NT - 12.06.1984, Blaðsíða 16
Rás2
Rás 1 kl. 14.45
kl. 17.
Rcnko og Hill lögregluþjónar eru leiknir af þeim Charles Haid og Michael Warren.
Sjónvarpkl. 21.45:
Verðir laganna
- Kemur forsetinn loksins?
■ Pátturinn um löggurnar
amerísku, Verðir laganna eða
Hill Street Blues, hefur fengið
mjög góðar viðtökur hjá sjón-
varpsáhorfendum. Fjórði þátt-
urinn er á dagskrá í kvöld og
spurningarnar eru margar.
Tekst Frank Furillo lögreglu-
fulltrúa að sættast við konu
sína svo að hann fái tíma til
að fitla við lögfræðinginn
fagra? Lendir La Rue í mútu-
netinu sem löggan situr föst í,
eða tekst þessari kvensömu
leynilöggu að fletta ofan af
spillingunni? Og við bíðum
spennt eftir því hvort Hill og
Renko lendi í einu rifrildinu
enn',- og fari svo að grenja og
sættist. Svörin við þessum
spurningum fást kl. 21.45-
Að síðustu verður lesið úr
bréfum og dregið í getraun-
inni. Og auðvitað eru svo öll
nýjustu lögin í þættinum.
Eðvarð Ingólfsson fær mikið
af bréfum í þáttinn, allt upp í
400 á viku. Hann segir þó að
heldur hafi dregið úr bréfa-
fjöldanum upp á síðkastið,
væntanlega vegna sumarfría og
annars.
„Ég er ángæður með að fá
svona mörg bréf, því ég bæði
fyrir mér ef ég fengi þau ekki.
Pátturinn á að vera vettvangur
unglinganna".
I bréfunum er sagt frá félags-
lífi skólum og þorpum bréfrit-
aranna. Eðvarð hefur safnað
símanúmerum úr þessum
bréfum og komið upp
fréttaritarakerfi á svæði Rásar
2.
„Maður nær svona vissum
kontakt við krakkana í gegn-
um þetta,“ segir Eðvarð. Þátt-
urinn er ætlaður 12-16 ára
unglingum.
Sjónvarp kl. 22.30:
Kvótakerfið
- kostir þess og gallar
■ í kvöld verður umræðu-
þáttur um kvótakerfið og
reynsluna af því í beinni
útsendingu í sjónvarpinu.
Ætti það að verða hinn
fjörugasti þáttur ef að lík-
um lætur, því kvótakerfið
hefur verið mikið deiluefni
eins og menn vita. Rað er
Ingvi Hrafn Jónsson (þessi
með grettuna) sem stýrir
umræðum en þátttakendur
verða annars Halldór As-
grímsson sjávarútvegsráð-
herra, Guðjón A. Krist-
jánsson, forseti Far-
manna- og fiskimannasam-
bands íslands, Kristján
Ragnarsson framkvæmda-
stjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna og
Ólafur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri á Neskaup-
stað.
Skyldi þessi hafa fengið stóran kvóta?
Þriðjudagur 12. júní 1984 16
Frístund
- Þáttur Eð-
varðs Ingólfs-
sonar
Upptaktur
■ Upptaktur nefnist tónlist-
arþáttur sem Guðmundur
Benediktsson er með í dag á (
Rás 1.
„Petta hefur þróast eftir að
Rás 2 tók til starfa út í það að
ekki er spilað mikið af allra
vinsælustu lögunum," segir
Guðmundur. „Ég spila meira
af lögum sem ekki heyrast
mjög oft, eða þá lög af stórum
plötum sem hafa að geyma eitt
eða tvö vinsæl lög, ég spila þá
hin lögin, þau sem ekki heyrast
ella. Eg er búinn að vera með
þáttinn í eitt ár, og þetta
byrjaði svipað og aðrir popp-
þættir, en hefur þróast svona í
seinni tíð“.
■ Eðvarð Ingólfsson er með
unglingaþáttinn Frístund á Rás
2 í dag. I þættinum í dag
verður Bergþóra Guðmunds-
dóttir aðstoðarþulur.
í þættingum verður talað við
Stefán Baxter, íslandsmeistara
í break-dansi. Fjallað verður
um ökunám, talað við öku-
kennara og væntanlega ein-
hvern sem tekið hefur bílpróf.
Síðan veröur hringt til Kirkju-
bæjarklausturs og talað við
Helgu Björgu Dagbjartsdóttur.
■ Eðvarð Ingólfsson.
Guðmundur hefur t.d. spil-
að lag með Peter Gabriel, sem
er á sömu plötu og Against All
Odds með Phil Collins er á.
Hann spilar einnig lög með
hljómsveitum eins og Mar-
illion og Smiths.
Hefur ekki Rás 2 vinninginn
í hlustuninni?
„Jú, ég geri ráð fyrir að það
sé minna hlustað á þáttinn þess
vegna, menn láta Rásina ganga
og skipta ekki um þótt eitthvað
áhugavert sé á gömlu rásinni.
En það má ekki gleyma lands-
byggðinni, þessari sem enga
Rás 2 hefur, maður verður að
taka tillit til þess að hafa ekki
tónlistina of þunga“.
Hvað er þín uppáhalds-
músík?
„Ég hef aldrei átt neina
sérstaka uppáhaldsmúsík, það
er alltaf eitthvað nýtt að koma
■ Guðmundur Bcnediktsson
á Mánaáruin sínum.
fram. Þótt einhver geri eitt-
hvert stórvirki einhverntímann
þá er ekki víst að henn geri
það aftur. Menn eru alls ekki
öfundsverðir þótt þeir detti í
lukkupottinn, kannski slær
fyrsta eða önnur platan í gegn
og eftir það er allt sem þessir
menn gera borið saman við
það. Ég nefni t.d. Mike Old-
field í þessu sambandi, hann
hefur aldrei náð viðlíka vin-
sældum og með fyrstu plöt-
unni, Tubular Bells“.
Þriðjudagur
12. júní
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. í
bitið - Hanna G. Sigurðardóttir og
lllugi Jökulsson. 7.25 Leik-
fimi.Jónína Benediktsdóttir 7.55
Daglegt mál. Endurt. Þáttur Marö-
ar Arnasonar frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Oddur Albertsson
talar.
9.00 Fre'ttir.
9.05 Morgunstund barnanna.
„Hindin góða“ eftir Kristján Jó-
hannsson Viðar Eggertsson les
(7).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10Veöurfregnir.For-
ustugr. landsmálabl. (útdr.)
10.45 „Ljáðu mér eyra“ Málmfríður
Siguröardóttir á Jaðri sér um þátt-
inn (RÚVAK).
11.15 Tónleikar Ólafur Þórðarson
kynnir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Ameriskt „Kántrí“
14.00 „Endurfæðingin" eftir Max
Ehrlich Þorsteinn Antonsson les
þýðingu sína (9).
14.30 Miðdegistónleikar Artur Bals-
am leikur Píanósónötu nr. 30 í
A-dúr eftir Joseþh Haydn.
14.45 Upptaktur - Guðmundur
Benediktsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréftir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Islensk tónlist Sinfóníuhljóm-
sveit íslands leikur „Mörð Valgarös-
son“, leikhústónlist eftir Leif Þórar-
insson; höfundurinn stj. / og Klarin-
ettukonsert eftir Pál P. Pálsson.
Einleikari: Sigurður I. Snorrason;
höfundurinn stj.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Síðdegisútvarp. - Sigrún
Björnsdóttir og Sverrir Gauti Di-
ego. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnandi:
Gunnvör Braga.
20.00 Sagan: Flambardssetrið II.
hluti, „Flugið heillar" eftir K.M.
Peyton Silja Aðalsteinsdóttir les
þýðingu sína (10).
20.30 Horn unga fólksins í umsjá
Sigurlaugar M. Jónasdóttur.
20.40 Kvöldvaka a. Kynni mín af
Haraldi á Kambl Jón R. Hjálmars-
son ræðir við Hjört L. Jónsson á
Eyrarbakka um kynni hans af Har-
aldi Hjálmarssyni frá Kambi i
Deildardal. b. Sveitamóður á of-
anverðri 19. öld Eggert Þór Bern-
harðsson heldur áfram aö lesa úr
fyrirlestri Bríetar Bjarnhéðinsdóttur
„Sveitalifið og Reykjavikurlifið",
sem hún flutti árið 1894.
21.10 Frá ferðum Þorvaldar Thor-
oddsen um ísland 2. þáttur:
Reykjanes sumarið 1883.
Umsjón: Tómas Einarsson. Lesari
með honum: Snorri Jónsson.
21.45 Útvarpssagan: „Þúsund og
ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir
les valdar sögur úr safninu í
þýðingu Steingríms Thorsteins-
sonar (25).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Listahátíð 1984: Þorsteinn
Gauti Sigurðsson píanóleikari
Hljóðritun frá tónleikum i Bústaða-
kirkju fyrr um kvöldið. - Kynnir:
Baldur Pálmason.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
sjonvarp
Þriðjudagur
12. júní
18.00 Danmörk - Frakkland Bein
útsending frá París. Fyrsti leikur [
úrslitakeppni Evrópumóts lands-
liða í knattspyrnu.
20.15 Fréttir og veður
20.45 Auglýsingar og dagskrá
20.50 Myndlistarmenn. Leifur
Breiðfjörð glerlistarmaður.
20.55 Á járnbrautaleiðum 2. Ferðin
til landsins að fjallabaki. Breskur
heimildamyndaflokkur i sjö
þáttum. í þessum þætti liggur leiðin
um Dourodal i Portúgal um vín-
uppskerutímann. Þýðandi Ingi Karl
Jóhannesson. Þulur Þorsteinn
Helgason.
21.45 Verðir laganna 4. Er ný
víkingaöld í aðsigi? Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur um lög-
reglustörf í stórborg. Þýðandi Bogi
Arnar Finnbogason.
22.30 Kvótakerfið í vertíðarlok -
kostir og gallar Umræðuþáttur i
beinni útsendingu um reynsluna af
fiskveiöikvótakerfinu fyrsta hálfa
árið. Þátttakendur verða Halldór
Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra, Guöjón A. Kristjánsson,
forseti Farmanna- og fiskimanna-
sambands Islands, Kristján Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands islenskra útvegsmanna
og Ólafur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri, Neskaupstað. Um-
ræðum stýrir Ingvi Hrafn Jónsson.
23.25 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson,
23.45 Fréttir í dagskrárlok.