NT - 21.06.1984, Blaðsíða 6

NT - 21.06.1984, Blaðsíða 6
Fimmtudagur 21. júní 1984 6 ■ Sumargleðin, eins og hún var skipuð í nóvember 1981, er h ún tók við gullplötu fyrir fyrstu plötu sína, „Sumargleðin syngur“. Síðan þá hefur Þorgeir Astvaldsson sagt skilið við þá félaga Bessa, Ragnar, Ómar og Magnús, en í hans stað kemur enginn annar en Hemmi Gunn. íþróttafréttamaður. Álver í Eyjafirði ■ Kvennalistinn á Akur- eyri er á móti byggingu áivers í Eyjafirði. Þetta kom fram í ályictun, samþykktri á al- mennum fundi Kvennalist- ans 16. júní. Læknis- kostnaður ■ Heilbrigðismálaráð Austurlands telur að hækkuð hlutdeild sjúklinga í læknis- kostnaði hafi þau áhrif að sjúklingar leiti síður til lækn- is en áður. Ennfremur að læknar beiti síður rannsókn- um og röntgenmyndum vegna aukins kostnaðar við slíkt. Þetta kom fram á fundi ráðsins á Egilsstöðum þann 12. júní sl. Nýir sendiherrar ■ 13. júní sl. afhentu þrír sendiherrar forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, trúnaðarbréf sín. Það voru Arnold Hugentobler, sendi- herra Sviss, Sathit Sathirat- haya, sendiherra Thailands og Hyoo Hyun Lee sendi- herra lýðveldisins Kóreu. Dúxar við Sund ■ Bjarni Birgisson og Harpa Rúnarsdóttir voru dúxar Menntaskólans við Sund á þessu skólaári. Bæði hlutu einkunnina 9.3 við stúdentspróf. Bæði braut- skráðust af eðlisfræðikjör- sviði. AIIs brautskráðust 178 stúdentar, flestir af náttúru- fræðikjörsviði eða 63. Einn nemandi, Kjartan Stefáns- son, lauk námi á tveimur kjörsviðum, eðlisfræði- og hagfræðisviði. Stúdentaráð H.í. ■ NT hefur borist bréf frá stjórn Stúdentaráðs Háskóla íslands þar sem fram kemur að formaður Stúdentaráðs ákvarði ekki laun sín sjálfur heldur þurfi samþykkt stjórnar Stúdentaráðs. Enn- fremur segir að formanns- staðan sé ekki talin launað starf, heldur fái formaður greitt fyrir strörf sín sem framkvæmdastjóri Stúdenta- ráðs. Þá kemur einnig fram að laun skrifstofumanns séu ekki 16.000 krónur heldur 18.500 krónur. Bréf þetta er sent í tilefni af skrifum NT um málefni Stödentaráðs. Safnamál á Akureyri ■ Á Akureyri er kominn úr bæklingur um söfn á Ak- ureyri. Bæklingurinn, sem er myndskreyttur, fjallar um átta söfn á Akureyri. í kafl- anum um Amtsbókasafnið kemur fram að starfsmenn þess telja byggingu útibús eitt brýnasta mál safnsins. Bæklingurinn er sérprent úr árbók Akureyrar sem Bóka- forlag Odds Björnssonar gef- ur út. Fyrirhugað er að bæk- lingurinn verði gefinn út ár- lega. Einnig hefur komið úr árs- skýrsla Bæjar- og héraðs- bókasafnsins á Akureyri. Fram kemur í skýrslunni að útlán voru 57.685. Lánþegar voru 19.636. Matreitt og ofið á ísafirði ■ Starfi Húsmæðraskóians Ósk á ísafirði lauk nú í vor með sýningu muna sem nem- endur skólans hafa unnið í vetur. Einnig voru á sýning- unni munir sem súgfirskar konur ófu á námskeiði sem vefnaðarkennari skólans hélt á Suðureyri í vetur. 159 nemendur sóttu nám- skeið skólans í vetur. Flestir námu matreiðlu og vefnað, eða átján á hvoru námskeiði. Borgarbókasafn lokar og lokar ekki ■ Vegna sumarleyfa verða ýmsar breytingar á opnunar- tímum Borgarbókasafnsins. Lestrarsalur aðalsafns verð- ur lokaður í júní og júií, en útlánadeild ekki. Bústaða- safn og Hofsvallasafn verða lokuð frá 2. júlí til 6. ágúst. Sólheimasafn er lokað frá 16. júlí til 6. ágúst. Bókabílar ganga ekki frá 2. júlí til 13. ágúst. Menor funar ■ Aðalfundur Menningar- samtaka Norðlendinga verð- ur haldinn nú um helgina. Fundurinn verður á Blöndu- ósi dagana 23. og 24. júní. Á fundinum verður boðið upp á dagskrá listamanna, auk venjulegra aðalfundastarfa. ■ í frétt blaðsins fyrr í vikunni um lánakjör til loðdýraræktunar sagði að lánakjör til bygginga við loðdýrabú væru lakari en lánakjör við uppbyggingu hefð- bundins búreksturs. Þetta er ekki rétt, reglum Stofnlána- deildar þar að lútandi var breytt á liðnum vetri þannig að nú fá þeir sem hér eftir ráðast í byggingu loðdýrábúa’ lán fyrír 60% byggingakostnaðar sem er • mesta fyrirgreiðsla sem stofnun- m veitir en sama hlutfall rennur til fjárhúsa og fjósbygginga. Pá eru endurgreiðslur lána til loðdýrabúa hagstæðari en við aðrar byggingar og er þar tekið tillit til þess að búin skila seinna af sér arði frá stofnsetingu held- ur en gengur með ýmis konar annan búrekstur. Til að fyrirbyggja misskilning skal tekið fram að þetta er alveg óskylt þeim atriðum umræddrar fréttar að uppbygging búa í hefðbundnum búrekstri nýtur jarðræktarstyrks sem aðrar bú- greinar gera ekki. „Langlundar* geð þrotið“ ■ Langlundargeð starfsmanna Reykjavíkurborgar er þrotið ef marka má ályktun sem sam- þykkt var á fundi í stjórn og fulltrúaráði starfsmannafélags borgarinnar nýlega. I ályktun- inni segir ennfremur að fulltrúa- ráðið telji rétt „að vara stjórn- völd landsins við því, að verði ekki að gert, getur ekkert, alls ckkcrt. komið í veg fyrir að kjarasamningum verði sagt upp og þeim aðferðum beitt, sem duga til stefnubreytingar." 100. platan frá Steinum hf. Hljómlistarhá- tíð á Broadway Hemmi Gunn genginn til liðs við Sumargleðina ■ Steinar hf. gefa út sína 100. hljómplötu n.k. föstu- dag og af því tilefni verður efnt til veglegrar hljómlist- arhátíðar í veitingahúsinu Broadway þá um kvöldið. Að sögn Árnar Bragasonar hjá Steinum hf. munu fjöl- margir þeirra listamanna sem komið hafa við sögu á plötum Steina hf. í gegnum árin, heiðra fyrirtækið með nærveru sinni. Má þar m.a. nefna hina frægu hljómsveit Stuðmenn, en þeir gerðu einmitt fyrstu plötuna sem Steinar hf. gáfu út. Einnig mun Sumargleðin koma fram á Broadway, en 100. platan frá Steinum hf. er jafnframt nýjasta plata þeirra félaganna og ber hún heitið „Af einskærri sumargleði“. Með Sumargleðinni kemur fram nýr meðlimur, og er það enginn annar en knattspyrnu- kappinn og íþróttafréttaritar- inn Hermann Gunnarsson, sem leysir af hólmi Þorgeir rásarstjóra Ástvaldsson. Fjöldi annarra listamanna mun einnig koma fram á hátíð- inni og auk þess verður úrval laga af plötum Steina hf. kynnt. Húsið verður opnað kl. 19.00 en borðhald hefst kl.20.00 og er miðaverð 950 kr. Fyrir þá sem ekki hafa áhuga á matnum mun vera möguleiki á að komast inn að loknu borðhaldi. Sumarstarf fyrir börn og unglinga ■ Út er kominn bæklingur- inn „Sumarstarf fyrir börn og unglinga“. í bæklingnum er að finna upplýsingar um framboð félaga og borgar- stofnana á starfi og leik fyrir börn og unglinga í borginni í sumar. Foreldrar sem hug hafa á að hagnýta sér framboð borgarinnar og félaganna fyrir börn sín eru hvattir til þess að draga ekki innritun þeirra. Útgefandi bæklingsins er Æskulýðsráð Reykjavíkur. ■ Þannig komu Stuðmenn landsmönnum fyrir sjónir 1975 er þeir ferðuðust um landið til að kynna fyrstu stóru plötuna sína, „Sumar á Sýrlandi“ sem Steinar hf. gáfu út. Voru miklar getgátur uppi um hverjir skipuðu þessa nýju hljómsveit en síðan þá er mikið vatn runnið til sjávar og Stuðmenn orðnir fastir í sessi sem vinsælasta hijómsveit Islands. Lán til loðdýraræktar hækkuðu á liðnum vetri - leiðrétting vegna fréttar í blaðinu Offramleiðslugreinum hampað meðan ekki fæst króna í hinar - er loðdýrarœkt aðeins skrýtla i munni stjómmálamanna? ■IMW cm ui Un hl h)UHt|c a c.maklaf, m|u *>■■• hu„ i u*M|i< nf m> (>*■ há cl u>tiw iri b>| uingtnm(> ►■411 lycil noikiai l,tihiiuini mcfi InAfUÍ. hcldgi iuabwkap »■ .aihcntun^ •*(» a kana)«»(c>m>l»n> Sumarstarfið 15 ára: Sumardagskrá félags- starfs aldraðra hjá Reykjavíkurborg ■ Félagsmálastofnun Reykja- víkur hefur gefíð út sumardag- skrá fyrir félagstarf aldraðra. Á dagskránni eru m.a. níu dagsferðir, orlofsdvöl að Longu- mýri í Skagafirði fyrir sex hópa sem unnið er að í samvinnu við Þjóðkirkjuna. Að auki heldur félags- og tómstundastarf áfram í sumar með breyttri dagskrá í Norður- brún 1, Lönguhlíð 3, Furugerði 1, og Oddfellow-húsinu við Vonarstræti. Forstöðumaður félagsstarfs aldraðra á vegum Félagsmála- stofnunar Reykjavíkurborgar er Helena Halldórsdóttir og eru höfuðstöðvar starfsins að Norðurbrún 1. Áskrifta- sími Félassstarf aldraðra í Rcvkjavík sumarið 1984 SuiHurferðir lelitgsslarf Synlngur Orlofsdvöi LtanlaiuMVrðir Almennar upplvsingar 686300

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.