnum” á réttunni eins og sýnt er á
mynd no. 3. Klippið á mitt hvert einasta spor.
*