NT - 24.05.1984, Side 8
■ Þó að nokkuó af áöur verkefnalausum skipum scu nú komin í siglingar að nýju má búasl við að fjöldi skipa verði rifin í brotajárn
vegna vcrkcfnaskorts á næstunni.
Batamerki í skiparekstri
■ Um luiiidrað verslunar-
skip. með samanlagt um sex
milljón tonna burðargetu, scm
legið hafa verkefnalaus um
lengri cða skemmri tíma, voru
tekin í notkun að nýju í rnars
og aprílmánuðum á þessu ári.
samkvæmt yfirliti frá Lloyds
tryggingafélaginu. Skip þessi
eru frá öllum lieimshlutum.
Samt scm áður liggja rúmlega
1.500 verslunarskip með 77
milljón tonna burðargetu verk-
efnalaus í heiminum um þessar
mundir.
í yfirliti Lloyds ber rnest á
því iivað mörg tankskip hafa
verið tekin í notkun undanfar-
ið eftir að hafa verið verkefna-
laus. Nú liggja færri tankskip
en nokkru sinni'frá því á miðju
ári 1982, eða rétt tæplega 400
með um 63 milljóna tonna
burðargetu. Sama gildir raun-
verulega um önnur flutninga-
skip. mörg þeirra hafa fengið
verkefni undanfarið.
Þrátt fyrir augljós batamerki
í skiparekstri er Ijóst að fjöldi
tiltölulega nýrra Skipa mun
ekki fá verkefni á næstunni.
Sumra þeirra bíður ekkert
annað en niðurrif í brotajárn
eftir nokkurra ára verkefna-
skort.
Samdráttur í viðskiptum íslands og Tékkóslóvakíu:
Svíþjóð:
Húsgagna-
útflutning-
urjókstum
30 prósent
■ Mikill uppgangur var í
útflutnitigi á sænskum hús-
gögnum í fyrra. Miðað við
árið 1982 jókst útflutning-
urinn um rúmlega 30 af
hundraði, verðmætið var
alls 335 milljónir dollara.
Næstu grannar Svíanna,
Norðmenn, keyptu stærst-
an hluta af útfluttum sænsk-
um húsgögnum, eða fyrir
tæpar 700 mill jónir sænskra
króna, eða 2,5 milljarða
íslenskra króna. Þá komu
V-Þjóðverjar, en þeir
keyptu fyrir' 52 milljónir
sænskra króna. Næstir
komu Danir og Bretar, en
hvor þjóðin keypti sænsk
húsgögn fyrir um 250 millj-
ónir sænskar.
Innflutningur á hús-
gögnum jókst einnig í
Svíþjóð, eða um sem næst
11 af hundraði frá 1982 -
heildarverðmætið var 1,3
milljarðar sænskra króna.
Mest var keypt frá Finn-
landi fyrir tæpar 250 millj-
ónir, þá Danmörku fyrir
210 milljónir, Ítalíu fyrir
122 milljónir, V-Þýskalandi
fyrir 107 milljónir, en Norð-
mönnunum tókst að selja
Svíunum húsgögn fyrir tæp-
ar 100 milljónir, sem er
aðeins sjöundi hluti þess
sem Norðmennirnir keyptu
af Svíunum.
Skárra hjá járnblendinu:
Tapiðþriðjungur
tapsins 1982
■ Rekstrarhalli á járnblcndi-
verksmiðjunni á Grundar-
tanga var 113,5 milljónir króna
í fyrra, sem er þriðjungur taps-
ins á árinu 1982.
Afkoma fyrirtækisins fór
stöðugt batnandi eftir því senr
leið á árið. Á fyrsta fjórðungi
ársins var afkoman svipuð og
1982, enda var framleiðslan á
þeim tíma og sala sem svarar
hálfurn afköstum verksmiðj-
unnar. Eftir því sem á árið leið
jókst hins vegar eftirspurn eftir
kísiljárni og verð hækkaði.
Framleiðslan var að sama
skapi aukin og var um 29
þúsund tonn síðari helming
ársins, en rúm 50 þúsund á
árinu öllu. Þannig voru afköst-
in 8 þúsund tonnum meiri á
síðari helmingnum en þeim
fyrri.
■ Það stefnir í rétta átt í rekstri járnblendiverksmiðjunnar þó
að mikið hafi vantað á aö niðurstaðan væri réttu megin við núllið
í fyrra.
„Þróunin er
áhyggjuefni“
■ Rajchart telur mikla möguleika á því að auka viðskipti íslands
og Tékkóslóvakíu. I því sambandi nefnir hann íslenska kvik-
myndagcrð meðal annars.
■ „Island er okkur mikilvæg-
ari markaður en íbúafjöldi
landsins gefur til kynna. Það
kernur til af því að íslendingar
eru háðari innflutningi en flest-
ar þjóðir aðrar vegna .þess hvc
íslensk framleiðsla er fábrotin.
Þess vegna er þróun viöskipta
milli íslands og Tékkóslóvak-
íu, undanfarin tvö ár okkur
nokkuð áhyggjuefni, en við-
skiptin hafa mjög dregist sam-
an á báða bóga,“ sagði Jósef
Rajehart, verslunarfulltrúi í
tékkneska sendiráðinu í
Reýkjavík, í samtali viö NT.
Það cr ekki undarlegt þó að
verslunarfulltrúinn hafi
áhyggjur af þróuninni þegar
litið er til þess að í fyrra var
viðskiptavelta landanna aðeins
rúmur fjórðungur veltunnar
árið 1981, fór úr 13,9 milljón-
um dollara í 3,8 milljónir doll-
ara.
„Ef viö lítum á undanfarin
fimm ár má segja að þrjú þau
fyrstu hafi verið jákvæð - við-
skiptin voru stöðug og í dálitl-
um vexti. Árið 1982 varð á
gerbreyting, bæði hvað varðar
innflutning og útflutning á
viöskiptum okkar viö ísland.
Sama var uppi á teningnum í
fyrra. Versnandi efnahags-
ástand á lslandi og stjórnvalds-
aðferðir, sem miðuðu að því
að draga úr innflutningi og
verðbólgu, komu niður á inn-
flutningi okkar til Islands.
Samdráttur í útflutningi Is-
lendinga til okkar varð samt
miklu meiri. Ástæðan var sú
að framboð á fiskimjöli lrá
íslandi fcll vegna aflabrestsins
árin 1982 og 1983,” sagðiversl-
unarfulltrúinn.
- Hvað var það sem þið
keyptuð héðan?
„Viö höfum vcrið með
mikilvægustu kaupendum ís-
lenskra fiskafurða. Viðskipti
landanna fram til 1981 byggð-
ust á þessu. Næstum allur inn-
flutningur okkar frá íslandi
var fiskimjöl og aðrar fisk-
afurðir áriö 1981 og vegna þess
hvc íslcnsk framlciðsla er fá-
brotin kom ekkert í staðinn.
Við höfum líka keypt nokkuð
af ostum, ég hcld raunar að
engin þjóð kaupi meira af
ostum frá íslandi, leirvörum
og ullarvörum.”
- Nú er útlit fyrir að við
getum selt ykkur loðnumjöl
aftur.
„Við erum reiðubúnir að
kaupa það af ykkur aítur þegar
þið getið boðið það að því
tilskildu náttúrlega aö það
verði á samkeppnishæfu
verði.”
- Hvað hafið þið selt til
íslands?
„Vélar og tæki eru 59% af
útflutningi Tékkósióvakíu til
íslands. Hér er einkum um aö
ræða Zetor-dráttavélar, sem
mér skilst að séu mest seldu
dráttarvélar á íslandi. Skoda
bifreiðar, reiðhjól, raf- og
símalínur,' efni til prentunar.
prjónavélar og áhöld til véla-
viðgerða. Aðrar mikilvægar
vörur eru vefnaðarvörur, járn-
vörur, glervara, postulíns-
áhöld og skór svo eitthvað sé
ncfnt.
Við viljum gera allt sem við
getum til að binda endi á þá
stöðnun sem ríkt hefur í við-
skiptum landanna. Hvað okk-
ur sjálfa varðar leggjum við
núna megináhersluna á útboð-
ið við Blönduvirkjun, en
tékkneskur verktaki, PZO
Skodaexport, hefurgert tilboð
í hluta af framkvæmdunr þar.
Hvað úr verður er alveg óljóst
því að samkeppnin á alþjóð-
legum verktakamarkaði er
hörð. Við erum hins vegar
vongóðir vegna reynslu okkar
fyrirtækis af virkjunarfram-
kvæmdum," sagði Rajchart.
Hann sagði loks að fjöldi
möguleika væri fyrir hendi til
að auka viðskipti landanna.
Nú ætti sér stað hröð þróun í
íslenskum iðnaði, sem Tékkar
fylgdust með af áhuga. „Ekki
má gleyma kvikmyndunum
ykkar. Þær verða betri og betri
og við sjáum ekkert því til
fyrirstöðu að til dærnis Atóm-
stöðin verði sýnd á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Karlovy
Vary í Tékkóslóvakíu, sem er
mjög stór kvikmyndahátíð.
Samningar þar að lútandi eru í
gangi núna,” sagði Rajchart.
Japanskir iðnrekendur...
Framleiða vöru
sína á Englandi
■ Japanska fyrirtækiðToshi-
ba ráðgerir að setja á stofn
örbylgjuofnaverksmiðju í
Englandi og veröur það fyrsta
japanska verksmiðjan af sinni
gerð í Evrópu. Áætlað er að
framleiöslan hefjist að tæpu
ári liönu og reiknað er með að
um 200 manns komi til mcð að
vinna í verksmiðjunni. Árs-
framleiðslan á að verða 240
þúsund ofnar.
Toshiba hyggur einnig á
landvinninga í Bandaríkjun-
um, en þar heíur fyrirtækiö
rekið verksmiðiu um árabil.
Ætlunin er að leggja tvær millj-
ónir dollara í reksturinn og
auka framleiðsluna úr 300 þús-
und ofnum í 400 þúsund.
Starfsmönnum verksmiðjunn-
ar verður fjölgað úr 220 í 300.
Þá liafa forráðamenn Toshi-
ba hug á að leggja 3,5 milljónir
dollara í að tæknivæða ör-
bylgjuofnaverksmiðjur sínar í
Japan nreð það fyrir augum að
auka framleiðsluna. Þar með
er áætlað að ársframleiðsla
fyrirtækisins verði 1,6 milljónir
örbylgjuofna, sem er um 15%
af heimsmarkaðinum.