NT - 18.05.1984, Page 23
Föstudagur 18. maí 1984 23
Útlönd
Ibúar Bikinieyja:
„Við viljum
fara heim“
■ Bandaríkjaþing hyllti í gær Mexikóforseta, Miguel de la Madrid, með lófataki. Hann ávarpaði þingið í lok þriggja daga heimsóknar
sinnar til Bandaríkjanna, sem lauk í gær.
Mexíkóforseti
stefnu Reagans
hafnar
Washington-Reuter
■ Forseti Mexíkó, Miguel de
la Madrid, sagði, þegar hann
ávarpaði Bandaríkjaþing í lok
heimsóknar sinnar í gær, að
Mexíkóstjórn hafnaði öilum
hernaðaráformum í Mið-Amer-
íku og þeirri skoðun Reagans
að deilur Mið-Ameríkuríkja
væru ógnun við öryggi Banda-
ríkjanna. Hann sagði að mögu-
legt væri að ná friði með samn-
ingum.
Mexíkóforseti lýsti því einnig
yfir að eftir þessa þriggja daga
heimsókn til Bandaríkjanna,
væri hann í betri aðstöðu nú til
að skilja afstöðu Bandaríkja-
manna en fyrir hana.
Háttsettur bandarískur em-
bættismaður sagði að báðir for-
setarnir hefðu, meðan á við-
ræðum þeirra stóð, komist að
því að ósamkomulag þeirra væri
ekki eins mikið og þeir hefðu
haldið.
Hópur margra fyrrverandi
háttsettra bandarískra og suður-
amerískra embættismann, svo
sem Cyrus Vance, Edmund
Muskie og Galo Plaza, fyrrv.
forseta Equador, hefur birt
skýrslu þar sem skorað er á
Bandaríkin og önnur Ameríku-
ríki að leita sátta. í skýrslunni
er skorað á Reaganstjórnina að
hætta stuðningi við uppreisnar-
menn í Nicaragua og styðja
friðartilraunir Kontadora-ríkj-
anna.
Vasareiknir
til að greina
hjartaslag
Boston-Reutcr
■ í fyrradag var sagt frá
því í bandarísku lækna-
tímariti að tekist hefði. að
búa til lítinn vasareikni, sem
auðveldaði læknum mjög að
meta hvenær sjúklingar
hefðu fengið raunverulegt
hjartaáfall en slíkt er oft
miög erfitt.
Tækið var fundið upp og
þróað við Háskóla Californ-
iu og því er ætlað að gera
sjúkdómsgreiningu lækna á
hjartaáfalli öruggari en hún
hefur verið hingað til. Þegar
sjúklingur kvartar yfir
brjóstverkjum er oft erfitt
fyrir lækna að greina strax
hvort um hjartaáfall er að
ræða eða hvort orsök
verkjanna er önnur. Við
nánari athugun hefur komið
í ljós aðimeiraen helmingur
þeirra sem læknar hafa sent
á gjörgæslu vegna hjartaá-
falls, hafa í raun og veru
ekki fengið hjartaáfall og
um 5% þeirra eru sendir
strax heim.
Rannsóknir á umræddu
tæki við sex sjúkrahús hafa
sýnt að með notkun þess
hafa læknar getað greint
með mun meira öryggi en
áður þá sem raunverulega
hafa fengið hjartaáfall.
Tímaritið, sem birti grein-
ina um þetta tæki og tilraun-
ir með það, heitir „New
England Journal of Medic-
ine“.
■ Fyrrverandi kanslari Vestur-Þýskalands heldur kveðjuræðu
sína á þingi þýskra sósíaldemokrata í gær en hann lætur nú af sæti
sínu í framkvæmdastjórn Sósíaldemokrataflokksins eftir aldarfjórð-
ungs setu í henni. Símamynd-Polfotu
Vestur-þýskir
kratar þinga
Essen-Reuter
■ Vestur-þýskir sós-
íaldemokratar þinga
nú í Essen í Vestur-
Þýskalandi. Mikill bar-
áttuhugur er í hinum
400 þingfulltrúum sem
fögnuðu í gær ósigri
stjórnar Kohls, sem
tókst ekki að fá vestur-
þýska þingið til að sam-
þykkja lög um sakar-
uppgjöf skattsvikara,
sem höfðu greitt há
fjárframlög til pólit-
ískra flokka.
Fyrrverandi kanslari
Vestur-Þýskalands,
Helmut Schmidt, hélt
kveðjuræðu á þinginu
en hann hættir nú þátt-
töku í framkvæmda-
stjórn flokksins þar sem
hann hefur setið í einn
aldarfjórðung. I
kveðjuræðu sinni hvatti
hann flokksbræður sína
til að gera átak til þess
að ná aftur völdunum
úr höndum hinnar
íhaldssömu samsteypu-
stjórnar sem nú fer með
völd í Vestur-Þýska-
landi.
Þinginu lýkur þann
21. maf.
Bandaríkin:
Engin efna-
vopnafram-
leiðsla
Washington-Reuter.
■ Reagan beið ósigur í banda-
rísku fulltrúadeildinni í gær þegar
deildin ákvað að framlengja bann
við framleiðslu á efnavopnum í
Bandaríkjunum.
Reagan hefur nú reynt í þrjú ár
að fá þingið til að aflétta banni við
framleiðslu á efnavopnum sem var
sett á fyrir fimmtán árum í valdatíð
Nixons.
Demokratar eru í meirihluta í
fulltrúadeildinni. Framlenging
bannsins við efnavopna-
framleiðslu kom í framhaldi af því
að í fyrradag samþykkti deildin að
leyfa framleiðslu á 15 nýjum MX-
eldflaugum en Reagan hafði upp-
haflega beðið um leyfi fyrir fram-
leiðslu á 40 eldflaugum.
■ Fólk, sem var flutt burt frá
Bikinieyju árið 1946 til þess að
Bandaríkjamenn gætu gert til-
raunir með kjarorkuvopn,
krefst þess að fá að flytja aftur
til sinna fyrri heimkynna. Það
getur ekki flust heint núna
vegna þess að geislavirkni er
ennþá talin svo á Bikini, að
fólki stafi hætta af. Fólkið krefst
þess því að Bandaríkin flytji
geislavirkan jarðveg í burt og
komi eyjunni aftur í það horf
sem hún var í aður en tilraunirn-
ar með kjarnorkuvopn hófust
þar.
Fulltrúar íbúa frá Bikini
minntu umheiminn á kröfur sín-
ar í fyrradag með mótmælum
við höfuðstöðvar Sameinuðu
þjóðanna í fyrradag þar sem
þeir ungu þjóðsöng sinn á sínu
eigin máli.
Árið 1969 gerðu Bikinibúari
sem nú munu vera 1000 talsins, i
tilraun til að nema land á
heimaslóðum sínum að nýju en
þeirri tilraun lauk árið 1978
þegar rannsóknir sýndu að
geislavirkni var þar enn mjög
mikil. Hlutlaus nefnd vísinda-
manna hefur áætlað að hægt sé
að gera Bikini aftur byggilega
með hreinsunaraðgerðum sem
myndu kosta u.þ.b. 60 milljónir j
dollara..
Það er mikil kaldhæðni örlag-
anna að heimurinn skuli nú að
mestu hafa gleymt hinni upphaf-
legu Bikini þótt nafn eyjarinnar
hafi fest við ákveðna tegund
sundfata. Ástæðan fyrir því
mun vera sú að skömmu eftir
fyrstu tilraunir Bandaríkja-
manna með vetnissprengju, sem
var einmitt gerð á Bikini, var
haldin tískusýning í París þar
sem sundföt í tveimur hlutum
voru sýnd í fyrsta skipti. Blaða-
menn stóðu á öndinni og einn
þeirra hafði á orði að þetta væri
bara alveg eins og á Bikini og"
átti hann þá við að hin nýju
sundföt væru heimsfrétt á borð
við vetnissprengju Bandaríkja-
nafnið Bikini við sundfötin en
fiestir gleymdu eyjunni og íbú-
um hennar.
(Byggt á Reuter og fleiri
i heimildum)
Vestur-Þýskaland:
Strangar
reglur
um bíla-
mengun
Bonn-Reuter
■ Ríkisstjórn Vestur-
Þýskalands hafnaði í gær
tillögum nefndar á vegum
Efnahagsbandalagsins um
að ekki skyldi herða reglur
um mengun frá útblæsætri|
bifreiða fyrr en árið 1995.
Þýska stjórnin sagist telja
að ekki mætti dragast mikið
lengur að setja reglur um
mengun enda cru þýskir
skógar nú þegar hætt komnirl
vegna mikillar mengunar,
og sumir segja að Svarti
skógur sé að deyja. Þjóð-
verjar hafa því ákveðið að
setja mjög strangar reglur
um leyfilegt blýmagn í út-
blæstri bifreiða þegar árið
1986 þótt slíkt þýði mikinn
kostnað fyrir bílaframleið-
endur og ntuni hækka
bensínverð.
Þjóðverjar segjast vona
að aðrar Evrópuþjóðir muni
fylgja fordæmi sínu og setja
strangar mengunarreglur
hið fyrsta. Reglur þær sem
Þjóðverjar hyggjast setja um
leyfilegt blýmagn í útblæstri
eru byggðar á svipuðum
reglum og þegar gilda í
Bandaríkjunum.
Til sölu
Toyota Crown dísel. Ekinn 114.000 km.
Upplýsingar á Bílasölu Sambandsins sími 91-
39810 og 91-39328.
Takið eftir
Eigum nokkur notuð leiktæki (borðspil).
Gott verð, einstök greiðslukjör.
LEIKVAL =
UMBOÐS & HEILDVERSLUN
Sími31575