NT - 21.06.1984, Blaðsíða 18
IU
Fimmtudagur 21. júní 1984 18
Ijónvarp
Rás 2 kl. 16.
Jóreykur að vestan
Þáttur Einars Gunnars um kántrýtónlist
■ Á Rás 2 kl. 4 er á dagskrá
þátturinn Jóreykuraö vestan.
t>að er Einar Gunnar Einars-
son sem stjórnar þættinum
og segist hann munu hafa
þáttinn með mjög hefö-
irundnu sniði.
„Eg mun leika ein tvö lög
af væntanlegri hijómplötu
Hallbjarnar Hjartarsonar,
Kántrý 3, sem kemur út á
næstunni. Eg fékk semsagt
leyfi til að leika þessi tvö lög
áður en platan kemur út.
Ég geri ráð fyrir að ég
muni gera grein fyrir ýmsum
verðlaunum í kántrýmúsik
sem veitt hafa verið að
undanförnu í Bandaríkjun-
um. Ég leik lög með verö-
launahöfum eins og hljóm-
sveitunum Alabama og At-
lanta, Lee Greenwood, sem
er nýstirni þarna fyrir vestan,
Gary Morris og Statler
Brothers.
Síðan mun cg leika eitt eða
tvö lög af nýútkominni plötu
með lögum úr kvikmyndinni
Rhinestone. Sú kvikmynd
var frumsýnd 10. júní í
Bandaríkjunum, og þar leika
Rás 2. kl. 14,
Einar Gunnar Einarsson.
saman þau Sylvester Stallone
og Dolly Parton. Þau syngja
einnig saman á plötunni, og
Stallone hefur bara tekist
sæmilega upp þótt hann sé
enginn Pavarotti frekar en
ég. Dolly Parton semur öll
lögin í myndinni, og hefur nú
snúið aftur til kántrytónlistar-
innar, eftir að h'afa veriö
nokkuð í poppinu."
■ Við birtum hér tónlistarkrossgátu nr. 4 og hún er birt á fimmtudegi til að allir lesendur NT geti
fylgst með henni, hvar á hlustunarsvæði Rásar 2 sem þeir búa. Gátan er annars á dagskrá á mánudag
í þætti Jóns Gröndal.
Lausnir sendist til: Tónlistarkrossgátan nr: 4
Ríkisútvarpið RÁS 2
Hvassaleiti 60
10 Reykjavík
Eftir tvö
■ Á Rás2 klukkan tvöídag mgu kemur. Það er erfitt að Við erum þetta frá einum
verðurþátturinnEftirtvö. Þaö búa til andann íþáttinn mörg- klukkutíma og upp í 7 eða 8
eru þeir Jón Axcl Olafsson
og Pétur Steinn hafði þetta
að segja um þáttinn:
„Það verður mikið af nýju
efni í þættinum. Síðan er
hugntyndin aö hafa
viötal... .bíddu, ég þarf að fá
staðfestingu....jú, það er á
hreinu, við verðum mcð við-
tal við Forrcst, sem hefur
verið að skemmta hér undan-
farið, og það verður spilað
eitthvað af hans músik.
Annars verður það eins og
ég sagði áðan að nýmetið
veröur látið ráða ferðinni. Af
því má nefna nýtt lag með
Pointers Sistcrs, So Excited,
og nýtt lag með Christopher
Cross, sem á að verða þema-
lag sundíþróttarinnar á
Ólympíuleikunum.
Við látum anda fimmtu-
dagsins ráða þegar að útsend-
um dögum fyrirfram, af því tíma að undirbúa hvern þátt,
aö hann er sendur beint út. eftir því hvað er að gerast."
II Jón Axel Ólafsson.
Pétur Steinn Guðmunds-
Sjónvarp kl. 20.
iiii
Utvarp kl. 20,30:
■ Jakob S. Jónsson, þýðandi
fimmtudagsleikritsins Garður
með gullregni.
Garður
með
gullregni
Útvarpsleikrit eftir
Rachel Billington
■ Fimmtudagsleikritið í
kvöld heitir „Garður með gull-
regni“ eftir enska leikriiahöf-
undinn Rachel Billington í
þýðingu Jakobs S. Jónssonar.
Leikritið fjallar um hjónin
Thomas Dinwiddy og Mary
Dinwiddy, sem lifa regluföstu
og heldur tilbreytingarlausu
lífi, enda er svo komið að
hjónaband þeirra er orðið lítið
annað en nafnið tómt. Dag
nokkurn gerast þó óvænt atvjk
sem verða til þess að rómantík-
in tekur að blómstra á ný í
samlífi þeirra.
Leikendur eru: Helga
Bachmann, Róbert Arnfinns-
son, Guðrún Þ. Stephensen og
Viðar Eggertsson.
Leikstjóri er Árni Ibsen, en
tæknimenn Þorbjörn Sigurðs-
son og Áslaug Sturlaugsdóttir.
Ekkert sjónvarp í kvöld
- en verður bráðum sjónvarpað á fimmtudögum?
■ Það er ekkert sjónvarp í
kvöld. Er þetta náttúrulög-
mál, ejns og að sólin rís í
austri og sest í vestri? Oft
hefur maður það á tilfinning-
unni. Sumir eru dauðfegnir,
segjast þá fá tima til að ræða
við fjölskylduna, fara í bíó,
út að borða eða horfa á
nokkrar myndir í vídeóinu.
Fólk er líklega farið að líta
meira og meira á þetta sem
leifar af upphafsárum sjón-
varpsins, þegar aðeins var
sjónvarpað nokkrum sinnum
í viku og frí var í júlí. En er
einhver hreyfing komin á
málið? Fréttastofa sjónvarps-
ins sendi frá sér ályktun um
það snemma í vor að hefja
ætti útsendingar á fimmtu-
dögum. Haft var samband
við Hörð Vilhjálmsson, fjár-
málastjóra Ríkisútvarpsins
og hann spurður um þetta.
„Fimmtudagsopnun hefur
verið dálítið til umræðu að
undanförnu, það er rétt, en
það er ekkert á döfinni á
næstunni."
Kostnaður?
„Það hefur ekkert verið
reynt að gera sér grein fyrir
kostnaði við þetta."
Hörður sagði að ef af þessu
yrði yrðu miklar breytingar
og rask í sjónvarpinu, það
yrði mikil breyting á vakta-
kerfi og fjölga þyrfti starfs-
fólki.
Er þetta ekki framtíðar-
stefnan?
„Ja, þessi hugmynd er
framkomin. Ég hef eiginlega
ekki meira um það að segja.“
Fimmtudagur
21.júní
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. í
bítið. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorö - Jón Hjartar talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Sumarið með Aðalsteini" eftir
Trausta Ólafsson Höfundur les
(4).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.) Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 „Örðugasti hjallinn" eftir Ein-
ar H. Kvaran Guörún Aradóttir les
næst síöasta lestur.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 „Endurfæðingin" eftir Max
Ehrlich Þorsteinn Antonsson les
þýöingu sína (16).
14.30 Á frívaktinni Sigrún Sigurðar-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. Hindar-
kvartettinn leikur kvartett í a-moll
op. 1 eftir Johan Svendsen/ Pierre
Huybregts leikur píanólög eftir
belgísk tónskáld.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Siðdegisútvarp Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Möröur Árnason
flytur.
19.50 Við stokkinn Stjórnandi:
Gunnvör Braga.
20.00 Sagan: Flambradssetrið II.
hlutl, „Flugið heillar" eftir K.M.
Peyton Silja Aöalsteinsdóttir lýkur
lestri þýðingar sinnar (13).
20.30 Leikrit: „Garður með gull-
regni", eftir Rachel Billington
Leikstjóri: Árni Ibsen. Þýðandi:
Jakob S. Jónsson. Leikendur:
Helga Bachmann, Róbert Arn-
finnsson, Guörún Stephensen og
Viöar Eggertsson.
21.30 Listahátíð 1984: Bellmans-
kvöld með Fred Ákerström
Hljóðritun frá siöari hluta visnatón-
leika í Norræna Húsinu, fimmtu-
daginn 7. þ.m. - Kynnir: Baldur
Pálmason.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 I grænum Edensgarði. Þáttur
í tali og tónum um Kenia. Umsjón
Ásta R. Jóhannesdóttir. Lesari
með umsjónarmanni Einar Örn
Stefánsson. (Áöur útvarpaö 1982),
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
21.júní
10.00-12.00 Morgunþáttur, kl. 10.30
Innlendir og erlendir fréttapunktar
úr dægurtónlistarlífinu. Upp úr
ellefu: Fréttagetraun úr dagblöö-
unum. Þátttakendur hringja i plötu-
snúö. Kl. 12-14: Símatími vegna
vinsældalista: Stjórnendur: Páll
Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson
og Jón Ólafsson.
14.00-16.00 Eftir tvö Létt dægurlög.
Stjórnendur: Pétur Steinn Guö-
mundsson og Jón Axel Ólafsson.
16.00-17.00 Jóreykur að vestan
Kántrí-tónlist. Stjórnandi: Einar
Gunnar Einarsson.
17.00-18.00 Gullöldin - Lög frá 7.
áratugnum Vinsæl lög frá árunum
1962 til 1974 = Bítiatfmabilið.
Stjórnendur: Bogi Ágústsson og
Guðmundur Ingi Kristjánsson.
Föstudagur
22. júní
19.35 Umhverfis jörðina á áttatíu
dögum Sjöundi þáttur. Þýskur
brúðumyndaflokkur. Þýöandi Jó-
hanna Þráinsdóttir. Sógumaður
Tinna Gunnlaugsdóttir.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl
Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs-
dóttir.
20.50 Skonrokk Umsjónarmenn
Anna Hinriksdóttir og Anna Kristín
Hjartardóttir.
21.20 Eitthvað fyrir konur (Some-
thing for the Ladies) Bresk heim-
ildamynd í léttum dúr um kroppa-
sýningar og feguröarsamkeppni
karla með svipmyndum frá slíkum
viöburöum í Bretlandi. Þýöandi
Guörún Jörundsdóttir.
22.05 Borgarvirki (The Citadel) s/h
Bresk biómynd frá 1938, gerö eftir
samnefndri sögu A.J. Cronins sem
komið hefur út í íslenskri þýöingu.
Leikstjóri King Vidor. Aðalhlutverk:
Robert Donat, Rosalind Russel,
Ralph Richardson og Rex Harri-
son. Ungur læknir vinnur ötullega
og af ósérplægni aö heilbrigðis-
málum í námubæ i Wales meö
dyggilegri aöstoö konu sinnar. Síö-
ar veröur hann eftirsóttur sérfræö-
ingur heldra fólks í Lundúnum og
hefur. nær miSot sjónar á sönnum
verömætum þegar hann vaknar
upp viö vondan draum. Þýöandi
Jón Thor Haraldsson.
23.55 Fréttir i dagskrárlok.