NT - 24.05.1984, Blaðsíða 27
sundfatnaður
sundfa'
Sportvöruverslun Postsendum
Ingólfs Óskarssonar
Laugavegi 69 — simi 11783 Klapparstig 44 — simi 10330
Auðvitað
Sundgleraugu
Sundhettur
Handklæði
Einkunnagjöf NT 1
KR BREIÐABLIK
Stefán Jóhannsson 4 Friðrik Friðriksson 4
Jakob Pétursson 4 Benedikt Guðmundsson 3
Stefán Pétursson 5 Ómar Rafnsson 4
Ottó Guðmundsson 3 Ólafur Björnsson 4
Gunnar Gfslason 4 Loftur Ólafsson 3
Ágúst Már Jónsson 3 Vignir Baldursson 5
Sæbjörn Guðmundsson 5 Jóhann Grétarsson 5
Haraldur Haraldsson 3 Þorsteinn Geirsson 3
Hannes Jóhannsson 4 Sigurjón Kristjánsson 4 1
Óskar Ingimundarson 5 Guðmundur Baldursson 4
Björn Rafnsson 5 Jón Einarsson 5
Jón G. Bjarnason kom inn fyrir Jón Einarsson kom inn fyrir Jón
Sæbjörn á 60. min. og Willum Þórs- Oddsson á 28. mín. og Hreiðar
son kom inn fyrir Hannes á 72. min. Hreiðarsson kom inn fyrir Jóhann Grétarsson á 75. mín.
EINKUNNAGJÖFNT;
KEFLAVÍK
Þorsteinn Bjarnason .......3
Guðjón Guðjónsson..........3
ÓskarFærseth ..............2
Valþór Sigþórsson..........3
Gísli Eyjólfsson ..........4
Sigurður Björgvinsson .....3
Einar Ásbjörn Ólafsson....4
Magnús Garðarsson..........4
Ragnar Margeirsson.........3
Kristinn Jóhannsson........4
Ingvar Guðmundsson ........4
Sigurvin Sveinsson ........5
Skiptingar: Ingvar Guðmunds-
son fór út af fyrir Sigurvin Sveins-
son í fyrri hálfleik.
KA
Þorvaldur Jonsson............3
Ormar Örlygsson .............3
Friðfinnur Hermannsson......4
Ásbjörn Björnsson............4
Erlingur Kristjansson........2
Njáll Eiðoson................4
Steingrímur Birgisson.......2
Gústaf Baldvinsson...........3
Hinrik Þórhallsson ..........4
Hafþór Kolbeinsson...........3
Mark Duffield................4
HNOT-
SKURN
■ All þokkalegur leikur. Mjög op-
inn en þó skorti færin. Bæði liðin
sýndu mikla baráttu í kalsaveðri
og jafntefli sanngjarnt þóttBlikar
hafi verið dálítið sterkari. Mörkin
gerðu Hannes Jóhannsson fyrir
KR á 37. mín og Benedikt Guð-
mundsson fyrir Breiðablik á 85.
mín. Áhorfendur voru 778 og var
kalt.
Fimmtudagur 24. maí <r*84
Jafnað úr
vítaspyrnu
Lofíur Ólafsson skallar frá. Ólafur Björnsson og Björn Rafnsson fylgjast með.
kr-vjbk
■ Glæsimark Benedikts Guðmundsson-
ar á 85. mín. tryggði Breiðabliksmönnum
dýrmætt jafntefli í viðureigninni við KR-
inga á Laugardalsvelli í gærkvöldi. „Það
er alltaf gaman að skora, sérstaklega
mörk sem gefa stig“ sagði Benedikt í
samtali við NT eftir leikinn.
Mark Benedikts var eins og fyrr sagði
afar glæsilegt, Þorsteinn Gíirsson tók
aukaspyrnu af hægri kanti o(' sendi háa
sendingu fyrir markið, þar koni Benni og
stökk manna hæst og skallaði þrumubolta
neðst í stöngina og inn. *
Leikurinn byrjaði nokkuð vel, var
opinn og harður en lítið um færi. lilikarnir
voru ívið meira með boltann fyrstu 15
mín. án þess að skapa sér færi. KR-ingar
komu síðan æ meir inní leikinn og tóku
forystuna á 37. mín. með marki Hannesar
Jóhannssonar. Tekin var aukaspyrna og
gefið fyrir, Friðrik Friðriksson markvörð-
ur Blikanna virtist hafa hendur á knettin-
um en missti hann frá sér og Hannes kom
aðvífandi og renndi tuðrunni í netið, 1-0.
Við markið færðist nokkur harka í leikinn
Glæsimark
Benedikts
gaf jafntefli
og varÞorsteinn Geirsson, Bliki, bókaður
á 38. mín.
f síðari hálfleik voru Breiðabliksmenn
öllu ákveðnari og virtust staðráðnir í að
jafna. „Ég var alveg sannfærður um að
við mundum jafna“ sagði Magnús Jóna-
tansson, þjálfari Breiðabliks eftir leikinn,
„í síðari hálfleik þegar við fórum að taka
boltann niður og spila þá gekk dæmið upp
því KR-ingar virtust missa móðinn“ bætti
Magnús við og brosti.
Annars var frekar lítið u’m færi í síðari
hálfleik sem og í þeim fyrri. Á 58. mín.
átti fyrrum Fylkismaður, Guðmundur
Magnússon, nú í Breiðablik gott skot er
fór rétt yfir slána. Ágúst Már Jónsson,
einn besti maður KR átti góðan skalla
naumlega framhjá á 78. mín. og stuttu
seinna veifaði slakur dómari leiksins gulu
spjaldi í annað sinn, er hann bókaði Jón
G. Bjarnason KR-ing.
„Það er eins og við töpum alltaf niður
einbeitingunni þegar líða tekur á leiktím-
ann“, sagði Ágúst Már við blaðamann
NT. „Ég er auðvitað mjög svekktur að
horfa á eftir þrem stigum", bætti Ágúst við
og virtist óhress. Agúst hafði rétt fyrir
sér, því að KR-ingar virtust ekki ná að
halda uppi sömu baráttu í síðari hálfleik
og í þeim fyrri og því fór sem fór.
I Breiðabliksliðinu bar einna mest á
Þorsteini, Benedikt, Lofti Ólafssyni og
Ómari Rafnssyni en aðrir leikmenn voru
ekki langt undan og liðið í heild jafnt.
Hjá KR voru Ágúst, Ottó og „sweeper-
inn“ Haraldur Haraldsson einna bestir.
Dómari leiksins var Friðjón Eðvarðsson
og var oft sem flautan snéri öfugt hjá
honum þegar mikið lá við. Þá var og kalt
og vindasamt svo blaðamenn skulfu.
■ „Þetta var hlægilegur dóm-
ur hjá annars góðum dómara,
þarna urðu honum á mistök.
Við vorum búnir að berjast vel
í 85 mínútur þegar við fengum
á okkur mörk, en getum þó vel
við unað að fá stig frá þessum
leik, þau eiga eftir að verða
fleiri í sumar“, sagði Gústaf
Baldvinsson leikmaður og
þjálfari K A eftir leik Keflavíkur
og KA í Keflavík í gær.
Það var suðvestanstrekking-
ur í Keflavík í gær. Leikið var
á grasvellinum, sem var að
hálfu gras og að hálfu húsdýra-
áburður. Erfiðar aðstæður, en
leikurinn var nokkuð fjörugur.
Fyrri hálfleikur var að mestu
eign norðanmanna sem léku und-
an vindi. Þeir voru mun
ákveðnari og fljótari á boltann,
en gekk illa að skapa færi. ÍBK
átti af og til hættulegar skyndi-
sóknir, en náði aldrei tökum á
miðjunni. Bestafæriðáttu Kefl-
víkingar strax á 7. mín. þegar
Ragnar Margeirsson komst
einn inn fyrir. Markið blasti
við, en skotið var ónákvæmt og
Þorvaldur markvörður gat and-
að léttara. Skömmu seinna átti
Kristinn Jóhannsson gott skot
úr ágætu færi, eftir snaggara-
lega sókn ÍBK, en Þorvaldur
varði glæsilega. En svo fóru
svæðisyfirburðir KA að bera
árangur. Á 22. mínútu braust
Steingrímur Birgisson upp J
miðjuna eftir laglegan samleik
Ormars og Mark Dufffeld og
skoraði snyrtilega, 0-1.
Skömmu síðar var Steingrímur
aftur á ferð, en þá bjargaði
Þorsteinn snilldarlega með út-
lilaupi.
Keflvíkingar byrjuðu seinni
hálfleik af krafti. Strax í upp-
hafi átti Ragnar hörkuskalla
rétt framhjá eftir góða sendingu
Óskars, og nú voru það norðan-
menn sem beittu skyndisókn-
um, en IBK pressaði. Þegar
líða tók á hálfíeikinn örlaði á
örvæntingu, án þess að leikur-
inn yrði grófur. ÍBK breytti
liðsskipan, Valþór fór fram og
Sigurður aftur, og Rúnar bangsi
kom inná fyrir Kristin.
Skömmu síðar björguðu KA-
menn á línu skalla Valþórs og
jöfnunarmarkið lá í loftinu. -
Ragnar fékk knöttinn rétt utan
vítateigs vinstra megin, og tók
strikið í gegn. Lék. á mann og
annan, og var hrint!? af Gústaf.
Ágætur dómari, Magnús The-
ódórsson var vel staðsettur og
ekki í nokkrum vafa. Sigurði
Björgvinssyni urðu ekki á nein
mistök, 1-1. - „Þetta var pott-
þétt víti, ég var kominn skref-
inu á undan Gústa þegar hann
hrinti mér. KA menn mega vel
við una“, sagði Ragnar.
HNOT-
SKURN
■ Þokkalegur leikur viö erfið
skilyrði, mikil barátta á báða bóga
og engin grið gefin. Tækifæri
næg til að skora, en leikmenn ekki
beinlinis á skotskónum. Vítí eða
ekki víti, verður alltaf deilumal, en
úrslitin engu að síður sanngjörn.
Áhorfendur 688.