NT - 24.05.1984, Page 15
iíkisstyrkt
okktónlist?
Þrátt fyrir árangur bæði
luklsins og Mezzoforte þá
irðist almenn tilhneiging til
ð tala um lægð í íslensku
oppi núna, eftir stutt grósku-
ímabil. „Að mínu mati erum
ið að sigla inn í annað tímabil
ins og var fyrir ísbjarnarblús-
in, með undantekningum,
ins og Ikarus og Oxmá-
ópnum,“ segir Friðrik Ind-
iðason gagnrýnandi á DV.
Það virðist vera blindgata sem
oppið stefnir í. Nú eru menn
únir að rnissa foringjann,
mbba, og á meðan ekki kem-
r upp nýr foringi, þá má búast
ið hálfgerðu volæði." Friðrik
tlar einnig um að lítill hljóm-
runnur sé hér fyrir úrkynjun-
rtónlist eins og Boy George
g hans líkum. Fyrirmyndir
erði því ekki sóttar til út-
inda, eins og gerðist í ný-
ylgjusprengjunni.
Jónatan Garðarsson segir:
Fað er erfitt að sjá hvað á
ftir að gerast, hvort eigi eftir
ð koma upp sterkar einingar.
að eru ýmsar bjartar blikur á
)fti, eins og Pax Vobis, sem
)far góðu, og fleiri bönd, sem
afa ekki fengið tækifæri.
lötuverð hefur einnig lækkað,
g á eftir að lækka meira, og
að hlýtur að hafa jákvæð
hrif,“
Viðmælendur mínir töluðu
úkið um hve þröngur íslenski
larkaðurinn væri. Hér yrðu
menn fljótt spilaleiðir, væru
stöðugt að spila fyrir sama
fólkið. Það væri algjör for-
senda að stefna að árangri
erlendis. En það er hægara sagt
en gert, eins og kemur fram í
því að Mezzoforte er önnur
hljómsveitin frá Norðurlönd-
unum sem nær inn í lista í
Bretlandi. Hin var ABBA.
Bara-flokkurinn hefur enga
möguleika á breskum markaði
vegna þess að þar er svo mikið
af böndum á sömu línu. Örlítil
vonarglæta hefur komið frá
Norðurlöndunum, í samstarfi
um norrænar rokkhátíðir og
mögulegu norrænu samstarfi
um útvarpsþætti með rokk-
tónlist.
Hvað er þá til ráða? Greini-
legt er að þroskamöguleikar
íslensks popps eru að verða
litlir á meðan ekki er betur
búið að tónlistinni. Gunn-
laugurSigfússon segir: „Maður
hefur orðið var við að það er
fullt af strákum farnir að spila
á hljóðfæri. Þetta fyrirbæri,
bílskúrshljómsveitir, virtist
vera aflagt um tíma, en er komið
aftur. Petta eru krakkar sem
eru tilbúnir að æfa sig áður en
farið er af stað og básúnað sig
út.“ Hvað verður um þetta
fólk?
Jóhann G. Jóhannsson hjá
SATT talar mikið um að efla
samstöðu meðal poppara og
að þeir standi saman um sinn
félagsskap. „Menn ættu að
geta farið út í þetta eins og
hvert annað starf, með tryggð
starfskjör og örugg laun. Eins
og nú er eru aðstæður niður-
drepandi.“
Asmundur Jónsson segir: „{
Danmörku, Frakklandi og víð-
ar eru stofnanir sem fá peninga
á fjárlögum til að styrkja rokk-
músík. I Danmörku hefur ver-
ið tekin sú ákvörðun að veita
peningum til að byggja upp
grundvöllinn. Peningum er
veitt í músíkblöð og í staði sem
bjóða upp á lifandi tónlist.
Peningum er veitt til þess að
hljómsveitir geti spilað ein-
hversstaðar, og til að einhver
umfjöllun sé um það sem er að
gerast. Ég tel rokktónlist alveg
jafnréttháa klassískri tónlist,
sem fær árlega miklar fjárhæð-
ir. Rokktónlist ætti líka að fá
styrki. Annað er úrelt sjón-
armið.“
Taka má undir þessi orð
með Ásmundi. Á meðan illa er
búið að rokktónlist hér á landi
hlýtur menningarhelgi landsins
að vera veik fyrir. Framleiðsla
á innlendri rokktónlist, þeirri
tónlist sem helst höfðar til
ungs fólks hlýtur að vera nauð-
syn til að sporna á móti gífur-
legum straumi erlendrar fram-
leiðslu. Að vísu hefur hlutur
innlendrar framleiðslu í plötu-
sölu haldist óbreyttur um ára-
bil, eða 30%, en eins og nú
horfir með þróun nýrrar rokk-
tónlistar og aðstöðu fyrir hana
virðist geta farið svo að það
hlutfall lækki. Það virðist vera
fullreynt að innlend popptón-
list ber sig ekki, en það gera
heldur ekki leikhús, klassísk
tónlist og flest önnur menning-
arstarfsemi. Rokkmúsík er jú
menning eða hvað?
Háþrýsti
þvottur
til sveita
y\ l%#4tlwHEVf býður hartdhœgar og öflugar hreinsivél-
ar með innbyggðum sápuskammtara og dœlu sem sýgur vatn
(220-230 V 3. fasa og 1. fasa)
0 Með þeim má m.a.
0 Hreinsa fjós
0 Uða dauðhreinsiefnum
0 Hreinsa vélar og tœki
0 Sandblása
0 Kalka
0 og margt fleira
Vélar og sýnikennsla á staðnum - Fylgi-
búnaður í úrvali.
Háþróuð v-þýsk framleiðsla
Upplýsingabeiðni
□ Ég hef áhuga. Vinsaml. hringið
□ Sendið mér bækling.
Nafn ___________________________
Sölu- og þjónustuumboð:
RAFVER HF.
Heimili
Sími _
SKEIFAN 3E
108 REYKJAVÍK SÍMI: 82415