Heimilistíminn - 14.09.1978, Side 37
Gauti Ilannesson:
Föndurhornið
Fjósastóll —
fótskemill eöa
barnastóll
Fólk fær sjaldan sömu
hugmy ndirnar, nema
þegar það er að kaupa
brúðargjafir.
Flestir hlutir eru erfiðir
áður en þeir verða léttir.
Hér kemur teikning af litl-
um skemli, sem drengirnir i
sveitinni geta smiðað handa
mömmu sinni til að sitja á,
meðan hún mjólkar kýrnar.
teikningin skýrir sig sjálf. —
Lengdin er 30 sm. og hæð 18
sm. breidd 16 sm. — efnið er
fura og er skammelið neglt
saman, helzt með galvan-
húðum nöglum, svo að
þeir ryðgi ekki. Málið og
lakkið. Notið gólflakk.
Annars er hægt að gera
fleira við þennan stól en
nota hann fyrir fjósastól.
Það má setja svamp ofan á
hann og klæða hann svo,
annað hvort með einhverju
fallegu húsgagnaáklæði,
eða útsaumuðu stykki, og
hafa hann fyrir fótskemil
eða bara lágan stól handa
litlum gestum, sem stund-
um koma i heimsókn.
Sinnep gefur gott minni.
Ef þú borðar fulla krús
gleymir þú því aldrei.
Það getur verið viturlegt
að efast um meiningar, en
það er kjánalegt að rífast
um staðreyndir.
Ástæðan fyrir þvi að
öryggisbelti eru höfð i bil-
um er sú, að þú þarft helzt
að vera á lífi þangað til
siðasta afborgunin hefur
verið greidd.
Leyndardómurinn við flest
hjónabönd er . . .eintómur
leyndardómur.
Konur halda þvi fram, að
þær séu snjallari en karlar,
en hefur þú nokkurn tima
séð karlmannsskyrtu, sem
á að hneppa aö aftan?
37