NT - 30.05.1984, Blaðsíða 13

NT - 30.05.1984, Blaðsíða 13
Mið vikudagur 30. maí 1984 1 3 Kjöt og fiskur Seljabraut 54 Rvík Melabúóin Hagamel 39 Rvik Mikligarður við Holtaveg Rvík Vörumarkaðurinn Eiðistorgi seltjarnarn. Þingholt Grundarstíg 2a Rvík 98.000.000 170.000.000 10.000.000 14.500.000 6.600.000 1 1 . 000 4.600 1.100 4.600 1.100 460 4 1 5 240 43 40 20 20 20 20 30.000 20.000 800 400 <10 lykt óeölileg eðlilegt eðlilegt eðlilegt eölilegt 5.85 6,50 5,90 6,30 6,60 ófuilnæqiandi ófullnæqiandi fullnægjandi ófullrwgjandi fullnægjandi ■ Það virðist vera líflegur gerlagróður í kæliborðunum. bendir mikill heildargerlafjöldi til að um of gamla vöru sé að ræða. Alitof mikill fjöldi kóligerla reyndist vera í fjórum sýnum, eða meira en 10.000 kólígerlar pr. gr. í öðrum sex sýnum var fjöldi kólígerla á bilinu 1.000- 10.000 gerlarpr. gr. semeinnig er of hátt. Saurkóligerlar fund- ust í sjö sýnum í einhverju mæli, þar af meira en 2.000 gerlar pr. gr í einu þeirra. Tilvist kóligerla í matvælum gefur til kynna mengun sem ýmist er af sauruppruna eða frá umhverfinu. Þeir benda einnig til hugsanlegrar meng- unar af völdum sjúkdómsvald- andi gerla og sem eru tengdir saur manna og dýra. Það skal þó tekið fram, að í þeim 19 sýnum sem hér um ræðir fund- ust ekki sjúkdómsvaldandi gerlar. Kóligerlar geta þar að auki vaxið í sumum matvælum og valdið óæskilegum breyt- ingum á bragði og útliti. Kóli- gerlahópurinn samanstendur fyrst og fremst af tveimur stofnum, Escherichia cóli (saurkóligerlar) sem er fyrst og fremst upprunninn frá inn- yflum manna og dýra og Enter- obacter aerogenes, sem er úr plönturíkinu (þó einstaka sinn- um úr innyflum). Flestar tegundir stafylo- kokka geta vaxið og myndað eitur sem er mjög hitaþolið í mörgum tegundum matvæla. Pessa gerla má mjög oft finna í húð manna og slímhimnum í nefi og munni. Talið er að 30-50% heilbrigðra einstak- linga beri þessa gerla með sér og matareitranir af þeirra völd- um má einmitt oftast rekja til smitbera sem vinna við mat- vælaframleiðslu. Gera verður ráð fyrir að þessir gerlar séu til staðar í mörgum matvælum (aðallega kjöti og kjötafurð- um) í einhverju magni, en engin hætta er á matareitrun á meðan fjöldi þeirra helst lágur. Það er ekki fyrr en fjöldinn hefur náð nokkrum milljónum gerla í hverju grammi, að nægi- legt eitur nær að myndast til að geta orsakað matareitrun. í rannsókninni hér fundust þess- ir gerlar ekki nema í mjög takmörkuðum mæli. í tveimur sýnanna er fjöldi reduser, clos- tridia allt of mikill. Gerlar þessir eru grómyndandi og hitaþolnir og sumar tegundir þeirra t.d. clostridium perfrig- ens eru jafnframt matareitrun- argerlar. Það ber að taka fram að þessi tegund reyndist ekki vera í neinu sýnanna. Tilvera gerla af clostridium ættinni gefa tilefni til að ætla að hrein- læti við vinnsluna hafi ekki verið sem skyldi. Lokaorð Rannsókn þessi beindist einkum að því að kanna hvern- ig hráefni notað er í þessa vöru og hvort hreinlæti sé ábóta- vant. Niðurstöðurnar eru með öllu óviðunandi. Nauðsynlegt er að heilbrigðisyfirvöld, sem fram til þessa virðast hafa veitt söluaðilum mjög takmarkað aðhald, taki þessi mál fastari tökum. Það er með öllu óvið- unandi að neytendum sé boðin matvara sem er með það mik- inn gerlavöxt vegna aldurs og/ eða slæmrar meðhöndlunar að það stórrýri geymsluþolið og orsaki slæma eða óeðlilega lykt og bragð af vörunni. Að sögn eins verslunareig- anda er ástæða til að ætla að verslanirnar eigi ekki sök á þessu einar. Víða um land eru starfandi sláturhús þar sem aðstæður eru með öllu ófull- nægjandi, en hafa þó fengið að starfa á undanþágu frá heil- brigðisyfirvöldum. Að lokum leggur Neytenda- félag Reykjavíkur og nágrenn- is áherslu á að það hyggst halda slíkum rannsóknum á- fram síðar. Athugasemdir með töflum Eflirtaldar reglur gilda hjá Hollusluvernd rikisins við gerlafræðilegt mat á hráum kjötvörum: Flokkur A Flokkur B Flokkur C Fullnægjandi Gallað Ofullnægjandi 1. Gerlafjöldi v/30°C allt aö 10 millj 10-50 millj. 50-100 millj. 2. Kóligerlafjöldi allt aö 1000 1.000-10.000 10.000-20.000 3. Saurkóligerlafjöldi alltaðlOO 100-1.000 1.000 ogyfir 4. Stafylokokkar alltaö 100 100-1.000 l.OOOogyfir Flokkur A: a) Kannsóknarliður Nr. 1 er með meiri c) Kannsöknarliður nr. 4 er með fleiri Fullnægjandi gerlafneililega, þegar allir gerlafjölda en 50 milljónir og telst þá stafylokokka en 1000, en þá sýna niöur- rannsöknarliöir eru innan þeirra marka varan hafa mjög lítiö geymsluþol. stöður mikla hættu á svkingu eða eitrun sem segir í Flokki A, eða ef einn rannsókn- b) Kannsóknarliðir nr. 1,2 og 3 eru allir vegna nevslu vörunnar. arliður fellur undir Flokk B. innan þeirra marka sem segir í Flokki Algengustu tölur um pH (sýrustig) eru: Flokkur B: B, eða þegar rannsóknarliðir 2 og 3 eru Kjötfars 6.00-6.50 Gallad gerlafrædilega, þegar tveir rann- hver fvrir sig innan þeirra marka sem soknarliöir eru innan þeirra marka sem segir í Flokki C, en þá sýna niöurstööur i i9ivi<ii9 unrTTuu segir í Flokki B. mikla inengun hráefna eða mikla Flokkur C: mengun (lélegt hreinlæti) í vinnslu eða Ofullnægjandi gerlafrxðilega, þegar meðferð vörunnar. rai iVív Málsvari frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútíminn h.f. Ritstjórar: Magnús Ólafsson (ábm) og Þórarinn Þórarinsson Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306. Verð i lausasölu 25 kr. Áskrift 250 kr. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaðaprent ht. Um róg og sanngirni ■ í gær var einn merkasti sonur íslands, stjórnmálamaðurinn Ólafur Jóhannesson, bor- inn til hinstu hvílu. Eins og títt er um slíka menn stóð oft mikill styr um Ólaf og var þá á stundum óvönduðum meðölum beitt af and- stæðingum hans. Það helst oft í hendur að því merkari sem maðurinn er, því ómerkilegri verða vopn andstæðinga hans. Eða eins og Jóhannes Nordal komst að orði í einni hinna fjölmörgu eftirmælagreina um Ólaf Jóhannesson í gær: „En þótt íslendingar hafi fáa vammlausari menn átt á okkar dögum, fékk hann ekki öðrum fremur frið fyrir þeim, sem gjarnast er að vega menn með rógi og getsökum.“ Því miður eru þetta sannindaorð. Að reyna að vega sanna menn með slíkum vopnum er hins vegar vanhugsað, því þeir munu ævinlega í tímanna rás koma út úr baráttunni sem meiri menn en áður. Saga Ólafs Jóhannes- sonar sýnir það gleggst. Ekkert íslenskt dagblað er saklaust af því að beita slíkum vinnubrögðum að einhverju marki. Ekkert íslenskt dagblað er syndlaust í þessu efni. Og ekkert íslenskt dagblað hefur efni á að kasta fyrsta steininum. Dæmin eru því miður sorglega mörg. Enda þótt NT leggi áherslu á harðan og krefjandi en þó hlutlausan fréttaflutning, leggur blaðið jafnframt áherslu á sanngirni jafnt í fréttum sem stjórnmálaskrifum. Hafi einhvern tímann verið troðið á sanngirnissjónarmiðinu á síðum NT, hlýtur blaðið að harma slíka yfirsjón. Hér er sérstaklega átt við þau greinaskrif í NT, sem fylgdu í kjölfar sextugsafmælis Jóhann- esar Nordals og fólu í sér ósæmiíegar getgátur varðandi hugsanlega gjöf frá svissneska álfélag- inu í því sambandi. Slíkar dylgjur eru óréttmæt- ar og ber að harma. Vonandi vill hvert íslenskt dagblað hafa sann- girni að aðalsmerki. Engu hefur þó tekist slíkt og allra síst blaði allra landsmanna, Morgun- blaðinu. Að blaðið telji sig hafa efni á að kasta fyrsta steininum er með ólíkindum. Hver man ekki eftir dylgjunum gagnvart þremur íslending- um, sem áttu að hafa tengst ósæmilega njósnar- anum Treholt? Hver man ekki eftir dylgjunum, sem beitt var gegn Gunnari Thoroddsen á sínum tíma eða hinum ófyrirleitnu árásum á hendur Samvinnumönnum? Hvar var sanngirni þá? Að hafa sanngirnissjónarmiðið í heiðri er ótvírætt aðalsmerki. Að játa á sig ósanngimi er eitthvað enn meira. Það er manndómur og það ættu þeir Morgunblaðsmenn að hafa í heiðri.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.