Heimilistíminn - 17.05.1979, Side 18
MÖNDLU-
TERTA
MEÐ
MOKKA-
RJÓMA
Það er tiðara erlendis en
hér að fólk fái tertu i eftir-
rétt við hátiðleg tækifæri en
þessi terta er einmitt sögð
ágætis endahnútur á vel-
heppnað kvöldverðarboð
Botninn: 2 eggjahvitur, 1 1/2 dl
siktaöur flórsykur, 150 grömm
malaöar, óskrældar möndlur.
Sósa: 3dl rjómi 1 dl sykur 1 msk. siróp
Mokkarjómi: 3 dl rjómi 1 msk kakó 1
tsk kaffiduft.
Stillið ofninn á 175 stíg.
Bl.andió saman efnunum i sósuna i
pottmeð þykkum botni, og látið sjóöa
en hrærið I á meöan i ca. 15 minútur,
eða þar til sósan fer að þykkna.
Þeytið eggjahviturnar þár til þær
eru stifar og bætiö út i flórsykri og
möndlum. Breiðiö deigið yfir botninn 1
kringlóttu formi ca. 20 cm i þvermál.
Bakiðí miðjum ofni Ica. 8 minútur eöa
þar til kakan er ljósbrún.
Náiö kökunni þegar úr forminu og
leggiö hana á diskinn sem hún á að
berast fram á. Berið sósuna á botninn
á meöan hann enn er volgur. Látið
kökuna kólna.
Þeytið rjómann og bragðbætið hann
með kakói og kaffi. Breiðið hann yfir
kökuna ogstráið ofurlitlu af kaffiduft-
inu og súkkulaöispónum yfir til
skrauts.
Berið kökuna fram iskalda úr is-
skápnum. Þá er hún allra bezt.
ENGIFER OG
RABARBARI MEÐ
RJÓMA EÐA ÍS
Rabarbararéttinn getið þið útbúið
nokkru áður en bera á hann fram, en
þið hitið hann ofurlitið upp sköminu
áður en hann á að fara á borðið.
500grömm rabarbari, 1 dl sykur, 1/2
tsk. malaður engifer.
Hreinsið rabarbarann og skerið
hann niður i ca. 3 cm langa bita. Setjið
hann ipott með sykrinum oglátið hann
bráðna við litinn hita undir loki.
Blandið engifernum saman við. Lát-
ið þetta kólna, og berið svo fram með
is eða þeyttum rjóma.
1
«