NT - 21.06.1984, Blaðsíða 12

NT - 21.06.1984, Blaðsíða 12
 m Fimmtudagur 21. júní 1984 12 Ll L Vettvangur Kjör verkakvenna í fataiðnaðinum í Thailandi: NÚTÍMA ÞRÆLAHALD Byggtágrein „New Statesman", þýtt að f rumkvæði Landssambands iðnverkafólks sofa á hörðu gólfinu í einni kös. Og jafnvel þótt starfsdegi Ijúki kl. 11 að kveldi þurfa stúlkurnar oft að bíða tímun- um saman eftir sturtubaði til að skola af sér svita dagsins. Mr. Bundit viðurkennir, að aðbúnaðurinn sé ekki eins og best verður á kosið, en bætir við að „þær kvarti ekki“. Eins og aðrir verksmiðjueig- endur í Bangkok forðast Mr. Bundit að ráða til starfa stúlkur sem fæddar eru og uppaldar í Bangkok af ótta við, að þær séu of sjálfstæðar og geti risið upp sér til varnar. Þeir sækjast þess í stað eftir snauðum, illa upplýstum, ómenntuðum sveitastúlkum frá fátækustu hlutum Thailands, í norðri og norð-austri. Þær leggja hart að sér, beygja sig undir algera drottnun atvinnurekendanna og kvarta ekki. Hjá Dynasti Fabrics starfa um 300 konur og barnungar stúlkur. Til að sneiða hjá thailensku vinnulöggjöfinni, sem kveður á um að á svona stórum vinnustað hafi verka- fólk rétt á trúnaðarmanni, er verksmiðjan skráð sem tvö fyrirtæki. Stúlkurnar sem vinna hjá fyrirtækinu, að stórum hluta á aldrinum 13 til 14 ára, fá laun langt undir 80 kr. lögboðnu lágmarkstekjutryggingunni og eins og tíðkast hjá flestum fataiðnaðarfyrirtækjunum í Bangkok er vinnutíminn nán- ast ótakmarkaður, samkv. ákvörðun fyrirtækisins. Stúlk- urnar sofa í verksmiðjunni sjálfri, í kompum sem þiljaðar hafa verið af og verða að láta sér lynda, að sofa á gólfinu hver um aðra þvera. Stúlkurnar hjá Thai Thon Knitting prjóna peysur sem náð hafa miklum vinsældum á Vesturlöndum. Samkvæmt lýs- ingu forstjórans Mr. Sakchai eru þær aðstæður sem stúlk- urnar búa við harla „góðar" miða við það sem almennt tíðkast: Stúlkurnar hafa flestar náð 17 ára aldri, þær búa í þægilegum vistarverum á þaki verksmiðjubyggingarinnar, á gólfinu „eins og þær eru vanar að heiman", og þær fara í bíó á sunnudögum. Að sögn Mr. Sakchai hafa stúlkurnar sem hjá honum vinna minnst 135 kr. á dag. En hvernig hefur hann hann efni a að sýna starfsfólki sínu slíka rausn? „Ef við gerðum það ekki væru þær ekki ánægðar og mundu leita eitthvert annað“. En hvernig skýrir hann þá tilvist varðmannsins við verksmiðju- hliðið, ef allt er í himna lagi? Það verður fátt um svör hjá Mr. Sakchai. í viðtölum við stúlkurnar hjá Thai Thon Knitting kom fram nokkuð önnur mynd af ástandi mála. Vissulega út- vegar fyrirtækið þeim svefnstað, sjö herbergi, þar sem 250 stúlkum er gert að hírast í einni bendu. Fyrirtæk- ið sér starfsfólkinu fyrir skammti af hrísgrjónum, en annan mat verða stúlkurnar að kaupa sjálfar. Og þar kemur skýringin á tilvist varðmanns- ins. Hann fylgist með þeim stúlkum sem leyft er að versla á markaðinum þar skammt frá pg rekur þær aftur inn í verk- smiðjuna, þegar honum þykir þær hafa tafið nóg. Það voru alveg nýjar fréttir fyrir stúlkurnar að þær færu í Grimmileg meðferð á stúlkubörnum Verksmiðja Fortune Gar- ment er staðsett í hjarta Kína- hverfisins í Bangkok. Þar starfa um 250 stúlkur. Fastur vinnutími er frá 8 á morgnana til 11 á kvöldin, sjö daga vik- unnar. Oft er þó unnið lengri vinnudagur, langt frameftir nóttu. Fyrir vinnu sína fá yngri saumakonurnar hjá Fortuna Garment, sem tæpast eru komnar af barnsaldri, minna en 40 kr. á dag, sem ekki nær hálfum lögboðnum lágmarks- launum eins og þau eru í Thailandi. Yfirvinnan er ekki greidd sérstaklega. Að sögn Mr. Bundit, annars eiganda og forstjóra fyrirtækisins, er það Hefur þú velt því fyrir þér hver kunni að vera skýringin á lágu verði á fatnaði frá Thailandi og löndum í Austurlöndum fjær. ■ Það er velþekkt staðreynd, að fataiðnaðurinn í V-Evrópu hefur síðasta áratuginn og vel það, átt í harðri samkeppni við fatnað og vefnaðarvöru sem fluttur hefur verið inn frá Austurlöndum fjær. ísland hefur ekki farið varhluta af þessari þróun. Og ástæðan er augljós; lágt innkaupsverð á þessum varningi, samanborið við vest- ræna framleiðslu. kvikmyndahús á sunnudögum. Ekki nóg með það, þegar betur var að gáð kom í Ijós, að stúlkunum einkum þeim yngri - en þær eru margar á aldrinum 12 til 14 ára, andstætt því sem Mr. Sakchai heldur fram -, er í reynd haldið föngnum í verk- smiðjunni, og það er enginn möguleiki fyrir þær, að fara „Stúlkurnar sofa í verk- smiðjunni sjálfri, í komp- um sem þiljaðar hafa verið af og verða að láta sér lynda, að sofa á gólfinu hver um aðra þvera.“ frjálsar ferða sinna utan vinnu- tíma. Botnlaus mannfyrirlitning atvinnurekenda Þær aðstæður sent sauma- konur í fataiðnaðinum í Ban- kok verða að búa við og hér hefur verið dregin mynd af í grófum dráttum, eru ekki ýkja frábrugðnar því sem almennt gerist í þessum iðnaði í Austur- löndum fjær. Til að finna ein- hvern samjöfnuð hér á Vestur- löndum verður að fara allt aftur á síðustu öld. Aftur til þess tíma þegar verkalýðs- Hin síðari ár hefur hlutdeild Thailands, einkum Bangkok, í þessum innflutningi farið ört vaxandi, enda bjóðast tæpast betri kjör á fatnaði og vefnað- arvöru annars staðar. Það kemur líka vel heim við þá staðreynd, að í Bangkok cr að finna heimsins stærsta hóp af „ódýru vinnuafli" í fataiðnaði. En ódýrt vinnuafl er helsti leyndardómurinn að baki vel- gengni fataiðnaðarins frá Thai- landi sem og öðruni Austur- lönduni á markaöinum í V- Evrópu. Nýlega tóku tveir breskir blaðamenn sér ferð á hendur til Bangkok, sem fatakaup- menn í innkaupaleiðangri, til að kanna með eigin augum kjör og félagslegar aðstæður verkakvenna í fataiðnaðinum. Og niðurstaða þeirra félaga var ótvíræð: leyndardómurinn að baki velgengni fataiðnaðar- ins í Bangkok er gengdarlaus kúgun og ómannúðleg með- ferð á börnum og óhörnuðum unglingsstúlkum, sem bera þessa atvinnugrein að miklu leyti uppi. Þær aðstæður sem þeim er boðið uppá verður ekki með réttu lýst, nema sem nútímaþrælahaldi. Fyrir algjör smánarlaun er stúlkubörnum þrælað út myrkranna á milli. Og til að tryggja að þau leiti ekki annað er þeim haldið innan verksmiðjuveggjanna á nóttu sem degi þar sem aðbún- aður er allur hinn viðurstyggi- legasti. Við heimkomuna skrifaði annar þeirra félaga Ed Harris- man grein í tímaritið „New Statesman", um þaö sem þeir félagar urðu áskynja í þremur fataiðnaðarfyrirtækjum sem þeir heimsóttu í Bangkok. Hér á eftir verður stuðst við frásögn Ed Harrisman, en þeir félagar gerðu jafnframt sjónvarpsþátt um santa efni sem olli miklu umtali, þegar hann var sýndur þar í landi. „Fyrir vinnu sína fá yngri saumakonurnar hjá For- tuna Garmet sem tæpast eru komnar af barnsaldri minna en 40 krónur á dag sem ekki nær hálfum lög- boðnum lágmarkslaunum eins og þau eru í Thai- landi.“ óskráð samkomulag milli verk- smiðjueigendanna í Bangkok, að laun eru ekki hækkuð ncma með samráði milli eigendanna. Fæst fyrirtæki hafa samninga því flest kjósa þau frekar að ráða stúlkurnar á grundvelli gagnkvæmst trausts, eins og Mr. Bundit orðar það. „Engir samningar, engin vandræði", er viðkvæði Mr. Bundit. Stúlkurnar 250 sem þræla fyrir Fortuna Garment búa í húsnæði sem fyrirtækið lætur í té. Nánar tiltekið í þrem smá- hýsum að baki verksmiðjunn- ar. Þægindi eru þar öll mjög af skornum skammti: engin loft- kæling og stúlkurnar verða að hreyfingin og stjórnmálasam- tök launafólks höfðu ekki enn sett mark sitt á samfélagið og félagsmálalöggjöf var óþekkt fyrirbæri. Það þarf með öðrum orðum, að fara allt aftur til þess tíma, þegar atvinnurek- endur gátu í skjóli ægivalds síns yfirverkafólki,þrælað börnum sem fullorðnum út hömlulaust fyrir kjör, sem þeg- ar best lét gerðu verkafólki mögulegt að draga fram lífið, en ekkert umfram það. Þegar félagslegt og efnalegt öryggi voru óþekkt fyrirbæri og verkafólk þurfti að gera sér að góðu aðbúnað í vinnunni sem utan, sem verkafólk á Vestur- löndum í dag þekkir ekki og á erfitt með að ímynda sér. Það er einmitt þetta ástand, sem verksmiðjueigendurnir í Bangkok hafa tekið þátt í að skapa og viðhalda, og það er þeim þvert um geð að nokkur breyting til batnaðar verði þar á. í huga þessara manna er verkalýðshreyfingin og vinnu- löggjöf af hinu illa, sem berjast ber gegn með oddi og egg, þar sem öll meðöl eru leyfileg. Viðhorf Mr. Sandej, forstjóra Dynasty Fabrics lýsa hugsun- arhætti þessara nútímaþræla- haldara vel. Hann telur að ekkert atvinnuleysi ætti að vera á Vesturlöndum, enda auki það við hinn félagslega kostnað framleiðslunnar. Hann hefur líka skýringuna á öllu því sent hann telur hafa miður farið í efnahagslífi Vest- urlanda. Verkafólk hefur of há laun, fær alltof marga greidda frídaga. Það ætti ekki að leyfa starfsemi verkalýðs- félaga og vinnulöggjöfin er til að brjóta hana. Og Mr. Sandej og kollegar hans liggja ekki á liði sínu þegar kemur að því að færa fram hugmyndir sínar í verki. Ríkisvaldið handbendi valdastéttarinnar Þótt ekki standist löggjöf um réttindi verkafólks í Thai- landi neinn samjöfnuð við það sem tíðkast, þar sem verka- lýðshreyfingin hefur komist til einhverra áhrifa, er hún engu að síður fyrir hendi. Þar er m.a. að finna ákvæði um, að stúlkum sem vinna í verk- smiðjum skuli greitt fyrir yfir- vinnu, ekki megi láta þær vinna alla nóttina, þær skuli fá frí reglulega og sé vinnustaðurinn nógu stór, hafi þær rétt til að skipuleggja sig í verkalýðsfé- lög. Jafnframt kveður löggjöf- in á um, að því aðeins megi ráða stúlkur undir 15 ára aldri til starfa, að fyrir liggi skriflegt samþykki foreldra, læknisvott- orð, vottorð um að viðkom- andi hafi lokið grunnnámi og samþykki opinberra aðila. Hvert einasta ákvæði þess- ara vinnulöggjafar er, eins og fram hefur komið, þverbrotið. En hvernig getur slíkt skeð í landi eins og Thailandi, sem stjórnað er að herforingja- stjórn, sem metur aga, röð og reglu og þjóðlega sjálfsvirð-

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.