NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 30.05.1984, Qupperneq 2

NT - 30.05.1984, Qupperneq 2
Nú eiga íslendingar að borða BÚR-karfa ■ Nú ætlar Bæjarútgerð Rcykjavíkur að fara að selja Islendingum karfa. Kartinn, sem hingað til hefur aðallega verið seldur til Ameríku og Þýskalands, er stór hluti af afla togara Bæjarútgerðarinnar og er reyndar hinn besti matur. Það fengu blaðamenn að sann- reyna í gær, þegar BÚR bauð upp á nokkra karfarétti á veit- ingastaðnum Arnarhól. Karfaflökin sem BÚR hyggst nú setja á íslenskan markað, eru roðflett og beinlaus og hafa ekki verið fryst, þannig að þarna er um ferska vöru að ræða. Karfi hefur aldrei notið mik- illa vinsælda á íslenskum mark- aði og var honum gjarna hent ef menn voru svo „óheppnir“ að fá hann í veiðarfæri. Þessu kváðust Bæjarútgerðarmenn nú vera staðráðnir í að breyta, enda væri karfi herramanns- matur. Þeir höfðu að vísu fengið tvo valinkunna matreiðslumenn til að matreiða karfann fyrir sig, þá Úlfar Eysteinsson og Skúla Hansen, og verður ekki annað sagt en að þeim hafi tekist ágætlega. Á hinn bóginn skal hér engu spáð um það hvernig til tekst þegar hinn íslenski almenni neytandi fer að mat- reiða karfaflökin í heimahús- ■ Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri BÚR ásamt mat- reiðslumeisturunum tveimur, Skúla og Úlfari. Karfinn sem er með þeim á myndinni, mun vera þeirra elstur. Að sógn kunnugra mun karfinn hafa verið kominn um sextugt, er hann lést voveiflega. NT-mynd: Róbert Miðvikudagi ■ Frá aðalfundi NRON á Hótel Esju á mánudagskvöldið. Sigurður Sigurðarson, nýkjörinn formaður í ræðuStÓI. Nl-mynd: Ari Neytendur: Vilja versla á laugardögum ■ „Þótt ekki verði um frekari skerðingu að ræða en laugar- dagslokun, er það samt óviðun- andi, sérstaklega ef tekið er tillit til þeirrar reynslu, sem fengist hefur af verslun á laugar- dögum, en hún hefur verið mjög mikil.“ Þetta er úr ályktun aðalfund- ar Neytendafélags Reykjavíkur og nágrennis um afgreiðslutíma sölubúða. í ályktuninni segir ennfremur að NRON geti ekki séð „mikla örðugleika á áfram- haldandi laugardagsopnun verslana og bendir á, að verslun- arfólk hlýtur að geta gegnt störf- um samkvæmt vaktafyrirkomu- lagi eða sem hlutastarfi,eins og fjölmargar aðrar starfsstéttir." Á aðalfundinum voru einnig samþykktar ályktanir um sölu kartaflna, grænmetis og garð- ávaxta og um vörumerkingar. Jóhannes Gunnarsson, sem verið hefur formaður félagsins frá stofnun þess, gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Sigurð- ur Sigurðarson kjörinn í hans stað. Umræður urðu á fundinum um sölu kartaflna og grænmetis svo og um vörumerkingar. Þá voru og kynntar niðurstöður könnunar félagsins á gerlainni- haldi í kjötfarsi, fiskfarsi og fiskhakki. Eru niðurstöður þeirrar könnunar birtar í heild annars staðar í blaðinu t' dag. Sigurð Sigurðarson, formann NRON: Borðar þú fars þessa dagana? ■ Spurningin keinur nýkjörn- um formanni Neytendafélagsins auðheyrilega skemmtilega á óvart, því hann skellir upp úr áður en hann svarar: „Nei Ég hef ekki gert það síðan Neytendafélagið gerði einhvern tíma á síðasta ári könnun á kjöthakki og ýmsum skyldum kjötvörum. Ég hef ekki treyst mér tii að borða kjötfars síðan niðurstöðurnar komu úr þeirri könnun.“ Hvaða matvörur eru það þá helsf sem formaður Neytenda- félagsins leggur sér til munns um þessar mundir? „Ég borða nýjan fisk,jott og vandað kjöt, saltað kjöt, soðið kjöt. Það er nú reyndar ekki þannig að ég sé neitt sérstaklega „skeptískur“ út í kaupmenn, heldur hefur þetta svona verið venjan í mínu heimili, frá því ég var drengur." ÓlafurJóhannesson jarðsunginn í gær ■ í gærvarÓlafur Jóhannes- son, fyrrverandi forsætisráð- herra, til moldar borinn frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Útförin var gerð á vegum ríkis- stjórnarinnar og voru þar sam- an komnir forseti íslands og aðrir helstu ráðamenn þjóðar- innar. Lögreglan stóð heiðurs- vörð við kirkjuna á meðan á athöfninni stóð. Kistuna báru Steingrímur Hermannsson, Albert Guðmundsson, Magnús Torfason, Ármann Snævarr, Eiríkur Pálsson, Kjartan Guðjónsson, Halldór E. Sigurðsson, og Jón Aðal- steinn Jónasson. Þórir Stephensen, dóm- kirkjuprestur jarðsöng. í ræðu sinni yfir hinum látna, sagði hann m.a.: „Þar er foringi fallinn /.../ Sá maður sem flestum eða öllum öðrum fremur meitlaði svip og mótaði stefnu þjóðlífs íslendinga um visst árabil, en hafði áður verið einn af fremstu leiðtogum æðri menntunar þjóðarinnar, og þar lagt sterka steina í undir- stöður íslenskrarstjórnskipun- ar sem það eiga að vernda, að hér skuli menn ætíð með lögum land byggja.“ I ræðu Þóris Stephensen kom einnig fram að Ólafur hafi borið þann hug í brjósti sem lætur framtíð- arhag heildarinnar ráða, en ekki stundarhag einstaklings- ins. Síðast en ekki síst hafi Ólafur Jóhannesson borið stóra persónu sem lét ekki „læpuskaps ódyggðir lítil- mennskunnar á sér hrína, jafn- vel þótt þær reiði hátt til höggs/ .../ Ólafur fann hinn sterka undirstraum sem einkenndi aldamótakynslóðina; að vilja verða að liði, vinna þau störf er yrðu til góðs og stefndu að því að vinna íslandi allt.“ ■ Kista Ólafs Jóhannessonar borin út úr dómkirkjunni, við heiðursvörð lögreglunnar. ■ Þórir Stephensen, dómkirkjuprestur jarðsöng

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.