NT - 30.05.1984, Blaðsíða 17

NT - 30.05.1984, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 30. maí 1984 1 7 Hjóla- skauta- drottning Twiggy „drottning“ ■ Twiggy komst í sviðs- ljósið sem „grindhoraða lj ósmyndafyrirsætan“. Það var á árum stuttu pilsanna, sem hinir löngu spóaleggir hennar urðu heimsfrægir og hún var þekktasta fyrirsæta í heimi. Twiggy var mjög ung þegar henni hlotnaðist þessi frægð og bjó þá heima hjá foreldrum sínum. Móðir hennar fékk ótal bréf, þar sem hún var skömmuð fyrir að svelta dóttur sína og henni hótað öllu illu ef hún gæfi ekki barninu staðgóðan mat,- og ýmsar ráðleggingar fylgdu til þess að Twiggy fengi svolítil hold á kroppinn. Twiggy-tískan varð jafnvel til þess að unglings- stúlkur, með allt annað holdarfar en hin mjó- slegna fyrirsæta, fóru að svelta sig í gríð og erg svo til vandræða horfði. _ í Englandi varð þetta eins og faraldur. f>ó Twiggy sé ekki feitlagin þá hefur hún þó breyst í vextinum, eink- um eftir að hún varð móðir. Það nýjasta að fréfta af Twiggy er að hún hefur unnið sér frægð og frama á leiksviði í New York. Hún hefur komið fram í söng- og dans- leikjum og var nýlega kos- in „Ziegfeld stúlka ársins", en um áratugi hafa Ziegfeld-stúlkurnar þótt bera af sem söng- og dans- píur. Twiggy sagðist mjög upp með sér af þessum heiðurstitli. TWIGGY á fyrstu frægð-; arárum sínum. ■ - Teygjum á lærvöðvun- um! ■ Við höfum séð mikið af fallegum skautastúlkum í sjón- varpinu að undanförnu, - en líklega ekki neina hjóla- skautadrottningu. Danielle Brisebois, sem er bandarískur sjónvarps-starfs- maður, segir að besta hreyfing- in fyrir líkamann sé hressilegur rúlluskautasprettur með til- brigðum og teygjum, eins og við sjáum að hún leikur hér á myndinni. - í þessum rúllu- skautaæfingum mínum sam- einast „aerobics-æfingar" og teygjur og ég brenni 650-700 hitaeiningum á klukkutíma, segir'Danielle. Hún er í góðri þjálfun, svo sem sjá má. Twiggy með höfuð- skrautið sem fylgdi tiltlinum „Ziegfeld- stúlka ársins“. Það er meðleikari hennar, Tommy Tune, sem krýndi hana. ■ Deena í leðurjakkanum sínum með 12 pnda riffilinn sinn, sem kostaði 600 dollara. fæddist í Montana og var far- inn að skjóta mjög ungur. Hann á 27 heimsmet í fþrótt- inni, 71 landsmet og þrjá 01- ympíuverðlaunapeninga - 2 úr gulli og 1 úr silfri. Allir í fjölskyldunni eru á fullu í skotíþróttinni, - nema Mary Kay, eiginkona Lones. - Hún segist hata hávaðann frá æfingasvæðinu og ekki geta hugsað sér að hleypa af skoti. Deena segir að pabbi sinn hafi ekki viljað þjálfa sig lengur, heldur látið annan taka við, þegar hún fór að æfa sig fyrir Olympíuleikana. - Það verður of mikil spenna í loftinu ef við erum bæði að æfa saman af slíku kappi og nauðsynlegt er fyrir svona stórleiki. Maður verður að vera ákveðinn í að sigra. Ekkert annað kemst að. Við þurfum ekki að keppa hvort við annað heldur verð- um í sama liði“, sagði Deena. Á Pan Am-leikunum í fyrra- sumar hlaut Deena 2 verðlaun en faðir hennar fékk 5 verð- laun.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.