NT - 30.05.1984, Blaðsíða 27
Miðvikudagur 30. maí 1984 27
Norræna
sundkeppnin
af stað á ný
■ Föstudaginn 1. júní hefst í fyrsta skipti sem hún er haldin
hér á landi Norræna Sund- síðan 1972 og mun Sundsam-
keppnin 1984(200 m). Erþetta band íslands reyna að gera
þessa keppni hina veglegustu.
V I samvinnu við Rauða Kross
íslands, Slysavarnarfélag
íslands, Radíóbúðina, sem
mun lána tölvur til aðstoðar við
Italningu, og Sól hf. mun Sund-
sambandið veita verðlaun þeim
br oftast synda. Auk þess gefst
fólki kostur á að kaupa merki
keppninnar sem eru afar
smekkleg.
Keppninni verður startað á
fjórum sundstöðum í Reykja-
vík samtímis og verða ýmsir
kunnir kappar fengnir til að
hefja keppnina ásamt sem flest-
um íslendingum.
í þessari keppni verða Fær-
eyingar með í fyrsta skipti sem
sjálfstæð þjóð og mega íslend-
lingar búast við harðri keppni.
■ Á ársþingi Badminton-
sambands íslands sem
haldið var síðastliðinn
laugardag var Vildís K.
Guðmundsdóttir kosin
formaður sambandsins,
en fráfarandi formaður
Gunnsteinn Karlsson gaf
ekki kost á sér til endur-
kjörs. Aðrir í stjórn voru
kosnir Sigríður M. Jóns-
dóttir, Magnús Jónsson,
Sigfús Ægir Árnason og
Sif Friðleifsdóttir.
tæ
Dunlop-mótið í golfi:
Magnúsvann
3. árið í röð
■ 14. Dunlop golfmótið var
haldið á Hólmsvelli í Leiru um
síðustu helgi. Alls tóku um 71
keppendur þátt í mótinu, en
leiknar voru 36 holur með og
án forgjafar.
Sigurvegari í keppni án for-
gjafar varð Magnús Jónsson
GS á 148 höggum. Er þetta í
þriðja sinn í röð sem Magnús
vinnur þetta mót.
í öðru sæti varð Sigurður
Pétursson GR á 153 höggum og
þriðji varð Sigurður Sigurðsson
GS á 155 höggum.
í keppni með forgjöf sigraði
Kristín Pétursdóttir GK á 141
höggi, en Magnús Jónsson varð
annar á 142 höggum. Guð-
mundur Ingvarsson GG varð
þriðji á 142 höggum.
Mjög vegleg verðlaun voru í
keppninni og einnig aukaverð-
laun. Sigurður Sigurðsson fékk
aukaverðlaun fyrir að vera
næstur holu á 5. og 13. holu, en
hún gengur undir nafninu
Bergvík.
Pá fékk Pétur Salmon auka-
verðlaun fyrir teighögg á 36.
holu, en hann sló 230 metra
upphafshögg.
■ John McEnroe - talinn bestur allra karltennisleikara í
heiminum.
Geturöðun Alþjóðatennissambandsins:
John McEnroe
talinn bestur
■ John McEnroe er besti
karltennisleikari heims, ef
marka má nýútgefinn getulista
Alþjóðatennissambandsins.
Besti kventennisleikari heims
er landi McEnroe, tékknesk-
ættaða stúlkan Martina Navrat-
ilova. Svíinn Mats Wiland er
fjórði á Iistanum yfir 20 bestu
karltennisleikarana, en landi
hans Henrik Sundström er
tólfti. Svíinn Anders Jarryd er
fimmtándi, en þar með eru
Norðurlandabúar á listanum
yfir 20 bestu karltennisleikara
heims upptaldir. Engin val-
kyrja frá Norðurlöndum er á
lista yfir 20 bestu tennisleikara
heims í kvennafólkki. Listinn
yfir 20 bestu í karlaflokki er
þannig:
1. John McEnroe, Bandar.
2. Ivan Lendl, Tékkósl.
3. Jinum Connors, Bandar.
4. Mats Wilander, Svíþjóð
5. Jimmy Arias, Bandar.
6. Yannick Noah, Frakkl.
7. Andres Gomez, Equador
8. Jose Higueras, Spáni
9. Eliot Teltscher, Bandar.
10. KevinCurran, Bandar.
11. Guillermo Vilas, Arg.
12. Henrik Sundström, Sví.
13. Jose-Luis Clerc, Arg.
14. Johan Kriek, Bandar.
15. Anders Jarryd, Sví.
16. Thomas Schmidt, V-Þýs.
17. Juan Aguilera, Spáni
18. Bill Scanlon, Bandar.
19. Sandy Mayer, Bandar.
20. Vitas Gerulaitis, Bandar.
20 bestu tenniskonurnar eru:
1. Martina Navratilova, Bandar.
2. Chrís-Evert Lloyd, Bandar.
3. Hanna Mandlikova, Tékkósl.
4. Pam Shríver, Bandar.
5. Andrea Jaeger, Bandar.
6 Kathy Jordan, Bandar.
7. Zina Garrison, Bandar.
8. Jo Durie, Bretl.
9. Wcndy Trunbull, Bandar.
10. Bonnie Gadusek, Bandar.
11. Kathy Horvath, Bandar.
12. Helena Sukova, Tékkósl.
13. Manuela Maleeva, Búlg.
14. Barbara Potter, Bandar.
15. Sylvia Hanik, V-Þýs.
16. Andrea Temesvarí, Ungv.
17. Lisa Bonder, Bandar.
18. Claudia Kohde, V-Þýs.
19. Carling Bassett, Kan.
20. Ivanna Madruga-Ossess, Arg.
Eyjamenn sluppu
með skrekkinn
■ Skaliagrímur Borgarnesi og
Vestmannaeyingar spiluðu í
Borgarnesi í annarar deildar
keppninni í gær og lauk
leiknum með jafntefli 2-2.
Það voru heimamenn sem
höfðu undirtökin í leiknum í
fyrir hálfleik og skoruðu þá tvö
mörk. Pað voru þeir Björn
Jónsson sem skoraði úr víta-
spyrnu og Garðar Jónsson sem
gáfu Sköllunum sanngjarna
forustu í hléi. I síðari hálfleik
jafna Eyjamenn með mörkum
Þórðar Hallgrímssonar og Sig-
urjóns Kristjánssonar. Borg-
nesingar voru óheppnir að
skora ekki í síðari hálfleik því
þeir áttu til þess færi. Eyja-
menn sluppu því með
skrekkinn.
(BÍ lá í hörkuleik
■ Njarðvíkingar unnu ísfirð-
inga í hörku baráttuleik í
Njarðvíkum í gær með tveimur
mörkum gegn einu. Leikurinn
var mikill baráttuleikur og áttu
bæði liðin dágóð færi en sigur
Njarðvíkinga þó sanngjarn.
ísfirðingar voru fyrri til að
skora og var þar að verki
Guðmundur Jóhannsson með
hörkuskalla eftir aukaspyrnu.
Eftir að hafa fengið á sig mark
fóru heimamenn að spila og var
Freyr Sverrisson potturinn og
pannan í því. Guðmundur Sig-
hvatsson jafnaði úr þröngri
stöðu og síðan skorar Haukur
Jóhannsson með skalla eftir
snilldar sendingu Freys.
Sævar hetja Völsunga
■ Pað var 16 ára nýliði, Sævar
Geirfinnsson, sem var hetja
Völsunga er þeir sigruðu
Tindastól frá Sauðárkróki í
annarri deild í gær með þrem
mörkum gegn engu. Sævar sá
um að skora öll mörk Völsunga
og var þeirra besti maður. Sæv-
ar skoraði tvö mörk í fyrri
hálfleik og síðan eitt úr víta-
spyrnu er ein mínúta var til
loka leiksins. Spilað var á
grasvellinum á Húsavík og
höfðu Völsungar töluverða
yfirburði eins og markatalan
gefur til kynna. Völsungar virt-
ust í góðu skapi yfir að fá að
spila á grasinu og léku við
hvurn sinn fingur, en þó enginn
eins og pilturinn efnilegi Sævar
Geirfinnsson sem nú hefur
skorað fjögur mörk í annarri
deild og geri aðrir betur.
KS nýtti færin betur
■ KS frá Siglufirði sigraði
Víði Garði í leik liðanna á
Siglufirði í gær með þremur
mörkum gegn engu og annars
jöfnum leik það voru þó heima-
menn sem nýttu færi sín og
náðu að skora þrjú mörk. Þar
voru að verki þeir Sævar Guð-
jónsson sem skoraði í fyrri
hálfleik og í seinni hálfleik þá
bættu Þorgeir Reynisson og
Hörður Júlíusson við mörkum
og gulltryggðu sigur Siglfirð-
inga. Leikurinn var nokkuð vel
spilaður og áttu Víðismenn
ekki minni þátt í spilinu en það
eru mörkin sem gilda og þau
gerðu KS-menn.
Ársþing HSÍ:
Jón Hjaltalín
kosinn f ormaður
... -i_ nr \/;Wr.rccr\n na Inn I-I Karlwn
„ Á ársþingi Handknattieikssam-
bands íslands sem haldið var um síðustu
helgi var Jón Hjaltalín Magnússon kjor-
inn formaður sambandsins. Jón sigraði
Pétur Rafnsson með 61 atkvæði gegn 51.
í stjórnina með Jóni voru kjörin
eftirfarandi: Friðrik Guðmundsson,
fráfarandi formaður HSÍ, Helga Magn-
úsdóttir, Davíð Sigurðsson, Rósmundur
Jónsson, Björg Guðmundsdóttir, Ingv-
ar Viktorsson, og Jón H. Karlsson.
Fyrir í stjórninni voru Kjartan Stein-
back, Þórður Sigurðsson og Karl Harry
Sigurðsson.
Á þinginu var samþykkt sú tillaga að
landsliðsþjálfari gæti ekki verið þjálfari
félagsliðs. Gæti þetta valdið HSI vand-
ræðum því Bogdan Kowalczyk hefur
verið endurráðinn þjálfari Víkings
næsta keppnistímabil og hvað gerist í
því máli veit enginn.
Budd hljóp 1500
ábestatímaársins
■ Zola Budd, hlaupastúlkan frá Afr-
íku sem fékk breskan ríkisborgararétt
svo sögulega fyrir nokkru, hljóp mjög
vel í Cumbran í Wales í fyrrakvöld.
Budd hljóp á nýju heimsmeti unglinga í
1500 metra hlaupi. og um leið besta
tíma sem náðst hefur í 1500 metra
hlaupi kvenna á þessu ári. Þessi árangur
er Zolu mjög í hag, til að komast í
ólympíuiið Breta fyrir leikana í Los
Angeles.
Budd hljóp á 4:04,39 mín., og er það
1,63 sek. betra en heimsmet v-þýsku
stúlkunnar Birgit Friedmann í unglinga-
flokki, sem sett var árið 1978. Önnur í
hlaupinu var breska stúlkan Lynne
McDougall, sem hljóp á 4:10,80 mín.
Budd, sem hljóp berfætt eins og hún
er vön sagði eftir hlaupið: „Ég er hissa
á að hafa unnið svo auðveldlega, ég
einbeitti mér að því að hlaupa eins hratt
og ég gat gegn vindinum, ég er ánægð.“
Zola Budd hefur stefnt að því til
þessa að komast í lið Breta á 01. og
keppa í 3000 metra hlaupi. Hún virðist
víðar geta keppt.
REYKJAVÍK
Aðalfundur
Aðalfundur Hafskips hf. verður haldinn föstudaginn 1. júní
í salarkynnum Domus Medica v/Egilsgötu.
Fundurinn hefst kl. 17:00
Stjórn Hafskips hf.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að hafa með sér atkvæðaseðla og
aðgöngukort er send vorú út með fundarboði.
Aðgöngukortin afhendist við innganginn.
V