NT - 30.05.1984, Blaðsíða 28
■ Amar Jónsson var
hress í bragði þegar NT
hafði tal af honum í gær.
Með umbúðir sem þessar
verður hann að ganga
næstu átta vikur en Amar
er ráðinn til að leika eitt
aðaihiutverk í nýrri mynd
Ágústs Guðmundssonar,
„Sandur“.
■ Af þessum vinnupalli
hrópuðu þeir Arnar og
Kjartan. Þeir lentu báðir
standandi á gangstéttinni.
Ölvaðir uppi á
Jökuldalsheiði
■ Lögreglan á Egilsstöðurn
þurfti að sækja tvö ölvaða menn
upp á Jökuldalsheiði á mánu-
dagskvöld en mennirnir höfðu
farið þangað áleiðis á puttanum
frá Seyðisfirði þar sem þeir hafa
dvalið undanfarið.
Lögreglan á Seyðisfirði bað
Egilsstaðalögregluna að svipast
um eftir mönnunum, þar sem
tilkynning hafði borist um að
annar þeirra lægi sofandi í veg-
kantinum nálægt Múla í Löngu-
hlíð en hinn hefði haldið áfram
gangandi inn Jökuldal.
Maðurinn lá enn í vegkantin-
um þegar lögreglan kom að
honum og var orðinn talsvert
kaldur og slæptur. Hinn fannst
í skýli Slysavarnarfélagsins á
Þrívörðuhálsi þar sem hann
hafði komið sér fyrir.
Mennirnir voru fluttir á
Seyðisfjörð og dvöldu þeir í
fangageymslunni um nóttina.
Leiklistarlífið
i uppnami:
■ „Jú, það má kannski segja
það,“ sagði Arnar Jónsson lcik-
ari þegar NT spurði hann í gær,
hvort ekki væri vafasamt fyrir
leikara í aðalhlutverkum að
vera að príla í „stillönsum“.
Alþjóðamótið jók skákáhugann
- segir formaður TafIfélags Norðfjarðar
■ „Skákáhuginn hjá yngri
drengjunum hefur aukist mjög
mikið eftir Alþjóðlega skák-
mótið sem haldið var hér á
Norðftrði í mars s.l. Hefur nú
myndast góður kjarni sem
mætir alltaf'* sagði Eiríkur
Karlsson, formaður Taflfélags
Norðfjarðar sem NT ræddi við
eftir Hraðskákmót Norðfjarð-
ar ’84, sem haldið var í Fram-
haldsskólanum á Norðfirði s.l.
sunnudag. Kvaðst hann vonast
til að hinn aukni áhugi ætti
■ Skákmenn í þungurn
þönkum á Hraðskákmóti
Norðfjarðar ’84. Eiríkur Karls-
son horfir á.
NT-mynd Svanfríður.
eftir að segja til sín næsta
haust. Taflfélagið er nýbakað-
ur Austurlandsmeistari í skák.
Siguvegari Hraðskákmóts-
ins varð Eiríkur Karlsson, með
8 vinninga af 9 mögulegum. í
lok mótsins fór fram
verðlaunaafhending fyrir
vetrarstarfsemina, en haldin
voru alls 6 skákmót.
Arnar og Kjartan Bjarg-
mundsson, einnig leikari, slös-
uðust á mánudag þegar vinnu-
pallur sem þeir stóðu á gaf sig.
Arnar hælbrotnaði á báðum fót-
um en Kjartan ökklabrotnaði.
Þriðji maðurinn sem var með
þeim á pallinum slasaðist ekki.
Nú þegar er ljóst að fresta
verður upptökum á útvarps-
leikritinu „Draumaströndin"
eftir Andrés Indriðason. í sam-
tali við NT sagði Stefán Baldurs-
son, leikstjóri, að upptökum
yrði frestað eitthvað fram á
sumar.
Þá var Arnar ráðinn til að
leika eitt aðalhlutverk í mynd
sem Ágúst Guðmundsson og
ísfilm standa að. Upptökur á
myndinni sem hefur hlotið
vinnutitilinn „Sandur", eiga að
hefjast 19. júní.
Kjartan leikur eitt aðahlut-
verkið í nýju leikriti Stúdenta-
leikhússins „Láttu ekki deigan
síga Guðmundur." Leikritið,
sem samið er af þeim Eddu
Björgvinsdóttur og Hlín Agn-
arsdóttur, verður frumsýnt sem
liður í Listahátíð mánudaginn
11. júní.
Að sögn Hrefnu Haraldsdótt-
ur, forstöðumanns Stúdenta-
leikhússins, átti að ákveða í
gærkvöld hvernig brugðistyrði
við þessum vanda, en þar sem
Kjartan ökklabrotnaði, er ljóst
að hann getur ekki tekið þátt í
leiksýningunni.
„Það er mjög slæmt að Arnar
slasaðist og mér fyndist það
afar slæmt ef það þýddi að hann
gæti ekki tekið þátt í myndinni,"
sagði Ágúst Guðmundsson í
samtali við NT í gær.
„Það er ljóst að það er mjög
erfitt að fresta kvikmyndun,"
sagði Ágúst. „Bæði er að mynd-
in á að gerast snemma sumars
og að erfitt er að leigja húsnæði
seinnipart sumars.“ Annars
sagði Ágúst að hann hefði enn
ekki talað við Arnar en fyrr gæti
hann ekki rætt meira um málið.
Ágúst sagði að enn hefði ekki
verið tekin nein ákvörðun
I samtali við NT í gær, sagði
Arnar að hann vissi enn ekki
hvernig færi með kvikmynda-
tökuna.
Upptökum sjónvarpsins á
Gullna hliðinu var lokið á
mánudag, en í því leikriti lék
Arnar kölska.
Arnar sagði að svo heppilega
hefði viljað til að lögreglan
hefði átt leið um þegar slysið
átti sér stað og hefði því verið
kallað á sjúkrabíl strax.