NT - 21.06.1984, Side 4
Fimmtudagur 21. júní 1984 4
Myndabrengl
■ Sigrún Klara Hannesdóttir lektor í bókasafnsfræði við Háskóla
Hluti þátttakenda á námskeiði Nordfolk, sem staðið hefur undanfarna daga í Norræna húsinu, þar Islands hefur staðið í eldlínunni við framkvæmdir Nordfolks
sem rætt hefur verið um löggjöf almenningsbókasafna og málefni þar að lútandi.
námskeiðsins og hún mun einnig halda fyrirlestur á norræna
bókavarðaþinginu og tala um skólabókasöfn. Ni-myndir Róbert
Fimmtánda norræna bókavarðaþingið haldið á íslandi:
Rúmlega fjögur hundr
uð þátttakendur mæta!
hugann..
■ í grein GuðlaugarEin-
arsdóttur sem birtist í vett-
vangi NT í gær urðu þau
mistök að ekki var birt
rétt mynd af greinarhöf-
undi. Meðfylgjandi mynd
er hins vegar af Guðlaugu
Einarsdóttur, en grein
hennar fjallaði um þá gaila
sem hún telur vera á nýja
leiðakerfi Strætisvagna
Kópavogs. Fimm hundruð
Kópavogsbúar hafa mót-
mælt breytingunni, eins og
kom fram í frétt NT í gær
og svo grein Guðlaugar.
Eru hlutaðeigandi aðilar
beðnir afsökunar á þess-
um mistökum.
■ Guölaug Einarsdóttir
NT-mynd Róbert
■ 15. norræna bókavarða-
þingið verður sett i Þjóðleikhús-
inu nk. sunnudag, 24. júní, að
viðstöddum forseta Islands,
Vigdísi Finnbogadóttur, en
þetta er í fyrsta skipti sem slíkt
þing er haldið á íslandi. Þátttak-
endur eru fjölmargir, rúmlega
400 manns, og koma þeir frá
öllum Norðurlöndunum.
Dagskráin er mjög fjölbreytt
og nýmæli á bókavarðaþingi að
þessu sinni er umræða um bók-
menntir og menningu. Þar
verða barnabókinni gerð sér-
stök skil, en hún vill oft gleym-
ast í umræðu um bókmenntir.
Af öðrum athyglisverðum efn-
um má nefna tölvur og tölvu-
notkun á bókasöfnum, en þær
ryðja sér nú óðum til rúms í allri
fjölmiðlun og verða nauðsyn-
legt hjálpartæki og upplýsinga-
miðill í framtíðinni. Meðal er-
lendra gesta, sem koma til að
lialda fyrirlestra, eru þekktir
rithöfundar, stjórnmálamenn
og fræðimenn og má þar t.d.
nefna Gunnar Hoydal frá Fær-
eyjum, Knud Sörcnsen frá Dan-
mörku, Lars Huldén frá Finn-
landi, Kjartan Flögstad frá
Noregi og Per Olof Sundman
frá Svíþjóð. Af íslenskum fyrir-
lesurum á þinginu má m.a.
nefna Ragnhildi Helgadóttur
menntainálaráðherra, Eirík
Hrein Finnbogason útgáfu-
stjóra og Sigrúnu Klöru Hannes-
dóttur lektor í bókasafnsfræði
við Háskóla íslands.
Þingið stendur fram til 27.
júní og sækja það starfsmenn
allra gerða bókasafna, þe. al-
menningsbókasafna, rann-
sóknabókasafna, sérfræðisafna
og skólabókasafna, auk margra
erlendra sveitastjórnarmanna,
sérstaklega frá Danmörku.
Ekki virðist vera mikill áhugi
meðal íslenskra sveitastjórnar-
manna á þinginu og hafa fáir
„bókað" sig á það, þrátt fyrir
það að bókasafnsmál séu alfarið
í þeirra höndum á íslandi. Er
ísiendingum samvinna við aðrar
þjóðir mikils viröi á þessu sviði
sem öðrum og það ber að fagna
því að þetta þing er nú haldið
hér á landi. Það styrkir tengsl
við granna okkar og gefur mun
flciri íslcndingum tækifæri til
þátttöku.
í tengslum við norræna bóka-
varðaþingið hefur farið fram
námskeið á vegum norrænu al-
menningsbókasafnanefndarinn-
ar, „Nordfolk", sem komið var
á laggirnar af þingi Norður-
landaráðs 1982, og hefur þar
verið fjallað um löggjöf fyrir
almenningsbókasöfn. 1 örstuttu
spjalli sem NT átti við Sigrúnu
Klöru Hannesdóttur lektor í
bókasafnsfræði við HÍ, sagði
hún að þetta væri í fyrsta skipti
sem slíkt námskeið væri haldið
á íslandi en áður hefur
„Nordfolk" staðið fyrir 5 svip-
uðum námskeiðum á hinum
Norðurlöndunum um mismun-
andi málefni. Að þessu sinni
sóttu námskeiðið 35 fulltrúar og
hefur aðallega verið rætt um
löggjöf almenningsbókasafna
og málefni þar að lútandi, ss.
höfundalög, greiðslur til rit-
höfunda fyrir afnot af bókum
þeirra í söfnum og skylduskila-
lög, sem fela í sér kvöð á
prentsmiðjur að skila eintökum
af öllu prentuðu máli, sem gefið
er út, til viðeigandi Landsbóka-
safna. Námskeiðinu, sem er
skipulagt af Háskóla íslands og
„Nordfolk", lýkur á morgun en
allir fulltrúarnir munu síðan
taka þátt í norræna bókavarða-
þinginu. Formaður „Nordfolk,,
nefndarinnar er Daninn Jes Pet-
ersen.
Gjaldþrotafyrirtækjunum verði
breytt í samvinnufélög launþega
tillaga Samhygðar með 40 þúsund undirskriftum gegn atvinnuleysi frá íslandi
■ Ásamt því að senda Alþjóða-
vinnumálastofnuninni í Genf nöfn
þeirra 40.056 einstaklinga sem
skrifuðu undir í undirskriftasöfn-
un Samhygðar hér á landi gegn
atvinnuleysi á íslandi og í Evrópu
bendir Samhygð á leið til að leysa
hið mikla atvinnuleysisböl sem við
er að glíma í fjölmörgum löndum
V-Evrópu, þar sem um 20 milljón-
ir manna eru atvinnulausar, leggur
Samhygð til að gjaldþrotafyrir-
tækjum verði með aðstoð ríkis-
valds viðkomandi landa breytt í
samvinnufélög launþcga og þeim
verði þannig gert kleift að halda
atvinnu sinni afram.
Að sögn samhygðarmanna var
undirskriftasöfnun þessi ein víð-
tækasta samskiptaathöfn í sögu
þjóðarinnar. Kváðuþeirsamhygð-
arfólk hafa talað persónulega við
70 til 80 þúsund íslendinga sem
lang flestir hafi sýnt jákvæð
viðbrögð.
Að sögn Júlíusar Valdimarssón-
ar, formanns félagsmálanefndar
■ Samhygð er málsvari mannlegra viðhorfa og eina leiðin til að
koma þessari mannlegu stefnu til valda er í gegnum stjórnmál - því
þurfum við að stofna flokk, segja samhygðarmennirnir: Asthildur
Jónsdóttir, form. útbreiðsludeildar, Methúsalem Þórisson, form.
lagadcildar og Júlíus Valdimarsson, form. félagsmáladeildar Sam-
hygðar. NT-mynd Ari
Samhygðar hcfur margt fólk beðið
Samhygð að stofna nýjan stjórn-
málaflokk. „Og bak við þær óskir
hefur reynst meiri styrkur og kraft-
ur en við höfðum gert okkur grein
fyrir áður en við fórum út í
undirskriftasöfnuni na. “
Að sögn þcirra samhygðar-
manna hcfurSamhygð þegargeng-
ist fyrir stofnun stjórnálaflokka í
öðrum löndum. Fyrstir urðu sam-
hygðarmenn í Argentínu, þar sem
stofnaður var húmanistaflokkur
hinn 8. mars. Einnig sögðu þeir
sli'ka flokka hafa verið stofnaða á
Spáni, Frakklandi, Danmörku, ít-
alíu ogsíðast Chile nú 26. maí s.l.,
þrátt fyrir bann við stofnun stjórn-
málaflokka þar í landi.
Samhygð er málsvari mannlegra
viðhorfa, og eina leiðin til að
koma þessari mannlegu stefnu til
valda er í gegnum stjórnmál - því
þurfum við að stofna flokk, sagði
sá hópur samhygðarmanna sem
NT ræddi við um flokksstofnun-
ina.
„Bókalestur Fær-
eyinga eykst“
-segirSverri Egholmbóka-
vörður á Landsbókasafninu
í Þórshöfn
■ Fulltrúi Færeyinga á
námskeiði „Nordfolk" í
Norræna húsinu var Sverri
Egholm bókasafnsvörður á
Landsbókasafninu í Þórs-
höfn og átti NT við hann
stutt spjall um bókasafnsmál
í Færeyjum og norrænt sam-
starf á því sviði. Var hann
fyrst spurður hvort bókasöfn
væru mjög útbreidd í Fær-
eyjum.
„Bókasöfn í Færeyjum
hafa fallið undir heima-
stjórnina síðan 1948 en
Landsbókasafnið, sem var
stofnað 1828, var lengi eina
bókasafn Færeyinga. Ein-
stök lestrarfélög fundust en
almenningsbókasöfn komu
ekki til sögunnar fyrr en
eftir 1940. Núna eru þau 13,
auk Landsbókasafnsins, og
eru flest þeirra lítil nema
Borgarbókasafnið í Þórs-
■ Sverri Egholnt bóka-
vörður í Færeyjum: „Eig-
um mjög gott samstarf við
Landsbókasafnið í
Reykjavík og grænlenska
Landsbókasafnið í
Nuuk“.
höfn sem telur um 60 þús-
und bækur"
- Hvernig er nýtingin á
bókasöfnum í Færeyjum?
„Það eru um 45 þúsund
íbúar í Færeyjum og það
má segja að það séu lánaðar
rúmlega tvær bækur á mann
á ári. Mest notkunin er auð-
vitað í Þórshöfn en almennt
er vöxtur í bókaútlánum í
stærri byggðalögum en sam-
dráttar verður vart á minni
stöðum. Við urðum varir
við vissan samdrátt þegar
sjónvarpið kom 1969 en nú
hefur lestur bóka aukist á
ný“.
- Erindi þitt á námskeið-
inu á morgun kallarðu „Lög
án bókasafnaT Hvaðætlaðu
að fjalla um?
„Eg kem aðeins inná lög-
gjöf sem við fengum um
grunnskóla 1979 þar sem
stendur að skólabókasöfn-
um skuli komið á stofn við
alla skóla en ekkert opinbert
skólabókasafn hefur séð
dagsins ljós ennþá. Söfnin
eru til en fá engan stuðning
frá yfirvöldunum og það er
ósk okkar að skólabókasöfn
og almenningsbókasöfn lúti
sömu löggjöf“.
- Þú verður sömuleiðis
með innlegg á norræna
bókavarðaþinginu. Um
hvað ætlarðu að tala?
„Það verður um Færeyjar í
norrænu samstarfi, um sér-
stöðu okkar og þau vanda-
mál sem það skapar að við
skulum ekki hafa hlotið
viðurkenningu sem fullgildir
aðilar í öllum málaflokkum.
Island tekur oft frumkvæðið
og dregur „litla bróður" með
í samstarfið en það er sjaldn-
ar að stóru löndin taki frum-
kvæði. Þannig er t.d. sam-
starf okkar við ísland, og
reyndar Grænland líka, í
bókasafnsmálum mjög
gott".