NT - 30.05.1984, Side 26
íþróttir
Nils Liedholm, hinn sænski þjálfari AS Roma um ieikinn í kvöld
„Mun ekki v íkja frá
mínu leiksk ipulagi“
næst besta liðið í Róm á eftir
Lazio þar til á allra síðustu
árum og á síðasta keppnis-
tímabili vann liðið deildina í
annað sinn. Árangurinn er
þakkaður góðri stjórn Lied-
holms svo og brasilísku stjörn-
unum tveim, Falcao ogCerezo.
En það eru fleiri góðir leik-
menn hjá Roma en Brassarnir
tveir og má nefna Bruno Conti,
Sebastiano Nela, Francesco
Graziani, allt landsliðsmenn,
Roberto Pruzzoog fyrirliðann,
Agostino Di Bartolomei sem
er 29 ára og er aukaspyrnusér-
fræðingur liðsins.
Liedholm veit vel á móti
hverslags liði Roma mun leika
á miðvikudaginn, Liverpool
hefur unnið alla leiki sína á
útivelli í Evrópukeppninni í
ár. „Að vissu leyti leika þeir
knattspyrnu eins og við“ segir
Liedholm „liðsfótbolta, ein-
faldán en frábæran, líkari
■ Niels Liedholm þjálfari Liedholm. „Liverpool er lík- Bikarkeppnina fimm sinnum. þýskri eða ítalskri knattspyrnu
Roma amlega sterkara en við og við Liðið hefur alltaf verið talið heldur en enskri".
AS Roma hefur ekki tapað leik á þessu tímabili
■ Allir knattspyrnuunnendur
í Róm og reyndar um alla
Evrópu munu hafa augu og
eyru sperrt þegar úrslitaleikur
Evópukeppninnar í knatt-
spyrnu fer fram í Róm í kvöld.
Þaö verða heimamenn, ítal-
íumeistarar Roma, sem mæta
ensku meisturunum Liverpool
á heimavelli þeirra fyrrnefndu.
Bein útsending í íslenska sjón-
varpinu hefst kl. 18.00.
Að sjálfsögðu er það hagur
Roma að fá að spila á sínum
eigin velli þar sem þeir hafa
ekki tapað leik á þessu keppn-
istímabili, hvorki í ítölsku
deildinni né í Evrópukeppn-
inni. Þá má og geta að félagið
er moldríkt, með tvo af bestu
mönnum brasilíska landsliðsins
innanborðs og áhangendur sem
láta hvorki lögreglukylfur né
táragas koma í veg fyrir að þeir
nái í miða á jafn mikilvægan
leik og þann er framundan er.
Þrátt fyrir þetta er hinn sænski
þjálfari Roma, Nils Licdholm,
ekki yfir sig bjartsýnn á sigur
sinna manna, „við þurfum að
vinna fyrstu 90 mín.“ segir
verðum að komast hjá því að
lenda í framlengingu“ bætir
Liedholm við.
Evrópumeistaratitill er svo
sannarlega það sem Liedholm
langar að ná í því talið er að
hann muni hætta í lok þessa
keppnistímabils. „Fólk er að
tala um að við ættum að spila
maður á mann“ skrifaði Lied-
holm í vikuritið Panorama, „en
ég mun ekki víkja frá minni
taktík. Ég vil vinna leikinn
með því að spila okkar venju-
lega svæðabolta".
Útherjinn Bruno Conti segir
„þessi leikur er jafn mikilvægur
og úrslitaleikurinn á HM á
Spáni en þessi er verri vegna
þess hve lengi við þurfum að
bíða.
Fyrir Roma þá er þetta einn
mikilvægasti leikur í sögu fé-
lagsins, sem var stofnað árið
1927. Roma vann ítölsku deild-
ina árið 1941 -’42 og hafa unnið
f---
Miðvikudagur 30. maí 1984 26
■ Skærasta stjarna Roma-liðsins, Brasilíumaðurinn Paolo Ro-
berto Falcao, veröur í sviðsljósinu í kvöld þegar Roma mætir
Liverpool í úrslitum Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu.
Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu í íslenska sjónvarpinu
kl. 18.00.
Liverpool hefur á brattann að sækja í Rómaborg í kvöld:
■ Náum við þessum líka?, gæti Ian Rush verið að hugsa á þessari mynd, en Rush er bjartsýnn á
leikinn, þegar byrjaður að fægja bikarinn.
Fer meistarabikar-
innlíka til Liverpool?
■ í ár hafa allar leiðir legið til
Liverpool í ensku knattspyrn-
unni. Liverpool FC vann enska
meistaratitilinn, mjólkurkikar-
inn og góðgerðaskjöldinn.
Everton vann nýlega enska
bikarinn, og þar með fyrsta
titilinn í 14 ár.
íbúar borgarinnar í Mersey-
side geta verið stoltir. Liver-
pool FC hefur lengi verið stór-
veldi í enskri knattspyrnu, m.a.
unnið meistaratitilinn þrjú ár í
röð, og deildarbikarinn/mjólk-
urbikarinn fjögur ár í röð. Þá
vann liðið góðgerðaskjöldinn í
leik við Manchester Utd í
haust, bikarmeistarar og Eng-
landsmeistarar keppa um hann
árlega. í vetur léku í fyrsta sinn
tvö lið frá Liverpool til úrslita
um deildabikarinn. Liverpool
vann Everton eftir að leika
þurfti tvo leiki.
Bæði liðin keppa því í Evr-
ópukeppnum á næsta ári, í
tveimur stærstu keppnunum.
Liverpool í Evrópukeppni
meistaraliða, og Everton í Evr-
ópukeppni bikarhafa.
Rúsínan í pylsuendanum fyr-
ir Liverpoolbúa er þó eftir.
Liverpool leikur til úrslita í
Evrópukeppni meistaraliða
1984 í kvöld. Það verður erfið-
ur róður, leikið gegn AS Roma
á heimavelli. En sigur hjá
Liverpool þar mundi setja
punktinn yfir i-ið, bæði hjá
aðstandendum Liverpool FC
og íbúum borgarinnar.
Ekki þarf að kynna lið Liver-
pool fyrir íslenskum knatt-
spyrnuunnendum. Þar er val-
inn maður í hverju rúmi, og
allir hafa leikið landsleiki fyrir
þjóð sína. Aftast stendur
þjóðsagnapersónan Bruce
Grobbelaar, landsliðsmaður
fæðingarlands síns, Zimbabwe.
I vörninni eru Mark Lawren-
son, Alan Hansen, Alan
Kennedy og Phil Neal, á miðj-
unni Graeme Souness fyrirliði,
Sammy Lee, Ronnie Whelan
og John Wark, og framlínu-
menn markamaskínan Ian
Rush og hinn frábæri Kenny
Dalglish. Allt eru þetta enskir,
skoskir eða írskir landsliðs-
menn. NT óskar knattspyrnu-
unnendum góðrar skemmtun-
ar.
Íþróttafélag Fatlaðra í Reykjavík 10 ára:
Nýtt íþróttahús-
tímamót hjá ÍFR
■ í dag miðvikudag 30. maí
er íþróttafélag fatlaðra í
Reykjavík 10 ára.
Félagið stendur nú á tíma-
mótum, því mikið átak í upp-
byggingu hins nýja íþróttahúss
félagsins stendur fyrir dyrum.
Fyrsta skóflustungan að hinu
nýja húsi var tekin í ágúst á
síðasta ári og vonast forráða-
menn félagsins til þess að húsið
verði tilbúið í lok næsta árs.
Húsið verður alls 1262 fermetr-
ar, en aðalsalurinn verður
33x18 metrar.
Ekki þarf að fjölyrða um það
hversu mikla þýðingu þetta
nýja hús kemur til með að hafa
fyrir alla starfsemi félagsins, en í
dag fara æfingar ÍFR fram á
þremur stöðum í borginni. Um
380 manns eru félagar í ÍFR og
þjálfarar nú eru 10.
Dagskrá afmælisins verður
með þeim hætti að í kvöld hefst
fyrri hluti aðalfundar félagins,
í Ártúni Vagnhöfða 11, en eftir
setningu fundarins hefst af-
mælishóf félagsins. Á laugar-
dag 2. júní kl. 14.00 hefst síðari
hluti aðalfundar félagsins,
einnig að Vagnhöfða 11. Um
kvöldið verður afmælisdans-
leikur félagsins að Hótel Esju
annarri hæð og hefst hann kl.
21.30. Allir velunnarar félags-
ins eru velkomnir á þessa hátíð-
ardagskrá1 ÍFR.
í stjórn ÍFR nú eru Arnór
Pétursson formaður, Edda
Bergmann Guðmundsdóttir,
Elsa Stefánsdóttir, Vigfús
Gunnarsson og Guðni Þór Arn-
órsson.
■ Arnór Pétursson formaður ÍFR tekur fyrstu skóflustunguna að hinu nýja íþróttahúsi félagsins í
Hátúni, í ágúst í fyrra.