NT - 30.05.1984, Blaðsíða 6

NT - 30.05.1984, Blaðsíða 6
Tjón vegna kalda sumarsins í fyrra kemur í ■ „Sumarið í fyrra var bæði kalt og blautt og þessar plöntur voru mjög illa undir veturinn búnar. Riðusveppur hafði herj- að á þær og komið í veg fyrir þroska, en vegna vætu var ekki hægt að úða fyrir honum. Meg- inástæðan er því vanþroski vegna riðusvepps sem gerði þessar plöntur vanbúnar fyrir veturinn“, sagði Pétur N. Ólafs- son í Gróðrastöðinni en þar eyðilögðust nær 10.000 birki- hríslur nú í vor. Pétur kvaðst ætla að fram- leiðsluverðmæti þessa væri um 200 til 300 þúsund. Birkið var þriggja ára og hefði átt að fara á markað í vor sem limgerðis- plöntur. Söluverðmæti hefði orðið nokkru meira, en þá átti bæði eftir að flokka þær og vinna á ýmsan hátt sagði Pétur. Auk riðusveppsins hefur ann- ar sveppasjúkdómur herjað á plönturnar en báðir eiga þeir það sameiginlegt að herja fyrst og fremst á ungar plöntur. „Þetta kemur sér illa því nú er mjög mikil limgerðissala, en við bæt- um okkur þetta upp með því að læra af þessu og reynum að koma í veg fyrir að svona geti hent aftur“, sagði Pétur að lokum. Miðvikudagur 30. maí 1084 6 ■ Það sem eftir var af 10.000 birkihríslum voru þessar plöntur sem eigandinn virðir hér fyrir sér í Gróðrastöðinni Mörk við Stjörnugróf. Síðasta sumar var kalt og rigningasamt og því tókst ekki að verja plönturnar fyrir ríðusvepp sem herjaði á þær. NT-mynd Róbert. ■ Hópmynd af útskrifuðum úr FS vorið 1984. Fyrstu tækniteiknararnir úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja ■ Áttunda starfsári og sextándu önn í Fjólbrautaskóla Suðurnesja lauk með skólaslitaathöfn í Grindavíkurkirkju laugardaginn 19. maí. 57 nemendur luku námi á önninni: 2 flugliðar, 2 tækniteikn- arar, 13 nemar af tveggja ára námsbrautum, 17 iðnnemar og 23 stúdentar. 32 luku námi í desem- bermánuði og hafa því alls brautskráðst 89 skólaárið 1983- 1984. Alls hafa 609 lokaprófs- skírteini verið gefin út, þar af 200 til iðnnema og 210 stúdentspróf- skírteini. Jón Böðvarsson, skólameistari, afhenti prófskírteini, en Helgi Ei- ríksson, kennari, afhenti verðlaun sem að þessu sinni voru óvenju mörg. Þorvaldur Árnason af eðl- isfræðabraut hlaut verðlaun fyrir frábæra árangur á stúdentsprófi, Gunnar Valdimarsson hlaut verð- laun Iðnaðarmannafélags Suður- nesja fyrir besta árangur í fag- greinum í iðnnámi og afhenti Ey- þór Þórðarson þau. ■ Tveir fyrstu tækniteiknararnir, sem útskrífast úr skólanum. Jón Böðvarsson tekur í höndina á Sturlaugi Björnssyni, sem jafnframt er kennari við FS. Fyrir aftan hann stendur Inga Harðardóttir frá Akureyri. Pressan á plötu ■ Steinar h/f boðuðu nýlega til blaðamannafundar í Hljóðríta í Hafnarfirði í tilefni af því að brátt kemur út 100. platan sem fyrirtækið gefur út. Viðstaddir voru þeir listamenn sem fram koma á plötunni, en það eru þeir Sumargleðimenn. Auk plötunnar með Sumargleðinni er nú verið að vinna þrjár aðrar plötur sem Steinar munu gefa út, plötur með HLH, Pax Vobis og Kikk. Blaðamenn þeir sem mættir voru voru umsvifalaust settir í að syngja viðlag í einu lagi plötunnar, ásamt með þeim Bessa Bjarnasyni, Þorgeiri Ást- valdssyni, Hermanni Gunnars- syni og Ómari Ragnarssyni. ■ Blaðamenn, meðlimir í Sumargleðinni og fleiri syngja saman inn á plötu. Viðlagið var í hinum alkunna Sumargleðistíl, sem margirtelja vera það lægsta sem íslensk tónlist hafi náð á undanförnum árum, en aðrir telja létt og skemmtileg lög engum til tjóns. Víst er að blaðamaður fór niðurbrotinn maður af fundin- um. Samtals tekur rúmlega 8 daga að spila allar hundrað plötur Steina, efmiðaðervið venjuleg- an átta stunda vinnudag. Meðal þess efnis er gæðapopp eins og plötur Bara flokksins, Spilverk þjóðanna og Utangarðsmenn, frábært jassrokk Mezzoforte og þjóðlegt popp Stuðmanna. Ættu aílir að finna eitthvað við sitt hæfi í útgáfuefni Steina h/f. Bolvíkingar á leikferð umVestfirði Frá Finnboga Kristjánssyni, ísafirði. ■ Leikfélag Bolungarvíkur sýnir nú leikritið „Finnur karlinn“ eftir Edward Usben- ski. Leikritið var meginframlag á vordögum í Bolunarvík, nýlega og var sýnt tvisvar fyrir fullu húsi. Einnig hefur leikritið verið sýnt í Súðvík fyrir troðfulli húsi og við góðar undirtektir. Nú ferðast Bolvíkingár með sýninguna og var hún færð upp á Súgandafirði á laug- ardaginn og síðan aftur á Bol- ungarvík á sunnudag. Á upp- stigningardag verður leikritið sýnt á Patreksfirði og um kvöld- ið á Bíldudal. Leikstjóri er Svan- hildur Jóhannsdóttir. ■ Úr uppfærslu Leikfélags Bolungarvíkur á „Finni karlinum" eftir Edward Usbenski. NT mynd Finnbogi Krístjánsson. Upplýsingar í síma 91-78597 Til sölu Ford Cortína 1600 árg. ’74 Styrkveitingar Menningarsjóðs ■ N ýlega var úthlutað styrkj um úr Mennignarsjóði og hlaut Árni Björnsson, tónskáld, stærsta hluta þeirra, 35 þúsund krónur til tónverkaútgáfu. Þá hlutu átta listamenn svokallaða dvalarstyrki, þau Guðrún Á. Símonar, óperusöngvari, Guðr- ún Svava Svavarsdóttir, mynd- listarmaður, Gunnar Kvaran, sellóleikari, Haukur J. Gunn- arsson, leikstjóri, Hildur Hák- onardóttir, listvefari, Jón úr vör, skáld, Sigríður Ella Magn- úsdóttir, óperusöngvari og Steinunn Sigurðardóttir, skáld. Að sögn Helgu Þorsteinsdótt- ur, konu Árna Björnssonar, tónskálds, verður styrkurinn notaður til útgáfu á sönglaga- heftinu með sönglögum eftir Árna. Árni Björnsson á að baki tólf útgáfur af tónverkum auk tveggja hljómplatna og hundruð tónverka á handritum. Formaður blikkara ■ Á aðalfundi Félags Blikk- smiða, fyrr í þessum mánuði, var kjörinn nýr formaður félags- ins. I framboði voru þeir Kristj- án Ottóson, fráfarandi formað- ur, og Einar Gunnarsson. Hlaut Einar 39 atkvæði en Kristján 35. Aðrir á lista formannsins fráfarandi drógu framboð sín til baka. Athugasemd ■ í frétt NT á dögunum um færeyska bátinn Birita, tók blaða- maður það upp hjá sjálfum sér að titla Ólaf Sigurðsson, bónda á Svínafelli, formann björgunar- sveitarinnar Frama. Hvort tveggja er rangt. Björgunarsveitin heitir Kári og Ólafur er ekki formaður. Eru viðkomandi beðnir velvirð- ingar á þessum mistökum.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.