NT - 07.05.1984, Page 2
Itt'
Skotmaðurinn í Danielsslipp:
Man óljóst
eftir því
sem gerðist
■ „Við reyndum bara að
halda athygli mannsins við okk-
ur á meðan víkingasveitarmenn
réðust til uppgöngu án þess að
hann yrði þeirra var“, sagði
Bjarki Elíasson yfírlögreglu-
þjónn þegar NT afíaði hjá hon-
um frekari frétta af skotbardag-
anum í Daníelsslipp. Þar lét
rúmlega þrítugur sjómaður
höglum rigna yfír mannfjölda
sem dreif að og nærliggjandi
hús. Maðurínn var ölóður og
man óljóst eftir því sem gerðist.
Lögreglunni hefur verið til-
kynnt um að minnsta kosti fimm
bifreiðar sem skemmdust og
um helgina hafa verið teknar
skýrslur af fjölda manns sem
voru nærri vettvangi. Nokkrir
húseigendur hafa tilkynnt um
skemmdir á útveggjum af hagl-
hríðinni og á einum stað flugu
högl í íbúðarhús og brutu þar
rúðu. Athygli hefur vakið að
víkingasveitir lögreglunnar
mættu þá fyrst á staðinn þegar
skothríðin hafði staðið í klukku-
stund.
Að sögn Bjarka Elíassonar
var ákvörðun um það að kalla
sveitina út tekin eftir að sýnt
þótti að venjulegir lögreglu-
þjónar gætu ekki bugað mann-
inn og ekki var hægt að tala
hann til. Á staðnum voru þá
allir lögregluþjónar aðalstöðv-
arinnár sem voru á vakt og voru
sumir þeirra í skotheldum
vestum. Erlendur Sveinsson
varðstjóri hafði meðferðis
haglabyssu sem lögreglan hefur
og er allajafna notuð til þess að
aflífa særða fugla. Úr brota-
járnshrúgu handan við slippinn
varðist Erlendur svo manninum
og skaut nokkrum skotum í
byrðing bátsins þar sem maður-
inn stóð.
Gægst fyrir húshorn þegar skothríðin stóð sem hæst niður við Daníelsslipp.
Haglabyssunni stal maðurinn
úr trillu við Grandagarð á föstu-
dagsmorguninn og var þá í
félagi við tvo aðra menn. Um
kvöldið fór hann svo á vettvang
og mun þá hafa komið úr húsi í
vesturbænum. Hans varð fyrst
vart þar sem hann stóð á horni
Vestugötu og Framnesvegar.
Óstaðfestar fregnir herma að
áður en skothríðin hófst hafi
maðurinn komið við á bifreiða-
stöð í borginni og haft í hótun-
um við menn.
Maðurinn sem þarna var að
verki er rúmlega þrítugur sjó-
maður norðan af Skaga. Hann
mun vera fráskilinn og sam-
kvæmt heimildum NT var þarna
á ferð dugandi sjómaður sem til
þessa hefur ekki verið þekktur
af neinu misjöfnu. Ekkert hefur
komið fram í rannsókn lögregl-
unnar sem skýrt getur þetta
athæfi mannsins og sjálfur man
hann óljóst eftir atburðunum en
hann var áberandi ölvaður.
Ekki er ósennilegt að ölvun
hans hafi komið í veg fyrir að
NT-mynd Sverrir
hann særði nokkurn.
í gær hófust yfirheyrslur yfir
manninum og var hann úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 20. júní
þrátt fyrir kröfu um að vistin
stæði til 5. júlí. Haglabyssunni
hefur enn ekki verið skilað til
réttra aðila heldur er hún enn í
vörslu lögreglunnar.
VIPPU-
bílskúrshurðin
Lagerstærðir 210 x 270 cm,
aðrar stærðir eru smíðaðar eftir beiðni
Gluggasmiðjan Síðumúla 20
Reykjavík - Símar 38220 og 81080
Sumarbúðir og
útilífsnámskeið
fyrir 8-12 ára börn á vegum skáta að Úlfljótsvatni.
1.a. 8.júníföstudagur til 15.júníföstudagur
1.b. 15.júníföstudagur tii 22.júníföstudagur
2.a. 25.júnímánudagur til 2.júlímánudagur
2. b. 2.júlímánudagur til 9. júlí mánudagur
3.a. H.júlímiðvikudagur til 18. júlí miðvikudagur
3. b. 18.júlímiðvikudagur til 25. júií miðvikudagur
4.a. 27.júiíföstudagur til 3.ágústföstudagur
5.a 7. ágúst þriðjudagur til 14. ágúst þriðjudagur
5. b. 14.ágústþriðjudagur til 21.ágústþriðjudagur
Innritun fer fram virka daga kl. 13-17 í Skátahúsinu við Snorrabraut
60, Reykjavík. Upplýsingar eru veittar í síma 15484 á sama tíma.
Ú.V.R.
Kúluhúsið í Eyjum:
Þrisvar sinnum minni
kyndingarkostnaður
■ Kristján Bogason flutti verslun sína, Rafeind, í nýja kúluhúsið
s.l. laugardag, en nokkru áður hafði önnur verslun tekið þar til
starfa. A efri hæð kúlunnar er hann að innrétta sér stóra og góða
íbúð.
NT-mynd Ingveldur
■ „Það er nú orðum aukið að
kyndingin kosti ekkert. Aftur á
móti hefur það komið verulega
á óvart hve lítið vatn þarf til að
kynda svona stórt hús. Það er
um 1.470 rúmmetrar að stærð
og hefur aðeins þurft um 3,5
tonn af vatni á sólarhring til að
halda því funheitu. Það er svip-
uð vatnsnotkun og þarf til að
kynda nýleg einbýlishús sem
eru um þrisvar sinnum minni að
rúmmáli“, sagði Kristján Boga-
son, eigandi fyrsta og eina - enn
sem komið er - kúluhússins sem
byggt hefur verið í Vestmanna-
eyjum. Til viðmiðunar má geta
þess, að á taxta Hitaveitu
Reykjavíkur mundi kynding
hússins kosta um 1.600-1.700
kr. á mánuði.
Kristján sagðist búinn að
kappkynda húsið í tvo mánuði.
Mesta kyndingu þurfi venjulega
meðan rakinn sé að fara úr
nýbyggingum, þannig að líklegt
sé að kyndingin muni fremur
lækka en hitt. Auk þess sagði
hann enn ekki lokið við að
einangra efri hæðina.
Höfuðástæðu hinnar góðu
hitanýtingar taldi Kristján vera
byggingarlagið. Hvolfið geri
það að verkum að flatarmál
útveggja sé miklu minna en í
jafn stórum, venjulegum
húsum. En einnig sé það vel
einangrað - þ.e. með 6 tommu
einangrun í öllu húsinu.
Þegar
Svavarog
Friðrik
hrundu af
stallinum
■ Ummæli sem Morgunblað-
ið hafði eftir Friðriki Sóphus-
syni, alþingismanni, af fundi á
Seltjarnarnesi fyrir helgina, að
setja þurfi formann Sjálf-
stæðisflokksins á þann stall
sem honum beri, vöktu kátínu
meðal alþingismanna. Reynd-
ar var hér um misritun blaðsins
að ræða, því Friðrik sagði að
setja þyrfti flokksformanninn
á þann stað sem honum bæri.
Átti þar við að hann ætti að
taka sæti í ríkisstjórninni. En
hvað um það. Að þessu var
hent gaman, til dæmis á fundi
fjárhags- og viðskiptanefndar
á föstudagsmorgun. Þegar
Friðrik Sóphusson mætti til
fundarins voru flestir nefndar-
menn mættir og öll sæti upp-
tekin. Þorsteinn Pálsson benti
Friðriki á borðið og sagði ekki
um annað að ræða fyrir hann
en að setjast á stallinn, sem
Friðrik og gerði. Litlu síðar
kom Svavar Gestsson til fund-
arins og hlammaði sér á borðið
við hliðina á Friðriki með þeim
orðum að hann tæki sér sæti
við hlið Friðriks á stallinum.
En það var meira en stallurinn
þoldi því hann hrundi saman
með braki miklu og brestum.
Sannast enn hið fornkveðna
að valt er veraldar gengið.
Betra
seint
en
aldrei
■ „Betra er seint en aldrei"
segja gamansamir í hópi
áhugamanna um húsnæðismál
þessa dagana um fyrrverandi
félagsmálaráðherra, Svavai
Gestsson, sem þykir nú hafa
skotið arftaka sínum að
stólnum, Alexander Stefáns-
syni heldur betur ref fyrir rass.
Alexander ákvað í janúar í
vetur að skipa nefnd til að
kanna húsnæðismarkaðinn/
málin í landinu og fékk þá
þegar Stefán Ingólfsson, deild-
arverkfr. í Fasteignamati ríkis-
ins, til að taka að sér for-
mennsku hennar. Stefán var
hinn áhugasamasti og hóf strax
að heyja sér hugmyndum, upp-
lýsingum og öðrum gögnum og
festa á blað til undirbúnings
fyrir nefndarstörfin. En þótt
meira en þrír mánuðir séu
liðnir hefur hann hins vegar
engar spurnir haft af öðrum
samnefndarmönnum sínum og
því ekki getað kallað þá saman
til fundar enn sem komið er.
Gagnasöfnun þessi hefur
hins vegar aukið umræður um
þessi mál - ekki síst í hópi
þeirra sem í þeim eru að vasast
vegna starfa sinna eða af áhugan
um einum. í gegnum þá um-
ræðu hefur Svavar frétt af
minnispunktunum hans Stef-
áns og bað hann um afrit af
þeim til að glugga í. Nú í
vikunni gerist það síðan að
nýtt þingskjal kemur fram á
Alþingi: 690. nefndarálit um
frumvarp til laga um Hús-
næðisstofnun ríkisins - frá 2.
minnihluta félagsmálanefndar
- Viðauki.
Annan minnihluta félags-
málanefndar skipar Svavar
Gestsson, fyrrv. félagsmála-
ráðherra, og hið fróðlega 690.
nefndarálit hans er nær orðrétt
punktarnir sem Stefán í Fast-
eignamatinu var búinn að taka
saman til undirbúnings að
störfum í nefndinni hans Alex-
anders.
Askrifta- i'r
sími LlL 86300