NT - 21.06.1984, Blaðsíða 26
■ Besta tækifæri íslendinga í leiknum í gær. Pétur Ormslev er kominn einn innfyrir vörn Norðmanna, en norski markvörðurinn náði boltanum af Pétri þcgar hann
reyndi að komast framhjá honum. NT-mynd Árni Bjarna.
íslendingar nýttu ekki
færin en það gerðu Norðmenn
■ Norðmenn sigruðu íslend-
inga í vináttulandsleik í knatt-
spyrnu, 1-0, á Laugardalsvell-
inum í gærkvöld. Sigur Norð-
manna var alls ekki sanngjarn,
jafntefli eða íslcnskur sigur
hefðu verið sanngjörnustu úr-
slitin miðað við gang leiksins.
Fyrsta færið í leiknum féll í
skaut Norðmanna. Vidar
Davidsen átti gott skot að
marki íslands eftir þversend-
ingu, en Þorsteinn Bjarnason
varði vel.
Á tuttugustu mínútu leiksins
fengu íslendingar aukaspyrnu
við vítateigshorn Norðmanna.
Pétur Ormslev tók spyrnuna,
gaf fyrir á Sigurð Halldórsson
sem skallaði til félaga síns Karls
Pórðarsonar, en Karl náði að-
eins lausu skoti á markið og
markvörðurinn varði.
Fjórum mínútum síðar
bjargaði Porsteinn vel með út-
hlaupi, eftir skyndisókn
Norðmanna.
Á 41. mín. leiksins fengu
íslendingar sitt besta marktæki-
færi í leiknum. Boltinn barst til
Ragnars Margeirssonar á miðj-
um vellinum, hann gaf út á
kant á Sigurð Grétarsson, sem
gaf góða sendingu á Pétur
Ormslev, sem var einn og
óvaldaður í vítateig Norð-
manna. f stað þess að skjóta
strax á markið, reyndi Pétur að
leika á norska markvörðinn,
með þeim afleiðingum að hann
náði boltanumm af Pétri og
afstýrði því að íslendingar
næðu forystu í leiknum. Fyrst
íslendingum tókst ekki að
skora úr þessu góða tækifæri
var staðan því í hálfleik 0-0.
Strax í upphafi síðari hálf-
leiks sköpuðu íslendingar sér
tækifæri í vítateig Norðmanna.
Sigurður Grétarsson var aðeins
of seinn að ná til boltans og
sóknin rann útí sandinn.
Á 76. mínútu skallaði Sig-
urður rétt yfir norska markið
eftir hornspyrnu.
Á 80. mín. kom reiðarslagið.
Egil Johansen skoraði af stuttu
færi eftir fyrirgjöf Per Egil
Ahlen. Heppnismark Norð-
manna og ekki hægt að saka
íslensku vörnina um markið.
Pegar tvær mínútur voru til
leiksloka tókst Páli Ólafssyni
að komast í gegnum norsku
vörnina og gefa fyrir markið.
Sending Páls var föst og norski
markvörðurinn náði boltanum
ekki. Boltinn var því fyrir opnu
marki og litlu munaði að Janus
Guðlaugsson næði að pota í
boltann, en norskur varnar-
maður var aðeins á undan
honum.
Á síðustu mínútu leiksins
komst Páll aftur í gegn og
reyndi nú sjálfur að skjóta á
markið. Skot hans úr þröngu
færi náði norski markvörðurinn
að verja.
Þessum leik lauk því með
sigri Norðmanna 1-0, en sigur-
inn hefði allt eins getað lent
okkar megin, ef tekið er mið af
færunum í leiknum.
Oft brá fyrir góðu samspili
hjá báðum liðum, en Norð-
menn voru heldur meira með
boltann á miðju vallarins. Jan-
us Guðlaugsson var góður á
miðjunni og sendingar hans
voru oft stórgóðar. Ólafur
Björnsson átti Sgætan leik í
vörninni og Pétur Ormslev átti
góða spretti. Aðrir leikmenn
íslenska liðsins stóðu vel fyrir
sínu. Páll Ólafsson, sem kom
inná sem varamaður í lok leiks-
ins skapaði mikinn usla í vörn
Norðmanna og hefði hann
gjarnan mátt koma fyrr inná.
Norska liðið hresstist nokk-
uð við það að fá Egil Johansen
inná, en að öðru leyti var lið
þeirra mjög jafnt í þessum leik.
Liðin voru skipuit eflirtöldum lcik-
mönnum:
I.vland: Þursteinn Bjarnason (í fyrri
hálfleik, Bjarni SigurAsson í síðari
hálfleik), Þorgrímur Þráinsson, Krist-
ján Jónsson (Trausti Haraldsson á 73.
min.), Pctur Ormslev, Sigurður Hall-
dórsson (Erlingur Kristjánsson á 78.
mín.), Olafur Björnsson, Janus Guð-
laugsson, Karl Þórðarson (Páll Ólafs-
son á 73. mín.), Ragnar Margeirsson
(Ómar Torfason á 82. mín.), Guð-
mundur Þorbjörnsson, Sigurður Grét-
arsson.
Norcgur: Erik Thorstvct, Knut
Thorbjörn Eggen, Terja Kojedal,
Trond Sircvag, Svein Gröndalen, Per
Egil Ahlen, Tom Sundhv, Vidar
Davidscn, Sverre Brandhavg, Arnc
Dokken, Joar Vaadal, Egil Johansen
kom inná sem varamaður í síðari
hálfleik.
Dómari leiksins var Alan Ferguson
frá Skotlandi og dæmdi hann ágætlega.
Sagt eftir leikinn... sagt eftir leikinn... sagt eftir leikinn....
„Áttum ekki skilið að tapa“
■ „Ég átti aö taka hann í
fyrsta, en það er svona, maður
ætlaði að komast í betri að-
stöðu. Það tókst ekki“, sagði
Pétur Ormslev, sem fékk besta
færi íslendinga í leiknum gegn
Norðmönnum, eftir leikinn.
„Eg hafði hendur á boltan-
um, en hann var svo nálægt og
skotið var fast“, sagði Bjarni
Sigurðsson markvörður. „Ég
er ánægður með baráttuna í
liðinu, það er langt síða hún
hefur verið eins góð í landsleik.
En það var ósanngjarnt að við
skildum tapa þessu“, sagði
Bjarni.
„Nú er maður þreyttur. -
Nei þeir voru ekkert sérstakir,
stórir og sterkir, en ekkert
sérstakir", sagði Porgrímur
Þráinsson bakvörður Islands
eftir leikinn. „Við áttum betra
skilið en þessi úrslit, en það var
ágætis barátta í liðinu", sagði
Þorgrímur.
„Það er alltaf súrt að tapa“,
sagði Janus Guðlaugsson eftir
leikinn. „Það var slæmt að nýta
ekki færin í fyrri hálfleik. Þeir
áttu 1-2 færi, en við 5-6. Þetta
var bara spurning um það hvort
liðið nýtti færin betur. Þeir
voru aðeins grimmari á miðj-
unni á köflum, en okkur vant-
aði meiri grimmd frammi. En
við áttum skilið að minnsta
kosti jafntefli og áttum að geta
unnið leikinn", sagði Janus.
„Þessar 15-20 mínútur sem
ég var inni á eru of stuttur tími
til að komast vel inn í leikinn.
En ég fékk þarna hálft færi, að
vísu þröngt. Svo hefði verið
nóg ef einhver hefði hlaupið á
boltann þarna þegar ég gaf
fyrir", sagði Páll Ólafsson
framherji og varamaður
íslands, en hann skapaði tvö af
bestu færum íslands eftir að
hann kom inná.
„Mér er efst í huga þakklæti
til drengjanna fyrir mikinn bar-
áttuleik. Síðan fannst mér
slæmt að tapa þessu, en svona
er fótboltinn", sagði Guðni
Kjartansson stjórnandi ís-
lenska liðsins eftir leikinn.
„Það væri ekki sanngjarnt
að ætla að dæma liöið eftir
þessum eina leik, en það var
mikilvægt að koma og sjá liðið
og þessa leikmenn sem ég ekki
þekki. Mér leist vel á bakvörð-
inn Þorgrím Þráinsson, hann er
góður leikmaður", sagði Tony
Knapp landsliðsþjálfari íslands
eftir leikinn.
■ Besti maður íslenska liðsins í gær, Janus Guðlaugsson í baráttu
við einn leikmanna Noregs. NT-mynd Ámi Bjama.