Heimilistíminn - 22.02.1979, Síða 37
ICELANDIC NATIONAL DRESSES
s
s
9
é
Hvað heita
litlu telpurnar?\
Dæmalaust eru þær fallegar litlu stúlkurnar á myndinni.
Þetta er 50 til 60 ára gamalt póstkort, sem Atli ólafsson í
Leðuriðjunni kom með til okkar, og bað okkur að birta með
fyrirspurn um það, hvort einhver þekkti sig á myndinni.
Eins og lesa má á ensku er þetta kort ætlað tíl þess að kynna
íslenzku þjóöbúningana, og stúlkurnar eru sagðar 6, 3 og
fimm ára gamlar. Ef einhver kannast nú við stúlkurnar væri
gaman að fá upplýsingar um það.
Einnig komum við þeirri hugmynd hér á framfæri, hvort
ekki gæti verið gaman að birta f leiri myndir á borð við þessa
með óskum um frekari upplýsingar. Mikið er til af merki-
legum gömlum myndum, sem fólk geymir, en veit ekki hin
minnstu deili á. Ef einhver hefur áhuga á sliku gæti hann haft
samband við ritstjóra Heimilis-Timans, Fríðu Björnsdóttur í
síma 3 12 33.
Slæm samvizka er aðeins
samvizka, sem gerir
skyldu sína.
Nágrannar eru fólk, sem
veltir því fyrir sér, hvenær
bannsett veizlan er búin.
Betri er hárlaus haus held-
ur en enginn haus.
Mikið dáumst við að vizku
þess, sem leitar til okkar
um ráðleggingar.
Mikið eru þeir vitlausir,
sem halda, að Robinson
Crusoe hafi verið þekktur
óperusöngvari.
Prófessor nokkur hefur
eytt í það miklum tima, að
komast að þvi hvers vegna
prófessorar almennt eru
svona utan við sig. Hann er
búinn að gleyma niðurstöð-
unni.
Sá, sem hefur á röngu að
standa, en vill aldrei viöur-
kenna það, verður alltaf
vitlaus.
37